[Fréttir 2010]  [Fréttir 2009]  [Fréttir 2008]  [Fréttir 2007]  [Fréttir 2006]  [Fréttir 2005]  [Fréttir 2004]  [Fréttir 2003]  [Fréttir 2002] 

Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 1. febrúar 2012 11:45
Keppendur Íslands á NM í boccia 2012

Norðurlandamótið í boccia fer fram á Íslandi dagana 11.-13. maí næstkomandi. Íslenski hópurinn hefur þegar verið valinn en hann skipa 25 keppendur frá átta aðildarfélögum ÍF. Mótið mun fara fram í Laugardalshöll og er búist við því að um 100 erlendir keppendur mæti til leiks og að um 350 manns komi að mótinu.

Stjórn ÍF óskar íslensku keppendunum góðs gengis á mótinu.
 
Frá ÍFR;
Þórey Rut Jóhannesdóttir, flokkur 1 m/rennu
Valgeir Árni Ómarsson, flokkur 1
Hjalti Bergmann Eiðsson, flokkur 4
Kristjana Halldórsdóttir, flokkur 4
Haukur Gunnarsson, flokkur 4
 
Frá Ösp:
Kristján Vignir Hjálmarsson, flokkur 1 m/rennu
Sigrún Sól Eyjólfsdóttir, flokkur 1 m/rennu
Árni Sævar Gylfason, flokkur 1
Kristín Jónsdóttir, flokkur 1
Hulda Klara Ingólfsdóttir, flokkur 2
Kjartan Ásmundsdóttir, flokkur 2
Benedikt Ingvarsson, flokkur 4
 
Fá Grósku;
Steinar Þór Björnsson, flokkur 1
Aðalheiður Bára Steinsdóttir, flokkur 2
 
Frá Þjóti;
Sigurður Kristinsson, flokkur 1
Lindberg Már Scott, flokkur 4
 
Frá Akri;
Sigurrós Karlsdóttir, flokkur 3
Sigrún Björk Friðriksdóttir, flokkur 3
Kolbeinn Jóhann Pétursson, flokkur 4
Stefán Thorarensen, flokkur 4
Guðbjörg Ellý Gústafsdóttir, flokkur 4
 
Frá Nes;
Konráð Ragnarsson, flokkur 4
Davíð Már Guðmundsson, flokkur 4
 
Frá Völsungi;
Kristbjörn Óskarsson, flokkur 4
 
Frá Eik;
Heiðar Hjalti Bergsson, flokkur 4

Mynd/ ÍF: Hjalti Bergmann Eiðsson er á meðal fremstu spilara þjóðarinnar og hann mun standa í ströngu á NM í boccia í maímánuði.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 30. janúar 2012 17:55
Skíðanámskeið fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli 2012

Þrjú skíðanámskeið fyrir fatlaða verða haldin í Hlíðarfjalli í vetur. Námskeiðin hefjast á föstudögum kl. 17.00 og lýkur á sunnudögum kl. 16.00

Námskeiðin eru öll fyrir byrjendur og lengra komna og alla fötlunarhópa.

Hámarksfjöldi á hvert námskeið tekur mið af þörf á sérbúnaði og aðstoðarfólki. Fyrstu skráningar ganga fyrir svo fólk er hvatt til að skrá tímanlega.

Nánari upplýsingar um dagskrá verður send skráðum þátttakendum

Tímasetning námskeiða 2012

2. – 4. mars 2012
16. – 18. mars  2012 (uppselt)
13. – 15. apríl 2012

Námskeiðsgjöld  eru kr. 12.000.- 
Innifalið; lyftugjöld, búnaður, léttur hádegisverður kennsla og ráðgjöf

Skráningar og nánari upplýsingar;
 
Hlíðarfjall - elsa@saltvik.is - GSM 8642062
Íþróttasamband fatlaðra - annak@isisport.is - GSM 8975523 

Helgina 17. – 19. febrúar verður  haldið leiðbeinendanámskeið undir stjórn  Beth Fox.
Sendar verða nánari upplýsingar um námskeiðið sem ætlað er leiðbeinendum og /eða aðstoðarfólki.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 30. janúar 2012 16:17
Ávarp formanns ÍSÍ: ÍSÍ 100 ára

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur nú á merkum tímamótum.  Fagnar aldarafmæli.  Að baki er merkileg saga frá því að samtökin voru stofnuð á umbrotatímum í íslensku samfélagi á öndverðri 20. öldinni – nokkrum árum áður en Ísland varð fullvalda ríki.  Í eitthundrað ár hefur íþróttahreyfingin verið samferða þjóðinni og þjóðin samferða íþróttahreyfingunni.  Segja má að starfsemi íþróttahreyfingarinnar hafi verið margháttaður spegill á félagslega þróun samfélagsins.  Í tímans rás hefur þessi þróun endurspeglað byltingu í lífsháttum, skapað lífstíl og viðfangsefni sem í dag teljast til órjúfanlegs hluta okkar menningar og samfélags.  Íþróttahreyfingin hefur í raun lagt umtalsverðan skerf til sjálfstæðisbaráttu og sjálfstæðisvitundar þjóðarinnar.

Lesa ávarpið í heild sinni á heimasíðu ÍSÍ

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 26. janúar 2012 17:00
Handbók um skíðaiðkun fatlaðs fólks
Vakin er athygli á lokaverkefni Guðnýjar Bachmann til Meistaragráðu við Þroskaþjálfadeild Háskóla Íslands.
Lokaverkefnið tekur fyrir gildi skíðaiðkunar fatlaðs fólks og meginverkefnið er handbók um skíðakennslu fatlaðs fólks.
 
Í gegnum meðfylgjandi tengil má nálgast lokaverkefnið og þarf eingunis að skoða myndirnar í handbókinni til að sjá hvaða möguleikar standa fötluðu fólki til boða þegar kemur að skíðaiðkun.
 
http://skemman.is/handle/1946/10314
 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 26. janúar 2012 16:14
Alls féllu 21 Íslandsmet á RIG

Um síðastliðna helgi fóru Reykjavíkurleikarnir (RIG) fram í Laugardal og víðar. Sundkeppni hjá fötluðum fór fram í Laugardalslaug þar sem margir sýndu sparihliðarnar enda féllu 21 Íslandsmet þessa helgina.

Listi yfir Íslandsmet fatlaðra í sundi á RIG

Föstudagur - 20. janúar
Pálmi Guðlaugsson - Fjörður/SH - 100m. flugsund - 1:39,18 mín.
Hjörtur M. Ingvarsson - Fjörður - 200m. fjórsund - 4:17,91 mín.
Kolbrún Alda Stefánsdóttir - Fjörður - 400m. skriðsund - 5:14,20 mín.

Laugardagur 21. janúar
Hjörtur Már Ingvarsson, 50m. skriðsund, S5 - 45,18 sek.
Jón Margeir Sverrisson, 50m. skriðsund, S14 - 26,36 sek.
Vaka Þórsdóttir, 50m. skriðsund - S11, 1:12,68 mín.
Íva Marín Adrichem, 50m. skriðsund, S11 - 1:00,97 mín. (bætti met Vöku)
Kolbrún Alda Stefánsdóttir, 50m. skriðsund, S14 - 31,92 sek.
Vignir G. Hauksson, 100m. bringusund, S6 - Sb5 - 2:32,35 mín.
Íva Marín Adrichem, 100m. bringusund, S11 - 2:15,60 mín.
Hjörtur Már Ingvarsson, 200m. skriðsund, S5 - 3:24,98 mín.
Hjörtur Már Ingvarsson, 100m. skriðsund (millitíminn í 200m. skrið) 1:37,17 mín.
Kolbrún Alda Stefánsdóttir, 200m. skriðsund, S14 - 2:29,21

Sunnudagur 22. janúar
Hjörtur M. Ingvarsson, Fjörður, S5, 100m. skriðsund – 1:34,72mín.
Hjörtur M. Ingvarsson, Fjörður, S5, 50m. skriðsund – 44,78 mín.
Hjörtur M. Ingvarsson, Fjörður, S5, 100m. baksund – 1:39,22 mín.
Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, S14, 100m. skriðsund – 56,89 sek.
Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, S14, 50m. bringusund – 34,38 mín.
Vaka Þórsdóttir, Fjörður, S11, 100m. skriðsund – 2:38,82 mín.
Íva Marín Adrichem, ÍFR, S11, 50m. bringusund – 1:01,84 mín.
Pálmi Guðlaugsson, Fjörður, S7, 100m. bringusund – 1:39,22 mín.

Mynd/ Sverrir Gíslason: Þruman úr Þorlákshöfn, Hjörtur Már Ingvarsson, setti sjö Íslandsmet á RIG í flokki S5.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 25. janúar 2012 11:44
Íslenski hesturinn og fólk með fötlun

Íþróttasamband fatlaðra og Hestamannafélagið Hörður, Mosfellsbæ, standa fyrir ráðstefnu um hestamennsku fyrir fólk með fötlun laugardaginn 11.febrúar 2012 kl. 10.00 – 16.00.

Íslenski hesturinn hefur reynst vel við þjálfun og endurhæfingu fólks með fötlun. Hestaíþróttir eru keppnisgrein á ólympíumótum fatlaðra og á alþjóðaleikum Special Olympics og á Íslandi er verið að þróa keppnisform fyrir fólk með fötlun.

Markhópur ráðstefnu eru þeir  sem unnið hafa að þessum málum og aðrir sem áhuga hafa

10.00 – 12.00  Félagsheimili Hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ

10.00 – 10.15      Kynning á verkefnum starfshóps um þessi mál og  dagskrá námskeiðs 
Anna K Vilhjálmsdóttir, frkvstj. Fræðslu og útbreiðslusviðs ÍF

10.15. – 10.35.    Kynning á sjúkraþjálfun á hestbaki   
  Guðbjörg Eggertsdóttir og Þorbjörg Guðlaugsdóttir, sjúkraþjálfarar Æfingastöðvar SLF    

10.35. -  11.00.    Kynning á starfi fyrir fatlaða innan Hestamannafélagsins Harðar   
Auður Sigurðardóttir, formaður fræðslunefndar fatlaðra
Kynning á leiðtoganámskeiðum 
Þórhildur Þórhallsdóttir, Hestamennt

11.00 – 11.20.      Kynning á knapamerkjakerfi.                                             
Sigrún Sigurðardóttir, reiðkennari
 
11.20. –11.40.     Kynning á hlutverki hestsins & félagslegur þáttur             
Ásta Pétursdóttir, geðhjúkrunarfræðingur

11.40. – 12.00.    Spurningar og umræður
12.00 – 13.00       Hádegisverður

13.00 – 15.000     Reiðhöll Hestamannafélagsins Harðar 

Sjúkraþjálfun á hestbaki: Stutt kynning
Kynning á keppnisfyrirkomulagi  Helstu atriði kynnt
 
15.00  – 16.00
       Lok námskeiðs og samantekt

Þátttökugjald er kr. 3.000. -   Innifalið er hádegisverður og kaffi.

Vinsamlega staðfestið skráningu fyrir þriðjudag 7 febrúar 2012 í netfang;
annak@isisport.is   Íþróttasamband fatlaðra
audurs@gmail.com Hestamannafélagið Hörður

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 22. janúar 2012 15:37
RIG lokið – átta Íslandsmet á síðasta keppnisdegi

Sundhluta fatlaðra á Reykjavík International Games er lokið og alls 21 Íslandsmet sem leit dagsins ljós þessa helgina en rétt í þessu var þriðja og síðasta keppnishluta mótsins að ljúka. Átta Íslandsmet féllu í dag þar sem Hjörtur Már Ingvarsson átti þrjú þeirra.

Íslandsmet á þriðja og síðasta mótshluta RIG:

Hjörtur M. Ingvarsson, Fjörður, S5, 100m. skriðsund – 1:34,72mín.
Hjörtur M. Ingvarsson, Fjörður, S5, 50m. skriðsund – 44,78 mín.
Hjörtur M. Ingvarsson, Fjörður, S5, 100m. baksund – 1:39,22 mín.
Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, S14, 100m. skriðsund – 56,89 sek.
Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, S14, 50m. bringusund – 34,38 mín.
Vaka Þórsdóttir, Fjörður, S11, 100m. skriðsund – 2:38,82 mín.
Íva Marín Adrichem, ÍFR, S11, 50m. bringusund – 1:01,84 mín.
Pálmi Guðlaugsson, Fjörður, S7, 100m. bringusund – 1:39,22 mín.

Mynd/ Sverrir Gíslason: Íslandsmethafar með gulu bolina sína sem vitnisburð um árangur helgarinnar.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 21. janúar 2012 16:08
Níu Íslandsmet á öðrum keppnisdegi RIG

Í dag féllu alls níu Íslandsmet í sundhluta fatlaðra á RIG sem fram fer í Laugardalslaug. Á morgun fer fram þriðji og síðasti mótshlutinn þar sem upphitun hefst kl. 12:00 og keppnin 12:45.

Íslandsmetin á öðrum mótshluta RIG

Hjörtur Már Ingvarsson, 50m. skriðsund, S5 - 45,18 sek.
Jón Margeir Sverrisson, 50m. skriðsund, S14 - 26,36 sek.
Íva Marín Adrichem, 50m. skriðsund, S11 - 1:00,97 mín.
Kolbrún Alda Stefánsdóttir, 50m. skriðsund, S14 - 31,92 sek.
Vignir G. Hauksson, 100m. bringusund, S6 - Sb5 - 2:32,35 mín.
Íva Marín Adrichem, 100m. bringusund, S11 - 2:15,60 mín.
Hjörtur Már Ingvarsson, 200m. skriðsund, S5 - 3:24,98 mín.
Hjörtur Már Ingvarsson, 100m. skriðsund (millitíminn í 200m. skrið) 1:37,17 mín.
Kolbrún Alda Stefánsdóttir, 200m. skriðsund, S14 - 2:29,21

Mynd/ Sverrir Gíslason - Íva Marín setti tvö Íslandsmet í dag í flokki S11.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 20. janúar 2012 22:22
Þrjú Íslandsmet í dag: Sport TV sýnir beint á morgun

Í dag fór fram fyrsti keppnisdagurinn á RIG, sundhluta fatlaðra þar sem þrjú Íslandsmet litu dagsins ljós. Pálmi Guðlaugsson reið fyrstur á vaðið með nýtt Íslandsmet í flokki S7 þegar hann kom í bakkann á 1:29,18 mín. í 100m. flugsundi.

Annað Íslandsmetið í dag kom í flokki S5 þar sem Hjörtur M. Ingvarsson kom í bakkann á 4:17,91mín. í 200m. fjórsundi. Þriðja og síðasta metið setti Kolbrún Alda Stefánsdóttir í 400m. skriðsundi, S14, á tímanum 5:14,20 mín.

