Knattspyrna



Íþróttasamband Fatlaðra | þriðjudagur 27. mars 13:15
Knattspyrnuæfingar fyrir fatlaða
Knattspyrnusamband Íslands og Íþróttasamband Fatlaðra hafa átt gott samstarf undanfarin ár í tengslum við Íslandsleika Special Olympics í knattspyrnu. Áhugi er á að efla samstarfið enn frekar og hvetja fleiri fatlaða til að taka þátt í knattspyrnu.

Ákveðið hefur verið að hafa opna tíma fyrir fatlaða á sparkvellinum í Laugardal, beint á móti stúku KSÍ. (við Laugarnesskóla)

Þetta verkefni verður þrjá laugardaga og verður aðstoðarfólk á staðnum.

Laugardagur 19. maíkl. 10.00 - 12.00
Laugardagur 26. maíkl. 10.00 - 12.00
Laugardagur 2. júníkl. 10.00 - 12.00

Nánar

Frá Special Olympicsnefnd