Jón setti fjögur ný Íslandsmet á RIG



Fjölnismaðurinn Jón Margeir Sverrisson, S14, lét vel til sín taka á RIG um helgina en hann keppti í báðum sundhlutum mótsins, þ.e.a.s. á móthluta fatlaðra sem og þeim hjá SSÍ. Jón setti fjögur Íslandsmet um helgina, tvö í sömu grein.

Á sundhluta SSÍ setti Jón Margeir nýtt met í 50m bringusundi þegar hann synti á 33:08 sek. og átti þar sjötta besta tímann í undarásum. Þá bætti hann einnig Íslandsmet sitt í 1500m skriðsundi á tímanum 17:16,07 mín. sem er undir ríkjandi heimsmeti en ekki er hægt að staðfesta metið þar sem mótshlutinn var ekki með keppnisgildindu hjá Alþjóða Ólympíuhreyfingu fatlaðra.

Sundhluta SSÍ lauk í gær og þá var Jón Margeir aftur á ferðinni með nýtt Íslandsmet í 200m bringusundi í undanrásum en þá synti hann á 2:42,93 mín. en það met var kjöldregið í úrslitum í gærkvöldi þegar Jón synti á 2:38,94 mín.

Jón var stigahæsti sundmaðurinn í sundhluta fatlaðra á RIG en hann fékk 930 stig fyrir sund sitt í 100m skriðsundi í flokki S14 (stig reiknuð út frá ríkjandi heimsmeti hverrar greinar).

Myndasafn frá RIG 2016 (SG)

Mynd/ SG