Á morgun, laugardag, hefst upphitun kl. 12:00 í Laugardalslaug og keppni kl. 12:45 en hægt verður að fylgjast með gangi mála í beinni netútsendingu á www.sporttv.is

Mynd/ Sverrir Gíslason: Pálmi á fleygiferð í flugsundinu í dag.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 16. janúar 2012 14:47
RIG 2012: Greinar sundmótsins

Reykjavík International Games fara fram í höfuðborginni dagana 20.-22. janúar næstkomandi. Hér að neðan er greinalistinn fyrir keppni í sundhluta fatlaðra. Við minnum á að skil skráninga eru fyrir miðnætti þriðjudaginn 17. janúar á thor.jonsson@skyrr.is
 
Föstudagur upphitun 13:00, mót 13:45

Grein1
100.metra Flug Karla
Grein 2
100.metra Flug Kvenna
Grein3
200.metra Fjórsund Karla
Grein4
200.metra Fjórsund Kvenna
Grein5
400.metra  Skriðsund Karla
Grein6
400.metra Skriðsund kvenna
 
Laugardagur
Upphitun 12:00 mót 12:45
 
Grein7
50.metra skriðsund Karla
Grein8
50.metra skriðsund Kvenna
Grein9
100.metra Bringusund karla
Grein10
100.metra Bringusund kvenna
Grein11
50.metra Baksund Karla
Grein12
50.metra Baksund Kvenna
Grein13
200.Metra Skriðsund Karla
Grein14
200.Metra Skriðsund Kvenna
 
Sunnudagur
Upphitun 12:00 mót 12:45
 
Grein15
100.metra Skriðsund Karla
Grein16
100.metra Skriðsund Kvenna
Grein17
50.metra Bringusund Karla
Grein18
50.metra Bringusund Kvenna
Grein19
100.metra Baksund Karla
Grein20
100.metra Baksund Kvenna
Grein21
50.metra Flugsund Karla
Grein22
50.metra Flugsund Kvenna

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 16. janúar 2012 12:20
Afreksþjálfun – Ráðstefna 19.janúar 2012 í tilefni af RIG

Í tilefni af fimmtu Reykjavíkurleikunum og 100 ára afmæli ÍSÍ munu Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir ráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Fyrirlestrarnir munu fara fram í Háskólanum í Reykjavík, stofu V101, fimmtudaginn 19. janúar. Ráðstefnan hefst kl.18:00 og lýkur kl.21:00. Þrír mjög áhugaverðir erlendir fyrirlesarar munu flytja erindi um afreksþjálfun en ráðstefnustjórar verða þau Þórdís Gísladóttir, sviðsstjóri íþróttafræðasviðs HR, og Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ. Fyrirlestrarnir fara allir fram á ensku.

Skráning
Ráðstefnugjald er kr. 1.500,- og er innifalið í gjaldinu léttur kvöldverður sem borinn verður fram um kl.19.  Skráning fer fram á netfanginu linda@isi.is og greiðist við komu. Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 17.janúar. Hámarksfjöldi á ráðstefnuna er 120 manns.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 12. janúar 2012 10:15
Íþróttaskóli ÍFR fyrir hressa krakka

ÍFR stendur fyrir Íþróttaskóla fyrir börn á aldrinum 4-8 ára frá 21.janúar til 25.febrúar. Íþróttaskólinn er í boði einu sinni í viku alla laugardaga kl. 10.30 til 11.30

Námskeiðið er fyrir krakka á aldrinum 4-8 ára en Íþróttarskólinn hefur aðsetur hjá Íþróttafélagi fatlaðra við Hátún 14 í Reykjavík. Best er að börnin séu berfætt/tátiljum og í þægilegum bol og buxum, ekki er þörf á sérstökum íþróttafatnaði.

Skráning er í síma 561-8226
Þátttökugjald er kr. 3.000,-

Í Íþróttaskólanum ætlum við að leysa ýmsar þrautir þar sem börnin þurfa að reyna á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu og líkamlegan þroska sem og félagslegan. Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman. Skynfærin þarf einnig að örva og samhæfa. Skólastjóri er Ása Guðbrandsdóttir sjúkraliðarnemi. Aðstoðarskólastjóri er Kara Rut Hanssen.
 
Nánari upplýsingar um skólann veitir Ása gegnum netfangið ithrottaskoli@gmail.com
Allar aðrar upplýsingar veitir Þórður í síma 561-8226 eða í netfangið ifr@ifr.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 10. janúar 2012 12:48
RIG í Laugardalslaug 20.-22. janúar

Dagana 20.-22. janúar næstkomandi fara Reykjavík International Games fram í höfuðborginni. Keppni í sundi fer fram í Laugardalslaug og er keppt alla þrjá dagana. Skráningargögn í mótið vegna keppni fatlaðra hafa þegar verið send út á aðildarfélög ÍF og rennur skráningarfrestur í mótið út á miðnætti 17. janúar.

Skráningum skal skila á Hy-Tek formi til thor.jonsson@skyrr.is

Keppni á föstudeginum 20. janúar hefst svo kl. 13:45 en upphitun hefst kl. 13:00.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 9. janúar 2012 16:34
Veglegt myndasafn frá Nýárssundmótinu

Nú er komið inn á myndasíðu ÍF veglegt safn frá Nýárssundmóti barna og unglinga sem fram fór í Laugardalslaug um síðastliðna helgi. Hátt í 90 myndir eru í safninu frá mótinu þar sem Kolbrún Alda Stefánsdóttir vann Sjómannabikarinn annað árið í röð.

Sjá myndasafnið hér

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 9. janúar 2012 16:04
Ellefu íþróttamenn úr röðum fatlaðra á lista styrkþega Afrekssjóðs og styrktarsjóðs
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti, miðvikudaginn 4. janúar 2012, tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ og Styrktarsjóðs ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna fyrir árið 2012.
 
Styrkveitingar ÍSÍ að þessu sinni nema samtals rúmlega 83 milljónum króna en úthlutað er rúmlega 67 m.kr. úr Afrekssjóði ÍSÍ og 10 m.kr. úr Sjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna.
 
Til Afrekssjóðs ÍSÍ bárust umsóknir vegna 45 einstaklinga og vegna 26 verkefna.
39 einstaklingar hljóta styrk að þessu sinni og 26 verkefni.
 
Íþróttasamband fatlaðra fékk úthlutað tæpum 4,9 milljónum króna.
 
Úthlutunin skiptist svo:
 
Jón Margeir Sverrisson – B styrkur
Eyþór Þrastarson – C styrkur
Jóhann Rúnar Kristjánsson – C styrkur
Erna Friðriksdóttir – eingreiðslustyrkur
Baldur Ævar Baldursson – eingreiðslustyrkur
 
Ungir og framúrskarandi:
 
Kolbrún Alda Stefánsdóttir – eingreiðslustyrkur
Hjörtur Már Ingvarsson  - eingreiðslustyrkur
Vilhelm Hafþórsson – eingreiðslustyrkur
Thelma Björg Björnsdóttir – eingreiðslustyrkur
Ingeborg Eide Garðarsdóttir  - eingreiðslustyrkur
Aníta Ósk Hrafnsdóttir – eingreiðslustyrkur
 
Mynd/
Jón Margeir Sverrisson er einn fatlaðra íþróttamanna sem hlýtur B-styrk að þessu sinni.
 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 8. janúar 2012 18:21
Kolbrún Alda vann Sjómannabikarinn annað árið í röð: Besti árangurinn í 11 ár!

Nýárssundmóti fatlaðra barna og unglinga var að ljúka í Laugardalslaug þar sem sundkonan Kolbrún Alda Stefánsdóttir vann besta afrek mótsins og hlaut fyrir vikið Sjómannabikarinn eftirstótta annað árið í röð.

Kolbrún hlaut 764 stig fyrir 50m. bringusund og var þessi stigaárangur sá besti á mótinu í 11 ár eða síðan árið 2001 þegar Gunnar Örn Ólafsson hlaut 771 stig í 50m. baksundi.

Skólahljómsveit Kópavogs setti skemmtilegan svip á mótið og skátar frá Skátafélaginu Kópum stóðu heiðursvörð á meðan mótinu stóð. Hr. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra var heiðursgestur mótsins og afhenti öllum þátttakendum þátttökuverðlaun og síðan afhenti hann Kolbrúnu Öldu sjálfan Sjómannabikarinn en hann gaf Sigmar Ólason sjómaður á Reyðarfirði.

Fleira var um dýrðir á mótinu því sjálfur yfirdómari mótsins, Björn Valdimarsson, á afmæli í dag og óskum við honum innilega til hamingju með daginn ásamt því að senda öllum þeim sem komu að framkvæmd mótsins okkar bestu þakkir fyrir þeirra framlag.

Mynd/ Kolbrún Alda með Sjómannabikarinn 2012

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 6. janúar 2012 12:03
Jón í 23. sæti í kjöri á Íþróttamanni ársins

Knattspyrnumaðurinn Heiðar Helguson er íþróttamaður ársins 2011. Íþróttasamband fatlaðra óskar Heiðari innilega til hamingju með útnefninguna. Jón Margeir Sverrisson hafnaði í 23. sæti í kjörinu þetta árið með 5 stig.

Jón Margeir og Kolbrún Alda Stefánsdóttir, íþróttamenn ÍF 2011, voru bæði viðstödd kjörið í gærkvöldi ásamt þeim Þórði Árna Hjaltested varaformanni ÍF og Ólafi Magnússyni framkvæmdastjóra fjármála- og afrekssviðs ÍF.

Jón hlaut fimm stig í kjörinu þetta árið og hafnaði í 23. sæti en í fyrra hafnaði Jón í 22. sæti í kjörinu með 3 stig.

Mynd/ Jón og Kolbrún, Íþróttamenn ÍF 2011 voru viðstödd kjörið á íþróttamanni ársins í gærkvöldi.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 5. janúar 2012 15:23
Góð þátttaka í Nýárssundmótinu: Hátt í 100 krakkar skráðir til leiks

Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga fer fram í innilauginni í Laugardal sunnudaginn 8. janúar næstkomandi. Upphitun hefst kl. 14:00 og keppnin kl. 15:00. Heiðursgestur mótsins er Hr. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra. Bjóðum við heiðursgest mótsins hjartanlega velkominn til þessa tuttugasta og níunda Nýárssundmóts fatlaðra barna og unglinga árið 2012.

Næstum 100 börn frá átta aðildarfélögum ÍF eru skráð til leiks að þessu sinni og þátttakan því með mesta móti. Kolbrún Alda Stefánsdóttir íþróttakona ÍF 2011 er handhafi Sjómannabikarsins eftirsótta sem jafnan er afhentur fyrir besta afrek mótsins og verður Kolbrún með um helgina og fróðlegt að sjá hverjir ætli sér að gera atlögu að Sjómannabikarnum hennar þetta mótið.
 
Allar nánari upplýsingar um mótið fást á skrifstofu ÍF.

Mynd/ Frá Nýárssundmótinu 2011.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 4. janúar 2012 14:56
Minningarmót ÍFR í boccia

Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík mun standa fyrir minningarmóti í boccia laugardaginn 7. janúar næstkomandi. Mótið verður haldið í minningu fyrrverandi formanns ÍFR Júlíusar Arnarssonar íþróttakennara.

Eftirtöldum aðilum er boðið til þátttöku í mótinu: Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík, félagsstarf aldraðra í Garðabæ, félagsstarf aldraðra hjá ÍR og félagsstarf aldraðra í Digraneskirkju. Mótið fer fram í Íþróttahúsi ÍFR, Hátúni 14, 105 Reykjavík og hefst laugardaginn 7. jan. kl. 10.00.

Mynd/ Júlíus Arnarsson

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 1. janúar 2012 23:37
Ávarp formanns

Í fjölbreyttu starfi eins og því sem ÍF stendur fyrir er ávallt eitthvert stórt verkefni í gangi. Á fjögurra ára fresti fer fram Ólympíumót fatlaðra og síðan eru það heimsleikar þroskahamlaðra (Global Games), alþjóðaleikar Special Olympics, heimsmeistaramót, Evrópumót og norræn mót ýmiss konar og þannig mætti lengi telja. Ekki má heldur horfa framhjá Íslandsmótunum sem fara fram í öllum þeim greinum sem fatlaðir stunda og þær eru ekki svo fáar.

Hjá um 20 félögum víðs vegar um landið taka um 1200 fatlaðir einstaklingar þátt í þessum mótum, sumir einungis í Íslandsmótum í einni grein en aðrir í mörgum greinum. Svo eru aðrir sem ná langt og keppa fyrir Íslands hönd á mótum erlendis og örfáir ná svo góðum árangri að þeir komast á Ólympíumót.
Í gegnum árin hafa fatlaðir íslenskir keppendur náð langt á þessu sviði, jafnt og þeir sem eru hreyfihamlaðir, blindir og þroskahamlaðir. Þeir hafa ekki náð svona langt bara með því að taka þátt, heldur liggur að baki óhemju vinna og tími hjá keppendum sem náð hafa á þessi mót. Það eru ekki bara keppendur sem hafa lagt á sig mikla vinnu, heldur standa að baki hverjum og einum keppanda góður þjálfari, íþróttafélag sem gerir honum kleift að stunda æfingar og ekki má gleyma þeim sem næst standa, svo sem foreldrum og aðstandendum sem líka þurfa að færa verulegar fórnir til að árangur náist. Þó allt þetta fólk vinni að mestu leyti í sjálfboðavinnu kostar mikla peninga að stunda íþróttir. Það þarf að greiða fyrir íþróttamannvirki, þjálfun og oft þurfa fatlaðir einstaklingar að fá utanaðkomandi akstur.

Þá spyr maður sig, ef þetta kostar svona mikla peninga, af hverju er fólk þá að þessu? Er það fyrir sigurvonina, er það fyrir gleðina að vera meðal jafningja eða til hvers?

Í öllum menningarþjóðfélögum og flestum löndum er talið nauðsynlegt að fólk, jafnt ungir sem aldnir fái rétta hreyfingu, hreyfingu sem viðheldur líkamanum og eykur vellíðan. Þetta þykir svo sjálfsagt hér á landi að meginþorri landsmanna stundar hreyfingu á einhvern hátt. Í íþróttafélögum landsins voru um síðustu áramót (2010-2011) 85.828 manns skráðir í íþróttafélög víðs vegar um landið. Þetta eru 27% allra landsmanna, jafnt kornabarna sem og eldri borgara, fatlaðra sem ófatlaðra. En þetta er ekki nóg, heldur iðka margir af þessum íþróttamönnum fleiri en eina grein og er heildarþátttaka í ýmsum greinum 227.930 sem er dágóður hluti landsmanna! Þar fyrir utan eru fjölmargir ekki skráðir í íþróttafélög heldur stunda íþróttir og útiveru á sinn hátt. Eins og áður segir eru um 1200 fatlaðir einstaklingar skráðir í félög og margir þeirra stunda fleiri en eina íþróttagrein. Má segja að ef það er talin nauðsyn að fullfrískur einstaklingur hreyfi sig er það enn meiri nauðsyn að fatlaður einstaklingur geri það, ef hann getur, sem er ekki alltaf sjálfsagt.

Einn af frumkvöðlum íþrótta fatlaðra á Íslandi, Arnór Pétursson, sem lést á síðasta ári sagði ávallt að íþróttir fatlaðra spöruðu þjóðfélaginu miklar fjárhæðir með hreyfingu í stað pilluáts eða jafnvel sjúkrahúslegu. Nú virðist vera að vakna skilingur á þessu innan heilbrigðisstétta því nú er farið að skrifa beiðni um sjúkraþjálfun í stað lyfja, þar sem það á við og er það ánægjuleg framför.
En jafnvel sjúkraþjálfun má leysa af með íþróttum og eins og faðir eins af okkar fremstu keppendum í sundi sagði við mig nýverið, að sonur hans hefði ekki þurft að fara í sjúkraþjálfun í eitt skipti síðan hann byrjaði að stunda stund.

Á síðasta ári fóru 36 keppendur til Grikklands í keppni á alþjóðaleika Special Olympics. Eins fóru 16 bö-rn og unglingar sína fyrstu keppnisferð á norrænt barna- og unglingamót og Íslands átti fulltrúa í Evrópumótum og Norðurlandamótum í ýmsum greinum sem allir stóðu sig frábærlega og bættust margir verðlaunapeningar í safnið. Þegar allar ferðir eru lauslega taldar fóru um 120 keppendur erlendist á vegum ÍF árið 2011. Þetta er mikill fjöldi og kostar þátttakan sitt. Þrátt fyrir að keppendur þurfi að taka á sig æ meiri þátttökukostnað, er þetta stór útgjaldaliður fyrir ÍF.

Á árinu 2012 verður keppt á Ólympíumóti fatlaðra í London. Er þetta stærsti íþróttaviðburður sem fatlaðir taka þátt í á árinu. Ekki er hann þó sá fjölmennasti af hálfu Íslendinga, en Ísland keppir þar við stærstu þjóðir heims um þátttökurétt og einungis þeir bestu í hverri grein og flokki ná þátttöku. Það verður því mikil barátta um hvert sæti og er það von okkar, ef allt gengur upp, að koma fimm keppendum á leikana.
Að öðlast þátttökurétt á þessum mótum er merki þess að æfingar hafi verið ástundaðar af krafti og eljusemi sem skilar keppendum í fremstu röð íþróttamanna frá öllum heiminum í sínum íþróttagreinum þó að stærsti sigurinn sé ávallt að bæta sig.

