Hulda fánaberi Íslands á stærsta Evrópumótinu frá upphafi



Fimmta Evrópumeistaramót IPC (Alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra) í frjálsum var sett í Grosseto á Ítalíu í kvöld. Hulda Sigurjónsdóttir, Suðra, var fánaberi Íslands við opnunarhátíðina en Ísland teflir fram alls fjórum keppendum á mótinu.

Ásamt Huldu keppa þau Helgi Sveinsson, Ármann, Arnar Helgi Lárusson, UMFN og Stefanía Daney Guðmundsdóttir, Eik.

Alls eru 36 lönd mætt til keppni á stærsta móti ársins fyrir Paralympics í Ríó de Janeiro sem haldnir verða í septembermánuði. Um 600 íþróttamenn keppa í mótinu næstu vikuna sem gerir EM í Grosseto stærsta EM frá upphafi hjá IPC.

Að sjálfsögðu verður hægt að fylgjast með mótinu í beinni útsendingu á netinu á heimasíðu IPC

Á sunnudag verður Arnar Helgi Lárusson fyrstur Íslendinga til að hefja keppni er hann keppir í 200m spretti í hjólastólakappakstri (e. wheelchair racing) en Arnar keppir í flokki T53.

Myndir/ Kári Jónsson - Hulda við setningarathöfnina á Ítalíu í kvöld.