Lokahóf Íslandsmótsins í Stapa í Reykjanesbæ



Sunnudagskvöldið 13. mars næstkomandi fer lokahóf Íslandsmóts ÍF fram í Stapa í Reykjanesbæ. Húsið verður opnað kl. 19:00 og verður opið til 01:00. Verð á mann er kr. 6500,-

Matseðill kvöldsins:

Forréttur: Asparssúpa og brauð
Aðalréttur: Lamb bernaise með kartöflum og grænmeti
Eftirréttur: Brownies með karamellusósu og ís

Skemmtiatriði, lifandi tónlist, leynilegur veislustjóri og frábær skemmtun í alla staði!

Næstkomandi föstudag verða aðildarfélög ÍF beðin um að staðfesta endanlega fjölda þátttakenda í lokahófinu.