Ég óska öllum fötluðum íþróttamönum, þjálfurum, dyggum velunnurum, fórnfúsum sjálfboðaliðum, sem og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári og þakka fyrir samstarfið á liðnum árum.

Sveinn Áki Lúðvíksson,
formaður ÍF

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 29. desember 2011 17:33
Jón Margeir í 2. sæti í kjöri íþróttamanns ársins hjá Reykjavík síðdegis

Annie Mist Þórisdóttir Crossfit keppandi var í gær valin Íþróttamaður ársins hjá lesendum Vísir.is og hlustendum Bylgjunnar en kjörið var kunngjört í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson hafnaði í 2. sæti en hann var fyrr í desembermánuði valinn íþróttamaður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra annað árið í röð.

Niðurstaða kosningar hlustenda Bylgjunnar og lesenda á Vísir.is:

1. Annie Mist Þórisdóttir Crossfit keppandi
2. sæti Jón Margeir Sverrisson sundmaður hjá Fjölni
3. sæti Heiðar Helguson knattspyrnumaður hjá QPR

Aðeins einn af þessum þremur upptöldu íþróttamönnum hér að ofan er á topp tíu lista Samtaka Íþróttafréttamanna fyrir Íþróttamann ársins 2011 og er það Heiðar Helguson.

 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 26. desember 2011 02:18
Gleðileg jól
 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 19. desember 2011 11:16
Jón Margeir afreksmaður Fjölnis 2011

Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson sópar til sín verðlaununum þessi dægrin. Í desemberbyrjun var Jón valinn Íþróttamaður ársins hjá ÍF og í síðstu viku var hann valinn afreksmaður Fjölnis árið 2011.

Jón er í fantaformi um þessar mundir svo tekið er eftir og undirbýr kappinn sig nú af krafti fyrir Ólympíumót fatlaðra í London 2012 þar sem hann hyggur á keppni í sundi þroskahamlaðra (flokkur S14).

Hér má sjá frétt Fjölnismanna um málið

Til hamingju Jón Margeir!

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 15. desember 2011 15:15
Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga 2012

Sunnudaginn 8. janúar 2012 fer fram Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga í innilauginni í Laugardal. Upphitun hefst kl. 14:00 og keppnin kl. 15:00. Þátttökurétt á mótinu hafa þeir sem eru 17 ára á árinu eða yngri.
 
Skráningargögn hafa þegar verið sendi til aðildarfélaga ÍF en sé nánari upplýsinga óskað er hægt að hafa samband við skrifstofu í síma 514 4080 eða á if@isisport.is
 
Keppnisgreinar mótsins (25m. laug):
 
1. grein 50 m baksund kk                            
2. grein 50 m baksund kvk
3. grein 50 m bringusund kk                      
4. grein  50 m bringusund kvk
5. grein  25 m frjáls aðferð kk                    
6. grein  25 m frjáls aðferð kvk
7. grein  50 m frjáls aðferð kk                    
8. grein  50 m frjáls aðferð kvk
9. grein  50 m flugsund kk                          
10. gein  50 m flugsund kvk

Mynd/ Kolbrún Alda Stefánsdóttir vann besta afrekið á Nýárssundmótinu 2011 og hlaut fyrir vikið Sjómannabikarinn eftirsótta.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 7. desember 2011 17:13
Kolbrún Alda og Jón Margeir íþróttafólk ÍF 2011

Íþróttafólk fatlaðra 2011, Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir

Íþróttasamband fatlaðra hefur útnefnt þau Jón Margeir Sverrisson Ösp/Fjölni og Kolbrúnu Öldu Stefánsdóttur Firði/SH íþróttafólk ársins 2011. Jón og Kolbrún synda bæði í flokki S14, flokki þroskahamlaðra. Þetta er annað árið í röð sem Jón Margeir hlýtur nafnbótina íþróttamaður ársins en í fyrsta sinn sem Kolbrún hlýtur titilinn.

Bæði Jón og Kolbrún eiga glæsilegt ár að baki í sundlauginni, Jón með fjögur heimsmet og 41 Íslandsmet og Kolbrún með 10 Íslandsmet. Framundan hjá þessu öfluga íþróttafólki er undirbúningur og keppni þar sem allir líta nú til Ólympíumóts fatlaðra sem fram fer í London á næsta ári.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 6. desember 2011 18:10
Opin kynning á gönguþjarka frá Ekso Bionics

Eyþór Bender forstjóri Ekso Bionics og Amanda Boxtel notandi gönguþjarka fyrir lamaða munu kynna búnaðinn í Hörpu þann 8. desember næstkomandi kl. 15:00.

 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 5. desember 2011 15:11
Endurnýjað samstarf Radisson Blu Hótels Sögu og ÍF

Nýlega endurnýjuðu Íþróttasamband fatlaðra og Radisson Blu Hótel Saga með sér samning sinn um samstarf og stuðning Hótel Sögu við starfsemi Íþróttasambands fatlaðra. Samningurinn er til tveggja ára og felur meðal annars í sér að fulltrúar sambandsins njóti ávallt hagstæðustu kjara varðandi mat og gistingu á Hótel Sögu. Þá fær Íþróttasamband fatlaðra ákveðna styrkupphæð sem greiðist í formi peninga sem og úttektar í gistingu og mat á hótelinu.

Í tilefni af undirritun samningsins sagði Sveinn Áki Lúðvíksson formaður Íþróttasambands Fatlaðra að mikil ánægja væri innan sambandsins með áframhaldandi stuðning Hótels Sögu við íþróttastarf fatlaðra hér á landi, en hótelið hafa lengi stutt sambandið t.a.m. vegna útnefningar íþróttamanns fatlaðra ár hvert auk ýmissa funda og ráðstefna sem haldnar hafa verið á vegum sambandsins. Ingunn Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og Valgerður Ómarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri sem undirrituðu saminginn fyrir hönd Hótels Sögu ásamt Sveini Áka Lúðvíkssyni formanni ÍF.

 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 30. nóvember 2011 10:43
Formannafundur ÍF 2011

Þann 11. nóvember 2011 for fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal formannafundur Íþróttasambands fatlaðra.  Fundurinn er vettvangur stjórnar ÍF og formanna aðildarfélaganna til að hittast og skiptast á skoðunum um störf og stefnu sambandsins og aðildarfélaga þess. Ágæt mæting var á á fundinn en hann sátu formenn og/eða forsvarsmenn 13 af 22 aðildarfélögum innan vébanda ÍF. 

Formaður og starfsmenn ÍF kynntu þar helstu verkefni og áherslur í starfi sambandsins ásamt því að farið var yfir lykiltölur úr reikningum og fjárhagsstöðu sambandsins.
Meðal þess sem kynnt var á fundinum var "Leiðin til London" - þátttaka Íslands í Ólympíumótinu 2012, Æskubúðir Össurar, starfsemi Special Olympics á Íslandi svo nokkuð sé nefnt. Þá var á fundinum samþykkt ný reglugerð um félagaskipti auk þess sem stjórn ÍF var falið að vinna að reglugerðabreytingum fyrir val keppenda, fararstjóra og aðstoðarfólks í ferðum á vegum sambandsins, störf kjörnefndar á Sambandsþingum svo nokkuð sé nefnt.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 28. nóvember 2011 10:32
Minnum á aðalfund GSFÍ

Við minnum á að aðalfundur Golfsamtaka fatlaðra á Íslandi verður haldinn þann 30. nóvember í D-sal kl. 18:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal miðvikudaginn 30. nóvember.

Dagskrá fundarinns:
•         Skýrsla formanns
•         Reikningar Samtakanna 2010
•         Kosning stjórnar
•         Önnur mál
 
Vonumst til að sjá sem flesta
Stjórnin
 
Minnum einnig á heimasíðu samtakana áFacebook

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 21. nóvember 2011 13:23
25 Íslandsmet féllu í Laugardal

Íslandsmót ÍF í 25m. laug fór fram um helgina í innilauginni í Laugardal. Alls féllu 25 Íslandsmet á mótinu og ljóst að fatlað íslenskt sundfólk er í fantaformi um þessar mundir.

Samtals féllu um helgina 25 Íslandsmet.

Thelma Björg Björnsdóttir  flokki S6 með 5 Íslandsmet
Hjörtur Már Ingvarsson flokki S5 með 5 Íslandsmet
Marinó Ingi Adolfsson flokki S8 með 4 Íslandsmet
Kolbrún Alda Stefánsdóttir flokki S14 með 3 Íslandsmet
Ragney Líf Stefánsdóttir flokki S10 með 3 Íslandsmet
Íva Marín Adrichem flokki S11 með 2 Íslandsmet
Pálmi Guðlaugsson flokki S7 með 1 Íslandsmet
Jón Margeir Sverrisson flokki S14 með 1 Íslandsmet
Vaka Þórsdóttir flokki S11 með 1 Íslandsmet

Íslandsmet 20. Nóvember 2011  14 Íslandmet
100 m skrið Hjörtur Már Ingvarsson  S5 1:37,01
100 m bak Hjörtur Már Ingvarsson  S5 1:58,57
200 m Skrið   Hjörtur M Ingvarsson  S5 3:26,43
100 m skrið Thelma Björg Björnsdóttir S6 1:35,91
100 m fjór  Thelma Björg Björgvinsdóttir    S6 2:15,82
100 m bak Marinó Ingi Adolfsson  S8 1:30,01
100 m fjór Marínó Ingi Adolfsson   S8 1:41,39
100 m skrið Kolbrún Alda Stefánsdóttir S14 1:09,92
200 m skrið  Ragney Líf Stefansdóttir S10 2:49,31
50 m bringa Ragney Líf Stefánsdóttir SB9 47,09
50 m bringa Íva Marín Andrichem  SB11 1:00,61
50 m bringa Jón Margeir Sverrisson  SB14 33,17
200 m Skrið  Pálmi Guðlaugsson   S7 2:49,04
100 m skrið Vaka Þórsdóttir S11 2:35,99

Íslandsmet 19. Nóvemeber   11 Íslandsmet
50 m skrið Thelma Björg Björnsdóttir  S6 44,49
200 m skrið Thelma Björg  Björnsdóttir S6 3:26,36
400 m skrið Thelma Björg Björnsdóttir S6 7:02,15
200 m fjór Hjörtur Már Ingvarsson  S5 4:16,70
50 m skrið Hjörtur Már Ingvarsson  S5 44,43
50 m skrið Kolbrún Alda Stefánsdóttir S14 31,86
400 m skrið Kolbrún Alda Stefánsdóttir S14 5:10,25
50 m bak Marinó Ingi Adolfsson  S8 42,80
400 m skrið Marinó Ingi Adolfsson   S8 6:14,91
50 m skrið Ragney Líf Stefánsdóttir S10 33,86
100 m bringa Íva Marín Adrichem   S11 2:16,05

Mynd/ Thelma Björg Björnsdóttir átti flotta helgi í lauginni og setti fimm ný Íslandsmet

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 19. nóvember 2011 18:23
Íslandsmótið í fullum gangi í Laugardal

Íslandsmót ÍF í 25m. laug er hafið í innilauginni í Laugardal og var það Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF sem bauð tæplega 80 keppendur velkomna á mótið frá 10 aðildarfélögum.

Keppt verður til c.a. 18 í dag og svo hefst keppni aftur á morgun, seinni mótsdegi, kl. 10.00.

Hér má sjá stutt myndband frá 50m. skriðsundi í morgun en við kíktum aðeins ofan í laugina og fengum sjónarhorn sundmannsins á mótið.

Mynd/ Vilhelm Hafþórsson frá Sundfélaginu Óðni á Akureyri átti magnaða rimmu við Jón Margeir Sverrisson úr Fjölni í 50m. skriðsundi á upphafmínútum mótsins.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 17. nóvember 2011 16:24
Jóhann í 3.-4. sæti á Kjartansmótinu

Kjartansmót KR í borðtennis fór fram um síðustu helgi í vesturbænum þar sem Jóhann Rúnar Kristjánsson fór mikinn og hafnaði í 3.-4. sæti í 1. flokki karla. Glæsilegur árangur hjá Jóhanni.
 
Jóhann var ekki einn á ferð á mótinu en Viðar Árnason keppti einnig í 2. flokki karla og stóð sig vel. Jóhann og Viðar eru báðir hjólastólabundnir og eru einhverjir reyndustu spilarar fatlaðra í borðtennis.

Mynd/ Jóhann vakti töluverða athygli fyrir framgöngu sína á Kjartansmótinu um helgina.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 14. nóvember 2011 12:26
Íslandsmót ÍF í 25m. laug um helgina

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 25m. laug fer fram í Laugardalslaug dagana 19. og 20. nóvember næstkomandi.

Dagskrá:

Laugardagur 19. nóvember 15:00-18:00
Upphitun hefst kl. 14:00

Sunnudagur 20. nóvember 10:00-13:00
Upphitun hefst kl. 09:00

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 14. nóvember 2011 11:22
Skemmtilegar knattspyrnuæfingar fyrir stelpur 12 ára og eldri

Special Olympics á Íslandi, KSÍ, knattspyrnufélagið Víkingur og íþróttafélagið Ösp hafa sett á fót samstarfsverkefni um Unified Sport á Íslandi. Unified Sport er nýtt verkefni  hér á landi en verkefnið er á vegum Special Olympics international. Verkefnið felur í sér æfingar og keppni þar sem fatlaðir og ófatlaðir eru saman í liði.
 
Fyrsta íþróttagreinin sem sett er upp á þennan hátt er knattspyrna kvenna. Æfingar eru á vegum knattspyrnufélagsins Víkings og íþróttafélagsins Aspar og fara fram á laugardögum kl. 12.00 – 13.30 á knattspyrnusvæði Víkings. Þjálfarar eru Einar Guðnason, þjálfari hjá Víkingi og Darri McMahon, þjálfari hjá Ösp.

Stelpur og konur með þroskahömlun, vinkonur, systur, skólasystur eða aðrar stelpur sem áhuga hafa á að vera með eru velkomnar á æfingar.   Stúlkur úr knattspyrnufélaginun Víkingi eru með á æfingunum sem eru fyrir 12 ára og eldri.

Nánari upplýsingar veitir Anna Karólína
V.s: 514 4083
annak@isisport.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 11. nóvember 2011 16:25
ÍF fundaði með styrktar- og samstarfsaðilum

Þann 2. nóvember síðastliðinn bauð Íþróttasamband fatlaðra í samvinnu við Radisson Blu Saga Hotel samstarfsaðilum sínum til hádegisverðarfundar þar sem ,,Leiðin til London“ – þátttaka Íslands í Ólympíumóti fatlaðra var kynnt.

Ian Whitting sendiherra Breta á Íslandi var viðstaddur fundinn en hann hefur verið sérlega áhugasamur um undirbúning Íslands fyrir leikana á næsta ári. Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF og Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF fóru yfir málin með fundargestum og þá tóku landsliðsþjálfararnir einnig til máls en það voru þau Kári Jónsson landsliðsþjálfari ÍF í frjálsum og þau Ingi Þór Einarsson og Kristín Guðmundsdóttir landsliðsþjálfarar ÍF í sundi.

Mynd/ Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF ásamt Valgerði Ómarsdóttur sölu og markaðsstjóra Radisson Blu Saga Hotel.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 8. nóvember 2011 12:45
ÍF og Icelandair endurnýja samstarfssamning sinn

Nýlega endurnýjuðu Icelandair og Íþróttasamband fatlaðra samstarfssamning um ferðir íþróttafólks sambandsins á flugleiðum Icelandair.

Samningurinn, sem gildir til eins árs, felur meðal annars í sér að allt íþróttafólk og aðrir sem ferðast á vegum sambandsins til og frá Íslandi fljúgi með Icelandair á hagstæðustu fargjöldum sem bjóðast. Einnig fær Íþróttasamband fatlaðra ákveðna styrktarupphæð árlega greidda inn á viðskiptareikning sinn auk gjafabréfa í hlutfalli viðskipta sinna við Icelandair.

