Silfur hjá Jóni Margeiri í 200m skriðsundi



Fyrsta keppnisdegi á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi er lokið en keppt er í Funchal í Portúgal. Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, vann í dag til silfurverðlauna í 200m skriðsundi eftir magnaða keppni í lauginni!

Bretinn Thomas Hamer var fyrstur í bakkann á 1:57,96mín. en Jón Margeir synti á 1:58,06mín. og hafnaði í 2. sæti og Rússinn Mikhail Kuliabin varð þriðji á 1:58,75mín. svo það var hádramatískur endaspretturinn en Bretinn hafði betur að sinni.

Sonja Sigurðardóttir, ÍFR, keppti svo í 100m skriðsundi í flokki S4 í dag þar sem hún hafnaði í 5. sæti á tímanum 2:16,96 mín. en hin ítalska Arjola Trimi setti nýtt heimsmet í flokknum og var langfyrst í bakkann á tímanum 1:28,02mín.

Mynd/ Sverrir Gíslason - Jón að gera sig klárann í 200m keppnina í dag.