Kristín setti nýtt Evrópumet í Vatnaveröld!



Sundkonan Kristín Þorsteinsdóttir frá Ívari á Ísafirði setti um helgina nýtt Evrópumet í flokki S16 (Downs-heilkenni) á Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra í 50m laug. Mótið fór fram dagana 12.-13. mars í Vatnaveröld í Reykjanesbæ.
 
Kristín kom þá í bakkann á tímanum 38,42 sek. í 50m skriðsundi en fyrra metið sem staðið hafði frá júnímánuði 2015 var í eigu hinnar ítölsku Maria Bresciani og var 39,66 sek. svo Kristín bætti metið um rúma sekúndu. Glæsilegur árangur hjá Ísfirðingnum öfluga.

Mynd/ Jón Björn - Kristín á mótinu í Vatnaveröld í Reykjanesbæ um síðastliðna helgi.