Icelandair hefur í gegnum tíðina verið öflugur bakhjarl íþrótta á Íslandi og hefur  Íþróttasamband fatlaðra notið góðs af því.  Þannig hefur Icelandair allar götur síðan 1994 verið einn af aðalsamstarfs og stuðningsaðilum Íþróttasambands fatlaðra og þannig gert fötluðu íþróttafólki kleift að halda hróðri Íslands á lofti víða um heim.

Mynd/ Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF og Þorvarður Guðlaugsson svæðisstjóri Icelandair á Íslandi handsala nýja samninginn.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 3. nóvember 2011 16:37
Golfæfingar í Hraunkoti

Jóhann Hjaltason stýrir golfæfingum fyrir fatlaða í Hraunkoti á þriðjudagskvöldum kl. 19.30. Hraunkot er við Hvaleyrarvöll í Hafnarfirði og eru allir velkomnir.

Farið er yfir undirstöðuatriði íþróttarinnar á æfingunum og á næstunni er fyrirhugað að standa að púttmóti sem verður nánar auglýst síðar.

Allar nánari upplýsingar um golfæfingarnar má nálgast á oliragnars@internet.is

GSFÍ á Facebook

Mynd/ Frá Special Olympics í Grikklandi síðasta sumar

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 1. nóvember 2011 16:11
Ösp stóð að boccianámskeiði fyrir áhugasama eldri borgara

Námskeið var haldið 29. október af Íþróttafélaginu Ösp fyrir félaga í Áhugamannafélagai um íþróttir eldri borgara um hvernig boccia sé spilað. Um 40 eldri borgarar mættu á kynninguna og var það fólk frá Reykjavík, Akranesi, Borgarnesi, Mosfellsbæ, Garðabæ og Keflavík.

Leiðbeinendur voru Kalli, Olli og Guðbjörg.


 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 31. október 2011 12:08
Opnar æfingabúðir ÍF í sundi og sundkynning ÍF og Össurar

Helgina 5.-6. nóvember næstkomandi fara fram opnar æfingabúðir ÍF í sundi ásamt þriðju íþróttakynningu ÍF og Össurar fyrir fötluð ungmenni 13 ára og yngri. Gestum við íþróttakynninguna mun gefast kostur á að sjá og hitta fremsta sundfólk landsins úr röðum fatlaðra. Æfingabúðirnar og íþróttakynningin munu fara fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði.

Þegar hafa tvær íþróttakynningar á vegum ÍF og Össurar farið fram fyrir fötluð ungmenni 13 ára og yngri. Búið er að kynna frjálsar íþróttir og boltagreinar og nú er komið að sundíþróttinni sem kynnt verður laugardaginn 5. nóvember á milli kl. 14:30 og 15:30. Þeir sem mæta við kynninguna skulu hafa sundfötin meðferðis. Þá minnum við á að þegar eru hafnar frjálsíþróttaæfingar fyrir fötluð ungmenni 13 ára og yngri undir stjórn Ingólfs Guðjónssonar á þriðjudögum og fimmtudögum í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal frá kl. 19-20.

Þeir sem hyggja á mætingu þessa helgina við opnu æfingabúðirnar þurfa að geta synt hjálpartækjalaust og getað klárað æfingu sem er 60-120 mín löng (þetta gildir ekki fyrir þá sem sækja Íþróttakynningu ÍF og Össurar). Þjálfarar frá aðildarfélögum (fatlaðra/ófatlaðra) eru hvattir til að mæta með iðkendum sínum.

Opnu æfingabúðirnar fara fram á eftirfarandi tímum og eru allir velkomnir:

Ásvallalaug

Laugardagur 5. nóvember:
08.00-10.00 
Hlé
14.00-16.00 (14.30-15.30 = Íþróttakynning ÍF og Össurar í sundi)

Sunnudagur 6. nóvember
09.00-11.00

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 26. október 2011 16:27
Jón bíður staðfestingar á tveimur heimsmetum!

Extra-Stórmót SH í 25m. laug fór fram í Hafnarfirði um síðustu helgi þar sem sundmennirnir Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir létu vel að sér kveða. Jón og Kolbrún keppa bæði í flokki S14, flokki þroskahamlaðra.

Laugardagur 22. október:
Jón Margeir synti á nýju og glæsilegu Íslandsmeti í 1500m. skriðsundi á tímanum 16:47,98 mín. og er beðið staðfestingar á heimsmeti! Þá var millitími Jóns í 800m. skriðsundi einnig nýtt Íslandsmet og á millitímanum er einnig beðið staðfestingar á heimsmeti. Þriðja Íslandsmetið var í sama sundi og var það millitíminn í 400m. sem var 4:24,79 mín. og þá var tíminn í 800m. 8:55,89 mín.

Sunnudagur 34. október:
Í 100m. skriðsundi synti Kolbrún Alda Stefánsdóttir á nýju Íslandsmeti, 1:10,21mín. Þennan seinni keppnisdag synt Jón í 400m. skriðsundi kom þá í bakkann á nýju Íslandsmeti, 4:18,47mín.

Glæsilegur árangur hjá Kolbrúnu og Jóni um helgina, til hamingju!

Mynd/ Jón Margeir Sverrisson hefur verið í fantaformi upp á síðkastið.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 24. október 2011 15:32
Jói í 9.-12. sæti í Króatíu

Jóhann Rúnar Kristjánsson keppti um helgina á Evrópumeistaramótinu í borðtennis sem fram fór í Króatíu. Jói keppir í flokki MS2 eða í sitjandi flokki 2. Jóhann gerði vel og komst upp úr riðlinum sínum með einum sigri og einum tapleik.

Í fyrsta leik lá Jóhann gegn Frakkanum Stephane Molliens sem í dag leikur til úrslita um Evrópumeistaratitilinn. Í öðrum leiknum vann hann Ítalann Federico Corsara 3-2 og komst upp úr riðlinum.

Í útsláttarkeppninni eftir riðlakeppnina mættust Jóhann og Fabien Lamirault þar sem Lamirault hafði betur eftir mikinn slag en hann hefur þegar tryggt sér bronsverðlaun á mótinu.

Jóhann er væntanlegur aftur til landsins á miðvikudag.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 24. október 2011 11:31
Fimm Íslandsmet á Norðurlandamótinu

Norðurlandamót fatlaðra í sundi fór fram í Finnlandi um helgina þar sem Ísland telfdi fram vöskum hópi sundmanna. Alls 13 íslenskir sundmenn létu til sín taka á mótinu og fimm ný Íslandsmet litu dagsins ljós.

Á laugardeginum setti Guðmundur Hermannsson nýtt Íslandsmet í 50m. baksundi í flokki S9 á tímanum 41,91 sek. Ragney Líf Stefánsdóttir setti Íslandsmet í 50m. baksundi í flokki S10 á 41,13 sek. Thelma Björg Björnsdóttir synti einnig á nýju Íslandsmeti í 100m. skriðsundi í flokki S6 á tímanum 1.37,40mín. og fjórða Íslandsmetið á laugardeginum átti Eyþór Þrastarson í flokki S11 á tímanum 38,56 sek. í 50m. baksundi.

Á mótinu kepptu allir fötlunarflokkar saman og verðlaun voru gefin miðað við stig hvers sundmanns, þ.e. heildarstigafjölda á tíma hvers sundmanns miðað við gildandi heimsmet í flokknum.

Verðlaunahafar laugardagsins:
Vilhelm Hafþórsson gull í 200 skrið, silfur í 100 skrið, brons í 100 flug.
Antíta Hrafnsdóttir silfur í 200 skrið.
Guðmundur Hermannsson silfur í 400 skrið.

Eitt Íslandsmet féll á sunnudeginum en það setti Thelma Björg Björnsdóttir og því var hún með tvö ný Íslandsmet í flokki S6 um helgina. Metið á sunnudag setti Thelma í 50m. skriðsundi á tímanum 44,67 sekl. Þá fékk íslenski hópurinn tvenn gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og þrjú bronsverðlaun í gær.

Íslenski hópurinn á NM 2011:

Eyþór Þrastarson
Bjarnar Þór Jónsson
Bjarndís Sara Breiðfjörð
Guðmundur H. Hermannsson
Hjörtur Már Ingvarsson
Ragnar Ingi Magnússon
Ragney Líf Stefánsdóttir
Sonja Sigurðardóttir
Vilhelm Hafþórsson
Thelma Björg Björnsdóttir
Aníta Ósk Hrafnsdóttir
Anna Kristín Jensdóttir
Pálmi Guðlaugsson

Úrslit mótsins má nálgast hér

Til hamingju með árangurinn!

Mynd/ Guðmundur Hermannsson á Erlingsmótinu fyrr í þessum mánuði

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 20. október 2011 11:55
Myndasafn: Ulf og Hörður sterkustu fötluðu menn heims

Dagana 7. og 8. október fór keppnin ,,Sterkasti fatlaði maður heims“ fram. Keppt var við Fjörukrána í Hafnarfirði og inni í íþróttahúsi ÍFR að Hátúni í Reykjavík. Hörður Árnason varð hlutskarpastur í standandi flokki og Ulf Erikson í sitjandi flokki og eru kapparnir því sterkustu fötluðu menn heims.

Myndarlega var sem fyrr staðið að mótinu, á föstudeginum fengu keppendur brakandi blíðu í Hafnarfirði en á laugardeginum fóru veðurguðirnir að derra sig og var mótið þá flutt inn í íþróttahús ÍFR.

Myndasafn frá mótinu má nálgast inni á www.123.is/if
Hér má svo nálgast heildarúrslit mótsins

Mynd/ Hörður Árnason í hrikalegum átökum við Fjörukrána í bíldrættinum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 19. október 2011 16:13
Jóhann á leið til Króatíu

Borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson hélt í morgun af stað til Króatíu þar sem Evrópumeistaramót fatlaðra í borðtennis mun fara fram. Með Jóhanni í för er Kristján Aðalbjörn Jónasson borðtennisþjálfari hjá ÍFR.

Jóhann keppti á opna breska meistaramótinu í síðasta mánuði ásamt þeim Tómasi Björnssyni og Viðari Árnasyni. Eins og flestum er kunnugt hefur Jóhann gert víðreist síðustu mánuði og ár en hann er einn okkar fremsti afreksmaður í íþróttum fatlaðra og freistar þess að vinna sér inn sæti á Ólympíumóti fatlaðra í London á næsta ári.

 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 19. október 2011 14:34
Æfingabúðir ÍF í frjálsum íþróttum: Opinn tími, allir velkomnir

Föstudaginn 11. nóvember og laugardaginn 12. nóvember fara fram æfingabúðir ÍF í frjálsum íþróttum. Á laugardeginum verður opin æfing frá kl. 09.00-11.00 þar sem allir 14 ára og eldri eru velkomnir til æfingarinnar.

Landsliðsþjálfarar ÍF í frjálsum munu boða frjálsíþróttafólk í búðirnar og gefst öllum tækifæri á laugardagsmorgninum á því að æfa með þeim bestu í röðum fatlaðra.

Nánari upplýsingar fást á if@isisport.is

Mynd/ Frá æfingabúðum ÍF í frjálsum á síðasta tímabili

 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 18. október 2011 16:51
Boltadagurinn tókst vel í alla staði: Sundkynning næst á dagskrá

Önnur íþróttakynning ÍF og Össurar fór fram síðastliðinn föstudag í Laugardalshöll en þá var haldinn boltadagur. Um 20 ungmenni 13 ára og yngri nýttu tækifærið og spreyttu sig í hinum ýmsu boltagreinum.

Dagurinn heppnaðist í alla staði vel þar sem um 40 nemendur við Íþróttafræðabraut HÍ leiðbeindu ungmennunum undir styrkri stjórn Inga Þórs Einarssonar og Kára Jónssonar.

Hópurinn fékk einnig góðan gest þar sem Haukur Gunnarsson einn af fyrstu afreksmönnum Íslands í röðum fatlaðra mætti með verðlaunagripi sína frá hinum ýmsu stórmótum.

Fyrirhugað er að halda íþróttakynningunum áfram og í næstu kynningu sem áætluð er þann 5. nóvember verður sunddagur. Nánari upplýsingar um þann kynningardag verða birtar síðar.

Í lok boltadagsins eftir miklar og skemmtilegar æfingar og leiki fékk hópurinn sér Svala og Össur gaf öllum sem mættu Össurar-buff.

Mynd/ Frá boltadegi ÍF og Össurar

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 13. október 2011 14:32
Erlingsbikarinn afhentur í fyrsta skipti um síðustu helgi

Erlingsmótið í sundi fór fram laugardaginn 8. októtber síðastliðinn. Mótið var haldið í minningum um Erling Þ. Jóhannsson sundþjálfara hjá ÍFR sem lést á síðasta ári. Hrafnhildur Hámundardóttir ekkja Erlings gaf bikar til mótsins. Keppni um bikarinn fór þannig fram að þrír hreyfihamlaðir, tveir þroskahamlaðir og þrír ófatlaðir kepptu í 100 m bringusundi. Keppendur voru ræstir þannig að sá sem átti besta tímann var ræstur síðastur. Sigurvegari var Anna Kristín Jensdóttir ÍFR. Alls voru sett átta Íslandsmet á mótinu.

Íslandsmet á mótinu:
Marinó Ingi Adolfsson 50 m baksund 0:44,68
Guðmundur H. Hermannsson 50 m baksund 0:44,14
Ragney Líf Stefánsdóttir 50 m baksund 0:43,89
Thelma Björg Björnsdóttir 200 m skriðsund 3:25,86
Ragney Líf Stefánsdóttir 200 m skriðsund 2:57,30
Ragney Líf Stefánsdóttir 50 m bringusund 0:46,73
Marinó Ingi Adolfsson 100 m baksund 1:33,47
Vaka R. Þórsdóttir 50 m skriðsund 1:10,95

Úrslit mótsins

Mynd/ www.ifr.is - Anna K. Jensdóttir með Erlingsbikarinn 2011

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 11. október 2011 16:59
Ösp stendur að skautaæfingum fyrir fatlaða

Síðastliðinn sunnudag, 9. október, hófst tíu vikna skautnámskeið hjá Öspinni. Æfingarnar fara fram í Skautahöllinni í Laugardal. Kennt verður eftir alþjóðlegum áfangamarkmiðum Special Olympics.

Helga Olsen er kennari á námskeiðinu en nánari upplýsingar má nálgast hjá henni á olsen.helga@gmail.com og á www.ospin.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 11. október 2011 10:33
Íþróttakynningar ÍF og Össurar halda áfram: Boltadagurinn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Íþróttakynningar Íþróttasambands fatlaðra og Össurar halda áfram en þann 14. október næstkomandi munu ÍF og Össur standa saman að boltadegi þar sem kynntar verða hinar fjölmörgu boltagreinar. Kynningin fer fram í gamla sal Laugardalshallar frá kl. 18-20.

Þetta samstarfsverkefni ÍF og Össurar hefur þegar borið ávöxt en á vormánuðum var staðið að íþróttakynningu á frjálsum íþróttum og hefur hluti þess hóps sem mætti á kynninguna þegar hafið æfingar í frjálsum undir stjórn Ingólfs Guðjónssonar á æfingatímum Íþróttafélagsins Aspar. Þá tók hluti hópsins einnig þátt í Íslandsmóti ÍF í frjálsum utanhúss í júní síðastliðnum.

Meðal greina sem kynntar verða eru knattspyrna, sitjandi blak, körfuknattleikur, brennó og badminton svo fátt eitt sé nefnt. Við fáum góða gesti í heimsókn á kynninguna en okkur til halds og trausts verða þeir Ingi Þór Einarsson og Kári Jónsson. Ingi Þór er formaður sundnefndar ÍF og aðjunkt við Íþróttafræðadeild Háskóla Íslands og Kári er landsliðsþjálfari ÍF í frjálsum íþróttum og lektor við Íþróttafræðadeild HÍ. Fjöldi nemenda þeirra Inga og Kára við HÍ verður einnig til aðstoðar við framkvæmd boltadagsins.

