Sundæfingar fyrir fötluð börn og ungmenni



Sundmiðstöð Grindavíkur
 
Íþróttasamband fatlaðra í samstarfi við sundþjálfarann Magnús Már Jakobsson munu bjóða upp á endurgjaldslausar sundæfingar í Grindavíkurlaug alla föstudag út þetta skólaár. Æfingarnar hófust síðasta föstudag, 19. febrúar og verða frá kl. 16.30-17.30 alla föstudaga út skólaárið.
 
Æfingarnar eru fyrir fötluð börn og ungmenni á grunnskólaaldri en Magnús verður með aðstoðarmann á æfingunum. Við hvetjum sem flesta til að koma og nýta sér þetta glæsilega íþróttatilboð undir handsleiðslu reynds þjálfara.
 
Fjölmargir einstaklingar úr röðum fatlaðra sundmanna hafa borið hróður Íslands víða í alþjóðlegum keppnum á borð við Kristínu Rós Hákonardóttur, Geir Sverrisson, Jón Margeir Sverrisson og marga fleiri.


Nánari upplýsingar um æfingarnar má nálgast hjá Magnúsi í síma 6608809 eða á skrifstofu Íþróttasambands fatlaðra á if@ifsport.is og í síma 5144080.

Stærsti sigurinn er að vera með!