Opinn fundur um flokkunarmál


Íþróttasamband fatlaðra boðar til opins kynningarfundar um flokkunarmál í sundi þar sem Ingi Þór Einarsson, landliðsþjálfari IF í sundi og alþjóðlegur „flokkari“ hjá IPC -Alþjóðaólympíuhreyfingu fatlaðra, fer yfir stöðu flokkunarmála og það sem framundan er í þeim efnum.
Fundurinn, sem haldinn verður mánudaginn 23. maí kl. 17:00, er öllum opinn og fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, C-sal á þriðju hæð.