Íþróttakynningarnar eru fyrir öll börn með fötlun á aldrinum 13 ára og yngri en verkefnið er liður í að fjölga íþróttaiðkendum í þessum aldurshópi fatlaðra.

Boltadagurinn verður föstudaginn 14. október eins og áður greinir frá kl. 18.00-20.00.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 10. október 2011 15:44
Úrslit Íslandsmótsins í Eyjum

Íslandsmót  ÍF í einstaklingskeppni í boccia í Vestmannaeyjum gekk mjög vel um síðastliðna helgi en umsjónaraðili mótsins var íþróttafélagið Ægir. 220 keppendur tóku þátt í mótinu en keppni er deildaskipt. Keppt var í 7 deildum þar sem keppendur geta unnið sig upp um deild.  Auk deildakeppni eru sérflokkar fyrir mikið hreyfihamlaða keppendur. Í rennuflokki er notuð sérhönnuð renna til að koma boltum á völlinn og í flokki BC1-4 eru keppendur með skerta kastgetu sem ekki þurfa að  nota kastrennu.

Aðstaða til keppni var mjög góð en keppt var á 18 völlum í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum.  Framkvæmd og skipulag mótsins var til fyrirmyndar og  íþróttafélagið Ægir fékk jákvæð viðbrögð við ósk um aðstoð heimamanna vegna dómgæslu á mótinu.  Markmið með því að halda þessi Íslandsmót í heimabyggð aðildarfélaga ÍF er að vekja athygli á starfsemi aðildarfélaga ÍF á hverjum stað og gildi þess að aðgengi fyrir alla sé tryggt.

Íþróttasamband fatlaðra óskar Eyjamönnum til hamingju með glæsilegt mót og óskar íþróttafélaginu Ægi velfarnaðar í sínu öfluga starfi.

Úrslit;

U flokkur
1. Ólafur Ólafsson, Ösp
2. Sigríður Jósepsdóttir, Akri
3. Birgir Sigurjónsson,  Ægir

Rennuflokkur
1. Árni Sævar Gylfason, Ösp
2. Þórey Rut Jóhannesdóttir, ÍFR
3. Sigrún Sól Eyjólfsdóttir, ÍFR

BC 1 – 4
1. Aðalheiður B. Steinsdóttir, Gróska
2. Hulda Klara Ingólfsdóttir, Ösp
3. Kristín Jónsdóttir, Ösp

Deild 1
1. Arnar Már Ingibjörnsson, Nes
2. Konráð Ragnarsson, Nes
3. Kristbjörn Óskarsson, Völsungi

Deild 2
1. Sigurrós Karlsdóttir, Akri
2. Haukur Gunnarsson, ÍFR
3. Einar Sch. Thorsteinsson, Ösp

Deild 3
1. Baldur Æ Baldursson, Snerpu
2. Guðni Davíð Stefánsson, Ægi
3. Svava Vilhjálmsdóttir, Akri

Deild 4
1. Guðjón Hraunberg Björnsson, Ívar
2. Jakob B.Ingimundarson, ÍFR
3. Anna Kristinsdóttir, Snerpu

Deild 5
1. Adam Ingvarsson, ÍFR
2. Sóley S Valsdóttir, Nes
3. Sævar Bergsson, Eik

Deild 6
1. Dagur Már Jóhannsson, Völsungi
2. Gunnar Karl Haraldsson, Ægi
3. Reynir Karl Hall, ÍFR

Deild 7
1. Almar Þorsteinsson, Suðra
2. Anton Kristjánsson, Þjóti
3. Jóhanna Þ. Eiríksdóttir, Ösp

Mynd/ Sigurvegarar í 4. deild ásamt Kristínu Ósk formanni Ægis sem er lengst til vinstri á myndinni.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 9. október 2011 14:02
Kynning á sleðahokkí í Egilshöll

Skautafélagið Björninn verður í dag kl. 14.00 í Egilshöll með kynningu á sleðahokkí. Billy Bridges landsliðsmaður Kanada í sleðahokkí verður á staðnum og leiðbeinir. Allir eru hvattir til að fjölmenna enda kjörið tækifæri til að kynnast nýrri og skemmtilegri íþrótt.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 6. október 2011 13:29
Mótaskrá Íslandsmótsins í Eyjum

Íslandsmótið í einstaklingskeppni í boccia fer fram í Vestmannaeyjum um helgina og sem fyrr er von á hörku keppni og léttleikandi andrúmslofti. Liðsmenn Ægis í Vestmannaeyjum hafa staðið sig vel í undirbúningi mótsins en nú má finna mótaskrá keppninnar á netinu.

Mótaskrá ÍM í einstaklingskeppni í boccia 2011

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 5. október 2011 16:00
Jóni og Kolbrúnu fagnað í Leifsstöð

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sundmennirnir Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir komu til Íslands í gær eftir vaska frammistöðu á Global Games á Ítalíu. Með þeim í för voru Helena Hrund Ingimundardóttir sundþjálfari og Ingi Þór Einarsson formaður sundnefndar ÍF og annnar tveggja landsliðsþjálfara ÍF í sundi.

Það var Jóhann Arnarson meðlimur í stjórn Íþróttasambands fatlaðra sem tók á móti hópnum í Leifsstöð í gær og afhenti ferðalöngunum forláta blómvendi.

Mynd frá vinstri: Helena Hrund Ingimundardóttir, sundþjálfari, Kolbrún Alda Stefánsdóttir, sundmaður, Jón Margeir Sverrisson, sundmaður, Ingi Þór Einarsson landsliðsþjálfari og Jóhann Arnarson stjórnarmaður ÍF.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 3. október 2011 00:05
Jón lauk keppni á Global Games með gullverðlaunum

Íslensku keppendurnir á Global Games þau Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir hafa nú lokið þátttöku í mótinu. Jón synti sína síðustu grein í dag þar sem hann vann til gullverðlauna!

Jón keppti í 1500m. skriðsundi þar sem hann kom í bakkann á tímanum 17:28,99 mín. og bætti þar með sitt eigið Íslandsmet um 24,9 sekúndur! Frábær árangur hjá kappanum.

Jón og Kolbrún stóðu sig með mikilli prýði ytra, Jón vann til tveggja silfurverðlauna og svo gullverðlauna en Kolbrún var að bæta sig en bæði stefna hraðbyr að þátttöku í Ólympíumóti fatlaðra sem fram fer í London á næsta ári.

Fjölda mynda frá Global Games má finna á Facebook-síðu ÍF en Sverrir Gíslason var staddur ytra og tók meðfylgjandi mynd þar sem Jón tók við gullverðlaununum í dag.

 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 3. október 2011 10:36
Annað silfur hjá Jóni

Um helgina landaði Jón Margeir sínum öðrum silfurverðlaunum í sundi á Global Games sem nú standa yfir á Ítalíu. Þá var Kolbrún Alda í lauginni í morgun og Jón keppir í 1500m. skriðsundi síðar í dag.

Í gær tóku Jón og Kolbrún þátt í undanrásum í 100m. baksundi og höfnuðu bæði í 15. sæti og komust því ekki í úrslit. Jón synti á tímanum 1.13,76mín. og Kolbrún á 1.28,41mín.

Í 100m. skriðsundi synti Jón á 57,35 sek. í undanrásum en svo á 57,00 í úrslitum sem er skammt frá Íslandsmeti hans, 56,97 sek. Þessi tími dugði Jóni til silfurverðlauna og voru þetta hans önnur silfurverðlaun á mótinu.

Kolbrún Alda hafnaði í 5. sæti í 100m. skriðsundi á tímanum 1.10,69 mín. og bætti hún sig um rúma sekúndu frá því í úrslitum um morguninn. Kolbrún er þá farin að gera verulega atlögu að Íslandsmetinu í 100m. skriðsundi í flokki S14 en það á Karen Björg Gísladóttir á tímanum 1.09,43 mín.

Kolbrún keppti svo í 50m. baksundi í morgun og bætti tímann sinn, varð í 9. sæti og því ekki í úrslitum síðdegis nema einhver skrái sig út. Jón Margeir keppir í 1500m skriðsundi síðdegis.

Mynd/ Sverrir Gíslason: Jón Margeir fær afhent silfurverðlaunin fyrir árangur sinn í 100m. skriðsundi í gær.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 2. október 2011 12:40
Jón með silfur í 400m. skriðsundi

Jón Margeir Sverrisson vann til silfurverðlauna á Global Games á Ítalíu í gær í 400m. skriðsundi er hann kom í bakkann á nýju og glæsilegu Íslandsmeti!

Í gærmorgun setti hann einnig nýtt Íslandsmet í greininni sem hann bætti svo um 5,5 sekúndur í úrslitum í gærkvöldi þegar hann synti á tímanum 4:24,08mín. Kolbrún Alda Stefánsdóttir synti einnig í úrslitum í sömu grein í flokki kvenna og hafnaði í 5. sæti í á nýju Íslandsmeti 5:16,31 sek. Hún bætti því Íslandsmetið sem hún setti í undanrásum í gær um 4,6 sekúndur.

Mynd/Sverrir Gíslason: Jón Margeir með silfurverðlaunin og Ingi Þór landsliðsþjálfari sýnir okkur hér snyrtilega hvar þau eru.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 1. október 2011 13:54
Jón og Kolbrún bæði í úrslit á nýjum Íslandsmetum!

Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir munu taka þátt í úrslitum 400m. skriðsundsins í kvöld á Global Games á Ítalíu. Bæði settu þau ný og glæsileg Íslandsmet í greininni í flokki S14 þegar keppt var í undanrásum í morgun.

Jón synti á 4:29,61mín. en Kolbrún á 5:20,99mín. Úrslitin hefjast svo síðar í dag en á Facebook-síðu ÍF hefur Sverrir Gíslason sett inn nokkrar myndir frá undanrásunum í morgun.

Mynd/ Sverrir Gíslason: Jón Margeir í undanrásum í 400m. skriðsundi á Ítalíu.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 30. september 2011 12:36
Kolbrún sjötta í 200m. skriðsundi

Í gærkvöldi synti Kolbrún Alda Stefánsdóttir til úrslita í 200m. skriðsundi á Global Games á Ítalíu. Leikarnir eru Heimsleikar íþróttamanna með þroskahömlun og eru Kolbrún og Jón Margeir Sverrisson fulltrúar Íslands á mótinu.

Kolbrún var áttunda inn í úrslit á tímanum 2:30,83 mín. sem er nýtt Íslandsmet en í úrslitunum í gær synti hún á 2:30,97 mín. og hafnaði í 6. sæti. Kolbrún og Jón frá frí í dag en á morgun keppa þau bæði í 400m. skriðsundi.

Mynd/ Sverrir Gíslason: Kolbrún ásamt Inga Þór Einarssyni landsliðsþjálfara og formanni sundnefndar ÍF.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 29. september 2011 14:59
Kolbrún setti nýtt Íslandsmet á Ítalíu

Nú standa yfir Global Games á Ítalíu þar sem Ísland á tvo fulltrúa. Í morgun keppti Kolbrún Alda Stefánsdóttir úr Firði í undanrásum í 50m. skriðsundi og 200m. skriðsundi. Kolbrún bætti sig í 50m. en komst ekki í úrslit þar sem hún hafnaði í 11. sæti en nýtt Íslandsmet leit dagsins ljós í flokki S14 í 200m. skriðsundi.

Kolbrún synti þá á tímanum 2:30,83 mín. og varð áttunda og síðust inn í úrslitin sem hefjast í kvöld.

Mynd/ Sverrir Gíslason: Kolbrún Alda í lauginni á Ítalíu í morgun.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 29. september 2011 00:29
Karen, Óskar, Þórdís og Guðrún fengu bronsmerki ÍF

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Íþróttafélagið Suðri hélt 25 ára afmælishóf um síðustu helgi. Boðið var upp á afmælisköku og kaffi og sveitarstjórnir 9 sveitarfélaga auk HSK kepptu í boccia. Dómarar voru félagar úr Suðra en þeir koma frá 9 sveitarfélögum og margir koma langt að á æfingar.

Á sambandsþingi ÍF í vor var gullmerki ÍF afhent Þorbjörgu Vilhjálmsdóttur formanni Suðra og Svani Ingvarssyni fyrrverandi formanni Suðra. Fjórir hlutu hlutu um helgina bronsmerki ÍF fyrir öflugt starf í þágu Suðra en það voru hjónin Karen Öder Magnúsdóttir og Óskar Jón Hreinsson og stjórnarkonur Suðra, Þórdís Bjarnadóttir og Guðrún Linda Björgvinsdóttir.

Stjórnarfólk ÍF, Margrét Kristjánsdóttir og Ólafur Þór Jónsson afhentu merkin og gjafakort fyrir bocciasett sem var gjöf ÍF til Suðra. Sigurvegari mótsins var lið Bláskógabyggðar eftir harða keppni við Rangárþing eystra.

Mynd/ Frá afhendingu bronsmerkjanna á 25 ára afmæli Suðra.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 28. september 2011 11:27
Metaregn á Haustmóti Ármanns

Haustmót Ármanns í sundi fór fram um s.l helgi og var umgjörðin og keppnin öll til fyrirmyndar.  Það er alltaf skemmtilegt þegar fatalðir og ófatlaðir keppa hlið við hlið. Þó nokkrir fatalðir sundiðkendur tóku þátt í mótinu og komu þau frá ÍFR, Fjölni og SH.
Þáttaka fatlaðra sundmanna á mótum ófatlaðra er orðinn fastur liður í dag og er alltaf jafnmikill ánægja með þáttöku þeirra í hinum almennu mótum.
 
Eftir 6.vikna æfingaferli hjá þeim flestum er gott að sjá hvar þau standa í líkamlegu formi og hverju æfingarnar hafa skilað og voru öll að skila bættum árangri á mótinu. 

Sum voru að synda langsundsgreinar í fyrsta skipti og þar var stuðningur að hafa fullar brautir af sundfólki eins og í 800.metra og 1500.metra skriðsundinu stuðningur við þau fötluðu.

Sundmenn ÍFR, þau Thelma Björg Björnsdóttir og Marinó Ingi Adolfsson og Jón Margeir Sverrisson í Fjölni slógu hvert Íslandsmetið á fætur öðru.  Eftirfarandi met féllu í mótshluta 1 og 3 og óskum við þessum fræknu sundmönnum hjartanlega til hamingju með árangurinn:

Jón Margeir Sverrisson Fjölni, sem syndir í fötlunarflokk S14, setti 3 Íslandsmet:
400m skriðsund á tímanum 4:26,86
800m skriðsund á tímanum 8:59,21
1500m skriðsund á tímanum 17:01,17

Marinó Ingi Adolfsson, ÍFR sem syndir í fötlunarflokk S8, setti 4 Íslandsmet:
50m flugsund á tímanum 48,79
50m baksund á tímanum 43,55
1500m skriðsund á tímanum 24:03,61
200m baksund á tímanum 3:17,87

Thelma B. Björnsdóttir, ÍFR sem syndir í fötlunarflokk S6 setti 2 Íslandsmet:
800m skriðsund á tímanum 14:36,26
400m skriðsund á tímanum  7:13,29

Mynd/ Marinó Ingi var funheitur í lauginni um síðustu helgi.

Björn Valdimarsson Sundnefnd ÍF

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 27. september 2011 16:58
Sterkasti fatlaði maður heims

Dagana 7. og 8. október 2011 verður  haldið heimsmeistaramót í aflraunum fatlaðra í Reykjavík. Þetta er í áttunda skiptið sem mótið er haldið á Íslandi.

Mótið verður haldið 7. okt. á Fjörukránni í Hafnarfirði og 8. okt. við íþróttahús fatlaðra að Hátúni 14.

Verðlaunaafhending fer fram í íþróttahúsi ÍFR að móti loknu.
Keppt verður í tveimur flokkum:
Flokki hjólastóla og flokki standandi.
Þroskaheftum er heimil þátttaka í báðum flokkum.
Keppt verður í átta keppnisgreinum í flokki hjólastóla og fimm keppnisgreinum í flokki standandi, alls 6 keppnisgreinar.
Keppt verður í að draga hönd yfir hönd, drumbalyftu, bóndagöngu, steinatökum, Herkúlesarhaldi og hleðslugrein.

