Jón og Thelma með ný Íslandsmet!



Már bætti sig í 100m skriðsundi

Sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, setti í gær nýtt Íslandsmet í 100m skriðsundi í flokki S6 er hún synti til úrslita í greininni á Evrópumeistaramóti fatlaðra sem nú stendur yfir í Funchal í Portúgal.

Thelma hafnaði í 7. sæti á tímanum 1:23,85 mín. Þá var Thelma í undanrásum í morgun og komst í undanúrslit í 100m bringusundi SB5 á tímanum 1:58,89 mín. en Íslandsmetið hennar er 1:57,10mín. og mun hún vafalaust gera atlögu að því að fella það met sitt í kvöld. Thelma varð sjöunda inn í úrslitin í kvöld.

Már Gunnarsson, Nes/ÍRB, tók þátt í undanrásum í 100m skriðsundi í flokki S13 í morgun en Már var þar að synda uppfyrir sig þar sem hann er í flokki S12. Már komst ekki í úrslit í þessum sterka flokki en mætti þó með sterka persónulega bætingu því hann var skráður inn á tímanum 1:08,32mín en synti á 1:06,45mín. og er því farinn að höggva nærri skráða Íslandsmetinu í flokknum sem er í eigu Birkis Rúnars Gunnarssonar frá árinu 1995. Birkir synti í flokki S11 (alblindir) og gamla metið hans nær yfir flokk S12 þar sem enginn í þeim flokki hefur enn synt á betri tíma en Birkir í flokknum fyrir neðan.

Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, lokaði svo undanrásunum fyrir íslenska hópinn í morgun með nýju Íslandsmeti í 100m bringusundi S14 á tímanum 1:12.20mín en ríkjandi Íslandsmet hans frá 2014 var 1:13,81mín. Jón varð sjötti inn í úrslit kvöldsins.