Mögnuð sundhelgi að baki



Þrjú heimsmet!

Óhætt er að segja að sundfólk úr röðum fatlaðra hafi farið mikinn þessa helgina en fjöldi Íslendinga tók þátt í Malmö Open keppninni og þá féllu tvö ný Íslandsmet á Gullmóti KR í sundi. Keppnin í Malmö var í 25m laug en Gullmót KR fór fram í 50m laug.

Kristín Þorsteinsdóttir, Ívar - S16

Kristín setti nýtt heimsmet í 25m. skriðsundi á Malmö Open þegar hún kom í bakkann á 17,20 sekúndum. Kristín setti einnig tvö ný Evrópumet en það var í 50m skriðsundi á tímanum 37,39 sek. og í 25m baksundi á 22,04 sek. og ljóst að Kristín slær hvergi slöku við eftir magnaða frammistöðu á EM einstaklinga með Downs heilkenni sem fram fór á Ítalíu í nóvember á síðasta ári.

Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir - S14


Jón Margeir setti tvö ný heimsmet á Malmö Open um helgina, það fyrra kom í 400m skriðsundi þar sem Jón synti á 4:04,43 mín. Tíminn var ekki hans hraðasti en tíminn var sá besti skráði í greininni á löglegu móti Alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra (IPC). Jón setti einnig nýtt Íslandsmet í 100m fjórsundi á tímanum 1:02,62 mín. Annað heimsmet Jóns á mótinu kom í 100m skriðsundi á tímanum 53,42 sek sem einnig var yfir hans besta tíma en eins og áður greindi var hann að setja metið á löglegu móti. Nýtt Íslandsmet féll svo í 100m bringusundi þegar Jón kom í bakkann á 1:09,38mín.

Íþróttafélagið Fjörður gerði góða ferð til Malmö um helgina en Kristín Þorsteinsdóttir synti m.a. undir fánum Fjarðar þessa helgina. Fjörður var langstigahæsta sundfélag mótsins og hafði sigur í stigakeppninni.

Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR - S6

Thelma Björg setti tvö ný Íslandsmet á Gullmóti KR um helgina. Fyrrametið var í 50m baksundi þegar Thelma synti á tímanum 53,50 sek. Seinna met Thelmu þessa helgina kom í 200m baksundi þegar hún synti á 3:49,11 mín.

Sandra Sif Gunnarsdótti, Fjölnir - S13

Sandra bætti 25 ára gamalt met Rutar Sverrisdóttur í 100m fjórsundi í 25m laug á Malmö Open þegar Sandra kom í bakkann á 1:37,42 mín.

Mögnuð sundhelgi að baki - til hamingju Kristín, Jón, Thelma og Sandra.

Mynd/ Sverrir Gíslason - Jón Margeir stingur sér til sunds í Malmö um helgina.