Allar nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu ÍFR: http://www.ifr.is
Mótið verður sýnt í sérstökum þætti á RÚV árið 2011
Nánari upplýsingar fást hjá skipuleggjendum.

Arnar Már Jónsson þjálfari ÍFR
E-mail
loggurinn@hotmail.com
Sími 868-6823

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 26. september 2011 11:38
Íslandsleikar í frjálsum: Myndasöfn og fleira

Íslandsleikar Special Olympics í frjálsum íþróttum fóru fram á dögunum í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Góð mæting var í mótið og ekki að sjá á hópnum að tímabilið væri nýbyrjað.

Heimasíða ÍF tók upp nokkrar svipmyndir frá mótinu

Á heimasíðu ÍF er einnig hægt að nálgast úrslit mótsins og á myndasíðu okkar á www.123.is/if er að finna ljósmyndasafn frá mótinu.

Björn Ingvarsson tók einnig skemmtilegar myndir á mótinu sem nálgast má hér:
https://picasaweb.google.com/102903524231887150377/IFKastmotOgIslandsleikarSO

Mynd/ Nes-liðar tóku á því í kúluvarpinu

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 21. september 2011 10:53
Jón Margeir og Kolbrún keppa á Global Games: Jón stefnir á heimsmet

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Ísland sendir tvo fulltrúa á Global Games sem fram fara á Ítalíu dagana 24. september – 4. október næstkomandi. Sundmennirnir Jón Margeir Sverrisson Ösp/Fjölnir og Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Fjörður, verða fulltrúar okkar ytra en með þeim í för verða Ingi Þór Einarsson og Helena Hrund Ingimundardóttir.

Jón Margeir keppir í 50, 100, 200, 400 og 1500m. skriðsundi og 100m baksundi en Kolbrún keppir í 50, 100, 200 og 400m. skriðsundi og 50 og 100m. baksundi.

Við ræddum við keppendur og þjálfara og fengum smjörþefinn af þeirra áformum á Ítalíu og Jón Margeir fór ekkert í grafgötur með hlutina, kappinn ætlar að setja nýtt heimsmet í 1500m. skriðsundi!

Sjá viðtölin hér

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 20. september 2011 13:21
Mannvirkin glæsileg í London

Dagana 6. – 9. september fór fram í London fundur aðalfararstjóra vegna Ólympíumóts fatlaðra 2012. Á fundinum var m.a. kynnt á hvern hátt staðið skuli að skráningu íþróttafólks á mótið sem nú, í fyrsta sinn, fer fram á rafrænan hátt. Skráning á rafrænan hátt lengir þann frest sem íþróttamenn hafa til þess að ná tilskyldum lágmörkum og er því sér í lagi til hagsbóta fyrir íþróttafólkið sjálft.

Skoðunarferðir voru farnar og fundarmönnum sýnd helstu íþróttamannvirkin þar á meðal keppnislaugina og sjálfan Ólympíuleikvanginn sem bæði eru í göngufæri frá Ólympíuþorpinu.  Voru mannvirki þau sem skoðuð voru öll hin glæsilegustu og Bretar á áætlun með allan undirbúning fyrir þennan stærsta íþróttaviðburð fatlaðra íþróttamanna.

Mynd/ Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF sótti fund aðalfararstjóra í London á dögunum og tók þessa mynd af Ólympíusundlauginni í London.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 19. september 2011 16:34
Ungmennahópurinn kominn á fullt: Áhugasamir hvattir til að mæta

Ungmennahópurinn í frjálsum 13 ára og yngri er kominn á fulla ferð og æfir tvisvar sinnum í viku undir stjórn Ingólfs Guðjónssonar í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Æfingarnar eru á æfingatíma hjá Íþróttafélaginu Ösp. Hópurinn er sprottinn úr samstarfsverkefni ÍF og Össurar í þeirri viðleitni að fá fleiri iðkendur í yngstu aldurshópana í íþróttastarfi fatlaðra.

Heimasíða ÍF leit við á æfingu á dögunum og setti saman þessar klippur.

Æfingarnar eru fyrir hreyfihömluð, sjónskert/blind ungmenni og er næsta æfing á þriðjudagskvöld á slaginu 19:00. Öllum sem við á er frjálst að mæta á æfingarnar en yfirumsjón með verkefninu hefur Kári Jónsson landsliðsþjálfari ÍF í frjálsum.

Æfingarnar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19-20. Láttu sjá þig!

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 19. september 2011 15:10
Kapparnir komnir heim frá Englandi

Þeir Jóhann Rúnar Kristjánsson, Viðar Árnason og Tómas Björnsson eru komnir heim frá opna breska meistaramótinu í borðtennis sem fram fór um helgina. Strákarnir komust ekki upp úr sínum riðlum í einstaklingskeppninni og ekki heldur í liðakeppninni.

Í liðakeppninni lék Jóhann með Martin Ludrovsky frá Slóvakíu. Þeir töpuðu naumlega tveimur fyrstu leikjunum sínum 2-3 en unnu síðasta leikinn 3-1 og höfnuðu í 3. sæti af fjórum liðum í riðlinum.

Þá fundust ekki meðspilarar fyrir Tómas Björnsson og var hópurinn afar ósáttur með þá niðurstöðu en það þýddi að Tómas tók ekki þátt í liðakeppninni og verður Bretunum seint þakkað fyrir þá niðurstöðu.

Viðar Árnason og Bandaríkjamaðurinn Andre Scott voru í þriggja liða riðli og töpuðu báðum leikjunum sínum 3-0 og komust því ekki áfram. Viðar gerði þó vel og vann eina lotu gegn sameiginlegu liði Noregs og Bretlands þegar hann náði í lotu gegn Scott Robinson.

Árnagurinn um helgina dugir því ekki fyrir Jóhann til að komast inn á Ólympíumót fatlaðra í London á næsta ári en einhver stig söfnuðust þó í ferðinni. Þau stig duga ekki til að koma Jóhanni upp í 16. sætið sem gefur síðasta örugga plássið í London svo leitin að sæti á Ólympíumótinu heldur áfram hjá Jóhanni.

Mynd/ Jóhann Rúnar Kristjánsson

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 19. september 2011 11:44
Tuttugu þátttakendur á námskeiði í þjálfun fatlaðra barna

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Námskeið var haldið á vegum Íþróttasambands fatlaðra  um helgina þar sem megininntak var þjálfun fatlaðra barna og kynning á EIPET SPORT.

Ingi Þór Einarsson, formaður sundnefndar ÍF, var umsjónarmaður námskeiðsins og sá um almennan hluta þess sem fram fór á föstudagskvöld og laugardagsmorgun.

Almenni hlutinn var fyrir alla þjálfara en eftir hádegi á laugardeginum var sérgreinahluti þar sem þjálfarar skiptust í hópa eftir greinum.  Sumir fóru í verklegar æfingar og aðrir voru í umræðuhópum. Þátttakendur á námskeiðinu voru 20 og komu úr mismunandi íþróttagreinum, boccia, bogfimi, frjálsum íþróttum, fimleikum, sundi og skautaíþróttum. Margir þjálfarar sem þarna voru hafa ekki starfað innan raða ÍF en aðrir þjálfa hjá aðildarfélögum ÍF.

Námskeiðið tókst mjög vel og  allir þátttakendur fengu skjal í lok námskeiðs þar sem staðfest var þátttaka þeirra á fyrsta námskeiðinu sem tengist kynningu á EIPET SPORT á Íslandi.  Þar er um að ræða samstarfsverkefni Evrópulanda og Ísland hefur hug á að  taka virkan þátt í því samstarfi.

Mynd/ Hópurinn sem sótti námskeiðið um helgina.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 18. september 2011 12:09
Íslandsleikunum í knattspyrnu frestað sökum veðurs

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu áttu að fara fram í dag en ákveðið hefur verið að fresta knattspyrnuhlutanum sökum veðurs.

Knattspyrnumótið mun fara fram fimmtudaginn 22. september n.k. 18.00 á knattspyrnuvelli Víkings í Fossvogi.

Keppni á Íslandsleikum SO í frjálsum fór þó fram og hófst kl. 10.00 í morgun eins og ráðgert var en mótið fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.

Mynd/ Matthildur Þorsteinsdóttir, ÍFR, í langstökkinu í morgun.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 16. september 2011 14:45
Ólafur Ragnar afhenti Jóni Margeiri styrk úr Skötumessunni

Jón Margeir Sverrisson sundmaður úr Ösp/Fjölni hlaut á dögunum veglegan styrk sem afhentur var af Forseta Íslands, Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni og Ásmundi Friðrikssyni bæjarstjóra í Garði sem er upphafsmaður þessa verkefnis.

Um er að ræða styrk frá svokallaðri "Skötumessu" sem haldin er í bæjarfélaginu Garði á Suðurnesjum. Þar hafa menn komið á þeim sið að halda Skötumessu á Þorláksmessu að sumri, svona rétt til að vega upp á móti öllum grillveislunum. Þessi samkoma hefur stækkað ár frá ári og þetta árið mættu um 350 manns.

Margir leggja hönd á plóginn til að gera þetta að veruleika og nú seinni ár hafa margir landsþekktir skemmtikraftar lagt málefninu lið.

Allur ágóði af Skötumessunni fer í styrki til góðra málefna og þetta árið hlutu meðal annars Íþróttafélagið Nes, verkefnið Á allra vörum og Jón Margeir styrki.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 16. september 2011 14:18
Special Olympics 2015 verða í Los Angeles

Næstu Sumarleikar Special Olympics fara fram í borg englanna, Los Angeles, í Bandaríkjunum árið 2015. Mótið fór fram síðasta sumar í Aþenu þar sem vösk sveit Íslendinga tók þátt. Búist er við því að á leikunum 2015 verði rúmlega 7000 íþróttamenn frá 170 þjóðlöndum sem gera munu leikana sem glæsilegasta úr garði.

Þetta verður í fyrsta sinn í 16 ár sem Sumarleikar Special Olympics munu fara fram í Bandaríkjunum en þar fóru þeir síðast fram árið 1999 í Raleigh í Norður-Karólínu. Þá er gert ráð fyrir því að um hálf milljón manna muni heimsækja Los Angeles á meðan leikunum stendur!

Mynd/ www.specialolympics.orgFrá Staples Center í Los Angeles þegar tilkynnt var að Sumarleikarnir 2015 yrðu þar í borg.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 15. september 2011 16:34
Tvíliðaleikurinn að hefjast í Englandi: Strákarnir úr leik í einstaklingskeppninni

Þeir Jóhann Rúnar Kristjánsson, Viðar Árnason og Tómas Björnsson eru allir úr leik í einstaklingskeppni á opna breska meistaramótinu í borðtennis en mótið er 40 punkta mót og allir helstu spilarar heimsins því mættir til leiks.

Viðar og Tómas töpuðu öllum þremur leikjunum sínum í riðlakeppninni en Jóhann var enn á ný óheppin með riðil þar sem Heimsmeistara og Ólympíumeistara var að finna í riðlinum hans. Jóhann hafði betur 3-2 gegn Ítalanum Federico Crosara en tapaði 3-0 gegn Frakkanum Vincen Boury og svo Kóreumanninum Kim Kyung Mook.

Tvíliðaleikurinn hófst í dag þar sem Jóhann er með meðspilara frá Slóveníu, Viðar leikur með Bandaríkjamanni en Tómas fékk tvo aðra meðspilara inn í klassa 6.

Við færum nánari fréttir af köppunum og gengi þeirra í tvíliðaleiknum á morgun.

Mynd/ Tómas Björnsson, ÍFR, komst ekki upp úr riðlakeppninni líkt og þeir Jóhann og Viðar. 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 15. september 2011 14:35
Arnu á Íslandi: Stefnan sett á gull í London

Síðustu daga hefur Suður-Afríski hlauparinn Arnu Fourie verið hérlendis við prófanir og ýmsar rannsóknir hjá Össuri sem liður í undirbúningi kappans fyrir Ólympíumót fatlaðra í London á næsta ári. Arnu er meðlimur í hinum eftirsótta hóp Team Össur og hittir þar fyrir samlanda sinn Oscar Pistorius. Báðir eru þeir Arnu og Oscar hlauparar í fötlunarflokki T44 og mættust síðast á Heimsmeistaramótinu í janúar. Oscar hafnaði í 2. sæti mótsins og Arnu í 4. sæti og ljóst að baráttan um gullið í London 2012 í 100m. hlaupinu verður gríðarlega hörð.

Arnu hefur verið meðlimur í Team Össur í næstum því tvö ár og kom hingað til að prófa mismunandi fætur og fara nánar ofan í saumana á hvað henti sér best en vitaskuld keppir kappinn á stoðtækjum frá Össuri. Allt sem Arnu hefur gert á undanförnum mánuðum og mun gera á næstu mánuðum markast af Ólympíumótinu á næsta ári. Hann keppti á sínu fyrsta Ólympíumóti í Peking 2008 og var hvergi banginn þegar heimasíða ÍF náði af honum stuttu tali í höfuðstöðvum Össurar í þessari viku, hann ætlar sér í fulla baráttu um gullið en Arnu keppir í 100m. og 200m. hlaupi.

Hópurinn Team Össur er skipaður úrvalsíþróttamönnum á borð við Arnu, Oscar Pistorius og April Holmes svo einhverjir séu nefndir en hæfileikar einstaklinganna sem hópinn skipa þykja vel til þess fallnir að auka vitund almennings um að þeir aðilar sem verða fyrir því að missa útlim eða fæðast án hans geti vissulega lifað virku og fullnægjandi lífi.

Smellið hér til að sjá viðtalið við Arnu

Þá munu fatlaðir einnig taka þátt í Demantamótinu í Brussel um helgina og þar verður sérstaklega hlaupið í 200m. hlaupi í flokki T44. Arnu verður á meðal keppenda sem og Jerome Singleton sem varð í janúar fyrsti maðurinn í sjö ár í íþróttum fatlaðra til þess að leggja Oscar Pistorius að velli í 100m. hlaupi.

Mynd/ Arnu ásamt þeim Hafliða Hafþórssyni og Hilmari Birni Zoega í höfuðstöðvum Össurar fyrr í þessari viku. Hafliði og Hilmar eru þegar komnir á fullt í frjálsar og æfa tvisvar sinnum í viku í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 15. september 2011 13:15
Úrvalslið Össurar hitar sig upp í London

Þann 7. september sl. kom saman úrvalslið Össurar (Team Össur) á blaðamannafundi í London og átti þar góðan dag. Úrvalslið Össurar er skipað íþróttamönnum á borð við Oscar Pistorius, April Holmes og Marlon Shirley svo einhverjir séu nefndir en allir þessir einstaklingar eiga það sameiginlegt að hafa náð langt á sínu sviði á alþjóðavísu og að þau séu öðrum jákvæð og uppbyggileg fyrirmynd. 

Fjölmiðlar víðs vegar að úr heiminum mættu á staðinn til að fá upplýsingar um þessa vösku íþróttamenn og höfðu þar tækifæri til að spyrja þá spjörunum úr, mynda þá og taka viðtöl.
Á fundunum voru staddir tæknilegir sérfræðingar frá Össuri en þeir stóðu fyrir kynningu á nýjungum og tækni á sviði stoðtækja frá Össuri og svöruðu einnig spurningum fréttamanna. Dagurinn heppnaðist í alla staði mjög vel og var úrvalslið Össurar getið í öllum helstu fjölmiðlum í Bretlandi og víðar næstu daga á eftir.

Hápunktur ferðarinnar fyrir íþróttamennina vösku var án efa að fá tækifæri til að kynnast hvert öðru og deila reynslu sinni, en framundan er krefjandi ár í æfingum.

Við óskum úrvalsliði Össurar góðs árangurs innan sem utan vallar en hópurinn fyrir utan Tower Bride í London var eftirfarandi:

1. Toru Suzuki (Japan)
2. Jeff Skiba (US)
3. Jerome Singleton (US)
4. Arnou Fourie (Suður Afríka)
5. Marie-Amelie Le Fur (France)
6. Marlon Shirley (US)
7. Oscar Pistorius (Suður Afríka)
8. Apríl Holmes (US)
9. Daniel Wagner Jorgensen (Danmörk)
10. Rudy Garcia-Tolson (US)
11. Wojtek Czyz (Þýskaland)
12. Urs Kolly (Sviss)
13. Casey Tibbs (US)

Mynd/ Hluti af  úrvalsliði Össurar (Team Össur) fyrir framan Tower Bridge í London

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 15. september 2011 10:00
Íslandsleikar SO: Smávægilegar breytingar í dagskrá

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu og frjálsum íþróttum fara fram sunnudaginn 18. september næstkomandi. Knattspyrnumótið fer fram í samstarfi við KSÍ og knattspyrnufélagið Víking og frjálsíþróttanefnd ÍF hefur umsjón með frjálsíþróttakeppni.

Keppt verður í fyrsta skipti í blönduðum liðum -  Unified football - þar sem eru fatlaðir og ófatlaðir í hverju liði.

Smávægileg breyting hefur orðið á dagskránni, sjá hér að neðan:

Dagskrá;

kl. 10.00 – 12.00  Frjálsar íþróttir - Frjálsíþróttahöllin í Laugardal - Upphitun   09.30
kl. 13.00 – 16.00  Knattspyrna - Knattspyrnuvöllur Víkings í Fossvogi - Upphitun  12.45   

ÍF á Facebook

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 14. september 2011 15:04
Kastmót ÍF í frjálsum næsta laugardag

Kastmót Íþróttasambands fatlaðra í frjálsum íþróttum fer fram laugardaginn 17. september kl. 14:00-16:00 á kastsvæðinu í Laugardal, norðan við aðalvöllinn (gengið meðfram World Class). Keppt er í kúluvarpi og spjótkasti í öllum flokkum fatlaðra (10, 20,30,40,50).

Skráð er á staðnum. Ábyrgðarmaður er Kári Jónsson s: 824 1260

Mynd/ Ingeborg Eide Garðarsdóttir er hér í kúluvarpi á Íslandsmóti ÍF utanhúss í júní síðastliðnum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 14. september 2011 14:15
Hörður með reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun

Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ býður upp á reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun. Hestamannafélagið Hörður í samstarfi við Hestamennt ehf. býður upp á 5 vikna reiðnámskeið í reiðhöll Harðar á Varmárbökkum í Mosfellsbæ.

Eftirfarandi námskeið eru í boði:

Námskeið 1 : 19. september – 17. október
Mánudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn
19. sept, 26. sept, 3.okt, 10.okt, 17.okt.
 
Námskeið 2 : 23. september – 21. október
Föstudagar kl. 14:45 15:45. 5 skipti í senn
23.sept,30.sept,7.okt,14.okt,21.okt.
 
Námskeið 3 : 24.október – 21. nóvember
Mánudagar kl. 14:45 - 15:45 . 5 skipti í senn
24.okt,31.okt,7.nóv,14.nóv,21.nóv
 
Námskeið 4 : 28.október – 25.nóvember
Föstudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn
28.okt,4.nóv,11.nóv,18.nóv,25.nóv.

Lesa nánar um námskeiðið

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 13. september 2011 14:18
Frjálsíþróttaæfingar ungmenna á þriðjudögum og fimmtudögum

Frjálsíþróttaæfingar fyrir hreyfihömluð og blind/sjónskert ungmenni 13 ára og yngri eru hafnar í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Æfingarnar eru komnar til úr Æskubúðum ÍF og Össurar og mun Ingólfur Guðjónsson stýra æfingunum á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 19:00-20:00.

Æfingarnar eru fyrir hreyfihömluð, sjónskert/blind ungmenni og er næsta æfing í kvöld á slaginu 19:00. Öllum sem við á er frjálst að mæta á æfingarnar en yfirumsjón með verkefninu hefur Kári Jónsson landsliðsþjálfari ÍF í frjálsum.

Auk frjálsíþróttaæfinga verður boðið upp kynningar á öðrum íþróttagreinum sem nánar verða auglýstar síðar. Æfingagjald vegna annarinnar (8. september til 8. desember) er kr. 15 þúsund.

Líkt og í vor þegar kynningardagur ÍF og Össurar í frjálsum íþróttum fór fram eru þessar æfingar tilraunarverkefni sem vonandi er komið til að vera en til að grundvöllur sé fyrir að hrinda þessu verkefni af stað er lágmarksfjöldi 10 einstaklingar. Vonast er til að börn og ungmenni sem eru hreyfihömluð (aflimaðir/CP og fleiri) ásamt sjónskertum/blindum sjái sér fært um að taka þátt í góðum hópi.

Vinsamlegast staðfestið þátttöku á if@isisport.is 

Sé frekari upplýsinga óskað þá er hægt að hafa samband við skrifstofu ÍF í síma 514 4080 eða við Kára Jónsson í síma 824 1260.

Þá bendum við einnig á Frístundakortið í Reykjavík sem vert er að kynna sér:
http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3697/6079_view-1524/ 

Mynd/ Frá kynningardegi ÍF og Össurar í frjálsum íþróttum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 13. september 2011 12:09
Ösp og Júdófélag Reykjavíkur í samstarf

Íþróttafélagið Ösp og Júdófélag Reykjavíkur hafa tekið saman höndum og munu standa saman að námskeiði fyrir einstaklinga með þroskahömlun sem og sjónskerta/blinda. Þátttakendur í námskeiðunum munu greiða þátttökugjöld til Júdófélagsins en gerast um leið félagsmenn í Öspinni og greiða þar félagsgjöld.

Námskeiðið hefst þann 4. október næstkomandi og verður tvisvar sinnum í viku fram að áramótum og er námskeiðsverðið kr. 22.000,-

Nánari upplýsingar gefur Ólafur Ólafsson formaður Aspar í síma 899 8164 og skráningar skulu sendast á ospin@ospin.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 13. september 2011 10:21
Jóhann, Tómas og Viðar farnir til Sheffield

Þrír borðtenniskappar héldu í morgun áleiðis til Englands til að keppa á Opna breska meistaramótinu í borðtennis. Jóhann Rúnar Kristjánsson fer sem reynslubolti hópsins en með honum í för eru Tómas Björnsson ÍFR og Viðar Árnason ÍFR en Jóhann keppir eins og kunnugt er fyrir Nes í Reykjanesbæ.

Keppnin fer fram 14.-17. september og stefna kapparnir að því að næla sér í verðlaun ytra. Heimasíða ÍF náði snörpu samtali við Jóhann í gær sem er einbeittur um þessar mundir og ætlar sér til London á næsta ári.

,,Markmiðið er að ná í verðlaunasæti á mótinu og gera góða hluti til þess að komast ofar á heimslistanum. Ég er í 24. sæti um þessar mundir en markmiðið er að komast upp í það sextánda,“ sagði Jóhann en 16 efstu sætin komast til London á næsta ári.

,,Þá verður gaman að fylgjast með Tomma og Viðari, hvorugur hefur farið út á mót í nokkurn tíma þannig að þeir hafa æft vel undanfarið og bætt sig mikið og því spennandi að sjá hvernig fer hjá þeim,“ sagði Jóhann en kapparnir eru væntanlegir aftur heim á sunnudag.

Mynd/ Viðar Árnason er hér í fullu fjöri á Íslandsmóti ÍF í borðtennis í mars síðastliðnum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 12. september 2011 14:37
Erlingsmótið þann 8. október

Minningamót í sundi um Erling Þ. Jóhannsson sundþjálfara verður haldið í Sundlauginni í Laugardal laugardaginn 8. október næstkomandi. Upplýsingar um skráningu og keppnisgreinar verða sendar til aðildarfélaga ÍF þegar nær dregur.

,,Erlingur hóf sundþjálfun hjá ÍFR árið 1978 og  starfaði sem sundþjálfari hjá félaginu allt til dauðadags. Á sinni löngu starfsævi sem þjálfari hjá ÍFR lagði hann grunninn að frábærun árangri fatlaðra sundmanna. Iðkendur undir hans stjórn settu hundruða Íslandsmeta og settu fjölmörg  Evrópu heims- og ólympíumet. Enginn íslenskur þjálfari hefur stýrt og stjórnað jafn glæsilegum og sterkum hópi einstaklinga og Erlingur gerði. Hann byggði upp sundstarf fatlaðra á Íslandi og sá árangur sem fatlaðir sundmenn náðu á mótum erlendis er undraverður. Einn mikilvægasti þáttur í  starfinu  hans  var að undirbúa sundfólkið til að takast á við lífið eftir að sundþjálfun þeirra lauk. Sjálfsöryggi einstaklinganna jókst  og hindrunum var ýtt til hliðar. Starf Erlings fyrir Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík var ómetanlegt,“ segir í tilkynningu frá ÍFR.

Mynd/ Erlingur ásamt Eyþóri Þrastarsyni og Sonju Sigurðardóttur þegar þau voru útnefnd íþróttamenn ársins hjá ÍF.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 12. september 2011 14:16
Búist við rúmlega 4000 keppendum í London

Ólympíumót fatlaðra fer fram í London á næsta ári og er búist við að þátttökumet verði slegið en Alþjóðaólympíuhreyfing fatlaðra (IPC) gerir ráð fyrir um 4200 keppendum frá 150 löndum á mótinu.

,,Okkar íþróttamenn munu heilla milljarða, vera innblástur fyrir milljónir og á endanum leiða til þeirrar samfélagsbreytingar sem gerir fólki betur kleift að skynja hverju einstaklingur með fötlun getur áorkað,“ sagði Sir Philip Craven formaður IPC.

,,Nú er minna en ár þangað til Ólympíumótið hefst í London og spennan magnast frá degi til dags. Ég trúi því að Ólympíumótið geti orðið jafn gott og leikarnir í Peking, ef ekki betri,“ sagði Craven og bætti við að hann teldi ekki líklegt að aðeins Bretar myndu fjölmenna á leikana þar sem London væri mjög miðsvæðis í Evrópu. Heimamenn mættu því búast við samkeppni á áhorfendapöllunum líka.

Ólympíumót fatlaðra fer fram dagana 29. ágúst – 9. september á næsta ári og er hægt að kaupa miða á viðburðina hér:
www.tickets.london2012.com

Aðrar athyglisverðar síður hjá IPC:
www.paralympic.org – heimasíða IPC
www.ParalympicSport.TV – vefsjónvarp IPC

Mynd/ Ólympíuleikvangurinn í London.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 31. ágúst 2011 15:43
Starfsmenn Össurar hlupu um 1200 kílómetra til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tæplega 100 Össurar starfsmenn skráðu sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþon 2011 sem telst metþátttaka innan fyrirtækisins.  Tveir starfsmenn þreyttu heilt maraþon eða 42 km, 15 starfsmenn tóku þátt í hálfmaraþoni, 57 í 10 km, 31 í skemmtiskokki og fjöldamargir hlupu með börnum sínum í Latabæjarhlaupinu síðar um daginn. Af hverjum kílómeter sem hlaupin var runnu 500 krónur til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra. 

Afreksíþróttakonan Amy Palmiero-Winters þreytti tvöfalt maraþon til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra. Hún hóf fyrra hlaupið klukkan fjögur um morguninn og lauk því á rétt rúmum fjórum klukkutímum, en lagði svo af stað aftur með maraþonhlaupurunum kl. 8.40 og kláraði hún þá seinna hlaupið sitt á tímanum 5:18:20.
 
Stemningin sem myndaðist í miðbæ Reykjavíkur á laugardeginum var gífurlega góð enda lék veðrið við hlauparana.  Össurar starfsmenn söfnuðust  saman fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík og notuðu tímann fyrir hlaupið til að teygja á og koma sér í gírinn og að sjálfsögðu gáfu þeir sér líka smá tíma til að stilla sér upp fyrir myndatöku.
 
Í heildina söfnuðust 600.000 kr. til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra sem þakkar kærlega fyrir sig og fagnar þessu óeigingjarna framtaki starfsmanna Össurar. Í síðustu viku fór svo Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF og tók við styrknum.

Mynd/ Starfsmenn Össurar hlupu 1200 km til styrktar ÍF í Reykjavíkurmaraþoninu.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 31. ágúst 2011 12:34
Pistorius í 22. sæti á HM

Oscar Pistorius frá Suður-Afríku, maðurinn með gervifæturna frá Össuri, hafnaði í 22. sæti af 24 keppendum í undanúrslitum 400 metra hlaups karla á heimsmeistaramótinu í Daegu. www.mbl.is greindi frá.

Pistorius var nokkuð frá sínu besta, varð áttundi og síðastur í sínum undanúrslitariðli á 46,19 sekúndum, en hans besti tími er 45,07 sekúndur sem hefði auðveldlega fleytt honum áfram í úrslit þeirra átta bestu. Pistorius komst örugglega áfram úr sínum undanriðli á mótinu, hljóp þá á 45,39 sekúndum sem einnig hefði nægt í undanúrslitum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 29. ágúst 2011 22:06
Eitt ár þar til Ólympíumót fatlaðra verður sett

Nú í dag er eitt ár þar til Ólympíumót fatlaðra verður sett, en mótið fer fram í London 29. ágúst til 9. september 2012. Ein verðlaun eru markmið Íþróttasambands fatlaðra að þessu sinni - raunhæft markmið miðað við þá miklu endurnýjun sem átt hefur séð stað meðal fatlaðra íslenskra íþróttamanna.

Á þessu stærsta íþróttamóti sem fatlaðir íþróttamenn geta tekið þátt í munu um 4.200 keppendur frá 150 löndum berjast um 500 verðlaun sem í boði eru í þeim 20 íþróttagreinum sem keppt verður í.

Íþróttasamband fatlaðra gerir sér vonir um að fjórir til fimm íþróttamenn, í fjórum mismunandi íþróttagreinum þ.e. sundi, frjálsum íþróttum og borðtennis nái tilskyldum lágmörkum fyrir Ólympíumótið árið 2012.  Frestur keppenda til þess að ná tilskyldum lágmörkum fyrir mótið er mismunandi eftir íþróttagreinum.  Þannig hafa borðtennismenn tækifæri til loka árs 2011 til þess að tryggja sér sæti meðal 12 efstu manna á styrkleikalista í sínum flokki, 20. maí er lokafrestur sundfólks og 5. ágúst hjá frjálsíþróttafólki

Fimm Íslendingar voru meðal keppenda á Ólympíumótinu sem haldið var í Peking 2008 þau Eyþór Þrastarson og Sonja Sigurðardóttir í sundi, Baldur Ævar Baldursson og Jón Oddur Halldórsson í frjálsum íþróttum og Þorsteinn Sölvason í lyftingum.  Bestum árangri Íslendinga á mótinu náði Jón Oddur Halldórsson sem hafnaði í 5. sæti í 100 m. hlaupi í flokki T35. Frá árinu 2008 hefur okkar unga og efnilega íþróttafólk tekið stórstígum framförum, eflst og þroskast og nokkur þeirra eru nú þegar kominn í fremstu röð í sínum fötlunarflokkum.  Raunhæft ætti því að vera að hafa það að markmiði að vinna til verðlauna á mótinu þó svo ytri aðstæður og dagsform ráði ávallt úrslitum á stórmóti sem Ólympíumót fatlaðra er.

Vert era ð geta þess að frá 9. september n.k. hefst sala aðgöngumiða á Ólympíumótið 2012.  Reikna má með mikilli aðsókn á hina ýmsu viðburði og fólk því hvatt til þess að tryggja sér miða í  tíma hafi það á annað borð í hyggju að vera meðal áhorfenda.  Hægt er að kaupa miða á viðburði mótsins á http://www.tickets.london2012.com/schedule.html#fullschedule en um 2 milljónir miða verða til sölu á þær 20 íþróttagreinar sem kept verður í Ólympíumótinu 2012.  Verð miðana eru frá 10 pundum á íþróttaviðburði en 20 pundum á opnunar- og lokaathöfnina.

Allar upplýsingar um Ólympíumót fatlaðra má finna á http://www.london2012.com

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 29. ágúst 2011 11:03
Pistorius komst í undanúrslit á HM

Oscar Pistorius frá Suður-Afríku, fyrsti frjálsíþróttamaðurinn án útlims sem keppir á heimsmeistaramóti, komst um helgina í undanúrslit í 400 metra hlaupi karla á HM í Daegu í Suður-Kóreu. Þetta kom fram hjá www.mbl.is um helgina.

Pistorius, sem er með gervifætur frá stoðtækjafyrirtækinu Össuri, var um tíma fyrstur í sínum riðli en endaði í þriðja sæti á næstbesta tíma sem hann hefur náð, 45,39 sekúndum. Chris Brown, heimsmeistarinn innanhúss, og Martyn Rooney frá Bretlandi fóru framúr honum á lokasprettinum og hlupu á 45,29 og 45,30 sekúndum.

„Ég hef lagt mikið á mig til að komast hingað," sagði Pistorius. „Og það er ótrúlegt að geta hlaupið."

Bestum tíma allra keppenda náði heimsmeistarinn LaShawn Merritt frá Bandaríkjunum sem hljóp á 44,35 sekúndum, en það er besti tími sem náðst hefur í undanrásum 400 m hlaups á HM frá upphafi, og besti tími ársins í greininni.

Tíminn hjá Pistorius var sá 14. besti í hlaupinu en 24 keppendur komust áfram í undanúrslitin sem fara fram í dag um kl. 11:00.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 27. ágúst 2011 09:03
Trail-O rathlaup á sunnudag

Rathlaupsfélagið Hekla fær hingað til lands einn fremsta sérfræðing heims í rathlaupi fatlaðra (Trail-O) um helgina. Owe Fredholm og kona hans Eva hafa unnið að þróun og framgöngu Trail-O undanfarin 20 ár. Owe hefur setið í Trail-O nefnd alþjóða rathlaupssambandsins (IOF) og haldið, stýrt og dæmt á ótal keppnum undanfarna áratugi. Hann vinnur einnig að þróun rafræns búnaðar fyrir rathlaup fatlaðra í samstarfi við SportIdent.

Owe kemur hingað til lands til að kenna íslenskum rathlaupurum að halda Trail-O viðburði en framkvæmdin er að nokkru leiti önnur en í hefðbundnu hlaupi.

Trail-O er ekki aðeins fyrir fatlaða. Greinin hefur notið mikilla vinsælda meðal ófatlaðra sem að geta ef einhverjum ástæðum ekki komist hratt yfir auk þess sem keppendur í hefðbundnum keppnum nota hana til að þjálfa nákvæman kortalestur. Heimsmeistarar og keppendur í heimsmótaröðinni eru því orðnir reglulegir þátttakendur í Trail-O viðburðum.

Trail-O notar sömu kort og hefðbundið rathlaup en í stað þess að hlaupa á milli stöðva og reyna að finna þær ganga keppendur á milli stöðva. Þar eru fimm flögg en aðeins eitt þeirra er það sem merkt er inn á kortið. Nákvæmur kortalestur verður þannig aðalatriðið en ekki hraði. Greinin reynir á nákvæmi keppenda og hentar því bæði þeim sem komast hratt yfir og þeim sem fara hægar. Rathlaup er frábær íþrótt sem að sameinar hreyfingu og hugarleikfimi í sátt við náttúruna.

Rathlaupsfélagið býður upp á æfingarhlaup og kynningu á íþróttinni sunnudaginn 28. ágúst. Hægt verður að taka þátt frá klukkan 11:00 til 12:30. Á sama tíma verður boðið upp á hefðbundið rathlaup.

Við hvetjum alla til að mæta og kynna sér spennandi íþrótt.

Frekari upplýsingar er hægt að fá á www.rathlaup.is eða með því að senda póst á rathlaup@rathlaup.is eða hringja í síma 8952409

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 26. ágúst 2011 12:47
Námskeið í Reykjavík um íþróttaþjálfun fatlaðra barna

Helgina 16. – 18. september verður haldið námskeið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal  um íþróttaþjálfun fatlaðra barna. Námskeiðið er fyrir þá sem starfa eða vilja starfa að íþróttaþjálfun fatlaðra barna.  Ætlast er til að þátttakendur  hafi reynslu af íþróttaþjálfun eða kennslu.

Þetta þjálfaranámskeið  er einskonar hliðarnámskeið við almenn námskeið  ÍSÍ . Námskeiðið skiptist í tvo hluta, almennan hluta og sérgreinahluta.

Almennur hluti; Fjallað um fatlanir og áhrif þeirra á árangur í íþróttum.
Sérgreinahluti; Farið yfir ýmis tækniatriði sem þarf að aðlaga þegar um er að ræða skerta getu.  Einnig verður farið yfir sérreglur sem stundum eru til staðar í íþróttakeppnum á vegum ÍF og IPC

Dagskrá
Almennur hluti l                                16. september kl. 18.00 – 21.00
Almennur hluti ll                               17. september kl. 0900 –  12.00
Sérgreinahluti                                    17. september kl. 13.00 – 18.00

Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og hópvinnu auk verklegra æfinga
Allir þjálfarar geta nýtt almenna hlutann en sérgreinahluti tekur mið af skráningum þátttakenda.

Umsjónarmaður námskeiðs og aðalleiðbeinandi er Ingi Þór Einarsson, PHd student, Adjunkt Háskóla Íslands.

Skráningar berist á skrifstofu ÍF fyrir  mánudag 12. september í netfangið;  if@isisport.is og 
cc á issi@hi.is

Staðfesta þarf nafn, netfang og símanúmer og íþróttagrein auk  þjálfunarreynslu/menntunar
Þátttökugjald kr. 7.000.-
Nánari upplýsingar um innihald námskeiðs veitir Ingi Þór Einarsson ( issi@hi.is)

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 20. ágúst 2011 11:45
Ofurkonan Amy hleypur með Össuri til styrktar ÍF

Össur, einn stærsti styrktar- og samstarfsaðili Íþróttasambands fatlaðra, teflir fram ofurkonunni Amy Palmieru-Winters í Reykjavíkurmaraþoninu í dag en Amy kemur frá Bandaríkjunum og mun hlaupa tvöfalt maraþon á fæti frá Össuri!

Alls mun Össur hlaupa 1200 km. til styrktar ÍF þetta árið og Amy mun skila inn 84 km. af þeirri vegalengd en hún hóf hlaupið sitt laust fyrir klukkan fjögur í nótt og hljóp beint inn í sjálft Reykjavíkurmaraþonið sem hófst laust eftir klukkan átta í morgun.

Amy er 39 ára einstæð tveggja barna móðir og missti vinstri fótinn í bílslysi fyrir nokkrum árum. Amy var í viðtali hjá RÚV í gærkvöldi sem nálgast má hér.

Hjá RÚV sagði Amy m.a: ,,Allir mæta hindrunum á sínum vegi og ég er hingað komin til að sýna fram á að hægt sé að sigrast á þeim!

Finndu ÍF á Facebook

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 19. ágúst 2011 12:14
Íslandsleikar SO í frjálsum og knattspyrnu 18. september

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu og frjálsum íþróttum fara fram sunnudaginn 18. september 2011. Knattspyrnumótið fer fram í samstarfi við KSÍ og knattspyrnufélagið Víking.

Dagskrá sunnudaginn 18. september

kl. 10.00 – 13.00: Frjálsar íþróttir - Frjálsíþróttahöllin í Laugardal
kl. 13.30 – 16.00: Knattspyrna - Knattspyrnuvöllur Víkings í Fossvogi

Keppt verður í fyrsta skipti í blönduðum liðum -  Unified football - þar sem eru fatlaðir og ófatlaðir í hverju liði. Keppt er í 7 manna liðum og koma 4 frá aðildarfélögum ÍF og 3 frá knattspyrnufélaginu Víkingi.

Skráningablöð fyrir leikana hafa verið send til aðildarfélaga ÍF en skilafrestur er til föstudagsins 9. september.

Special Olympics á Íslandi og KSÍ eru að undirbúa frekara samstarf við Ösp og Víking við að kynna Unified football á Íslandi.  Verkefnið verður kynnt nánar síðar.

Finnið okkur á Facebook

Mynd/ Knattspyrnulandslið Íslands sem tók þátt á Sumarleikum Special Olympics þetta árið hafði oft ríka ástæðu til þess að fagna í Grikklandi. Kapparnir munu ekki láta sitt eftir liggja á Íslandsleikunum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 18. ágúst 2011 14:39
Íslenska Gámafélagið til liðs við Jóhann

Í vikunni tók borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson við myndarlegum styrk frá Íslenska gámafélaginu upp á 100.000 krónur. Það var Gísli Jóhannsson hjá félaginu sem veitti Jóhanni styrkinn og hann hvetur önnur fyrirtæki til að styðja Jóhann í baráttu sinni fyrir sæti á Ólympíumótinu í London 2012. Jóhann Rúnar vill nota tækifærið og þakka öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa styrkt hann með einum eða öðrum hætti í gegnum árin.

Víkurfréttir á Suðurnesjum birtu fréttir af þessu á heimasíðu sinni í gær en fréttina í heild sinni má nálgast hérna.

Mynd/ Gísli og Jóhann fyrr í þessari viku við afhendingu styrksins.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 16. ágúst 2011 11:29
Sundárið hefst í dag: Hver einasta æfing skiptir máli

Í dag hefst sundárið hjá Sundnefnd Íþróttasambands fatlaðra. Verkefnin eru ærin enda Ólympíumót fatlaðra í London framundan sem og mörg önnur stór og sterk mót. Þar sem sundárið er að hefjast var ekki úr vegi að ræða stuttlega við Inga Þór Einarsson formann sundnefndar ÍF.

,,Í október sendum við mikið af ungum krökkum á Norðurlandamótið í Finnlandi og þau eiga bara eftir að verða betri. Örfá þeirra eiga möguleika á því að komast til London en það kemur allt í ljós í kringum áramótin. Miklu fleiri þeirra eiga góða möguleika á því að komast svo til Ríó árið 2016,“ sagði Ingi Þór og lagði til athyglisverða nálgun.

,,Hver einasta sundæfing skiptir máli, hvert einasta sælgæti sem þú borðar ekki skiptir máli og í hvert skipti sem þú ferð snemma að sofa þá skiptir það máli. Þetta er ekki spurning um að gera eitt atriði 100% betur heldur að gera 100 atriði 1% betur,“ sagði Ingi sem kvaðst spenntur fyrir sundárinu enda væri í mörg horn að líta á næstunni.

Í september er von á Fjarðarmóti í sundi, síðar í mánuðinum halda þau Jón Margeir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir á Global Games á Ítalíu. Norðurlandamótið í sundi fer fram í Finnlandi í október, Íslandsmót ÍF í 25m. laug fer fram í nóvember, Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga fer fram fyrstu helgina í janúar og að því loknu eru RIG og Gullmót KR ekki langt undan svo verkefnin eru ærin og ljóst að Sundnefnd ÍF sem og fatlað íslenskt sundfólk mun hafa í nægu að snúast þetta tímabilið.

Sjá nánar verkefni ársins og næsta árs hér á ÍF síðunni undir Verkefnalisti

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 10. ágúst 2011 15:09
Engin lágmörk á MÍ: Helgi með nýtt Íslandsmet í 100m. hlaupi

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fór fram á Selfossi síðla júlímánaðar þar sem nokkrir keppendur úr röðum fatlaðra freistuðu þess að vinna sér sæti á Ólympíumóti fatlaðra í London. Svo fór að engum tókst að ná lágmörkum þar sem vindur var afar óhagstæður. Helgi Sveinsson hljóp á nýju Íslandsmeti í 100m. hlaupi karla í flokki T42 er hann kom í mark á tímanum 14,52 sek. en Helgi keppir á gervifæti frá Össuri. Metið fæst ekki staðfest sökum vindsins en tíminn hjá Helga var vel undir lágmarki fyrir Ólympíumótið í London.

Þess má geta að skömmu eftir Verslunarmannahelgi fór fram mót í Kaplakrika þar sem Helgi keppti í 100m. hlaupi og kom þá í mark á tímanum 15,48 sek. og setti því nýtt og löglegt Íslandsmet í flokki T42.

Ingeborg Eide Garðarsdóttir hljóp 100 metrana á 16,9 sek. en lágmarkið á Ólympíumótið í hennar flokki sem er T37 er 16,00 sek. Þá stökk Baldur Ævar Baldursson 4,93m. í langstökki í flokki F37 karla. Lágmarkið til London er 5.10m. Davíð Jónsson kastaði kúlunni 9,05m. í flokki F42 karla en lágmarkið í hans flokki er 11,45m. Davíð keppir einnig á gervifæti frá Össuri og fór sér hægt í sakirnar enda sleipt í kasthringnum. Kastið hjá Davíð, sem enn á eftir að undirgangast alþjóðlega flokkun, hefði sett hann í 15. sæti á heimslistanum.

Ingeborg Eide reyndi einnig fyrir sér í 200m. spretthlaupi og kom í mark á tímanum 37,45 sek. en lágmarkið er 33,45 sek.

Eins og áður segir var vindur mikill á Selfossi og árnagurinn því ekki gildur og því mun frjálsíþróttafólkið reyna á nýjan leik á næstu mánuðum að tryggja sér sæti í London á næsta ári.

Heildarúrslit MÍ á Selfossi 2011

Mynd/ Ingeborg Eide Garðarsdóttir á ekki langt í land með að komast undir A-lágmarkið í 100m. hlaupi kvenna í flokki T37.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 9. ágúst 2011 10:38
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

28. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram 20. ágúst n.k. Skráning fer fram á vef Reykjavíkurmaraþons www.marathon.is og líkt og áður geta þátttakendur hlaupið til góðs og safnað áheitum fyrir góðgerðar og líknarfélög. Þannig velur hlauparinn sér góðgerðarfélag til að safna áheitum fyrir en upplýsingar um þau má finna á vefnum www.hlaupastyrkur.is 

Dagskrá hlaupsins verður sem hér segir:

08:40 Maraþon, hálfmaraþon og boðhlaup.
09:30 10 km hlaup
11:45 Upphitun fyrir skemmtiskokk
12:00 Skemmtiskokk 3 km
14:40 Tímatöku hætt

Allir sem þess eiga kost eru hvattir til þátttöku, sér og öðrum til góðs og safna áheitum fyrir sitt félag.

Mynd/ Starfsmenn Össurar hlupu til styrktar ÍF í fyrra.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 6. ágúst 2011 11:12
Íslenski hópurinn hæstánægður með aðstæðurnar ytra

Sól og íþróttir í brennidepli og íslenski hópurinn á Norræna barna- og unglingamótinu í Finnlandi hefur ekki slegið slöku við ytra. Í gær fór fram keppni í frjálsum íþróttum þar sem allir íslensku keppendurnir sem skráðir voru í frjálsar unnu til verðlauna.

Á mótinu eru einnig íþróttakynningar þar sem krakkarnir fá að spreyta sig í íþróttum öðrum en þeim sem þau hafa verið skráð í á mótinu. Samkvæmt Helenu Hrund Ingimundardóttur yfirsundþjálfara í ferðinni er aðstaðan ytra öll eins og best verður á kosið en Pajulahti er einn af stöðunum þar sem m.a. finnskir afreksmenn koma í lokaundirbúning fyrir stór verkefni á heimsmælikvarða.

Hópurinn tók svo þátt í kvöldvöku í gær þar sem allir lærðu nýjan dans og verður hann vafalítið notaður í kvöld þegar lokahátíðin fer fram. Í dag hófst svo keppni í sundi og verður fróðlegt að sjá hvernig sundhópurinn mun standa sig.

Mynd/ Pajulahti svæðið í Finnlandi er gríðarlega veglegt íþróttasvæði þar sem helstu íþróttamenn Finnlands koma jafnan við í undirbúningi sínum fyrir stór verkefni.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 2. ágúst 2011 10:45
Norræna barna- og unglingamótið hafið í Finnlandi

Vaskur 19 manna hópur frá Íslandi hélt til Finnlands snemma í gær til þess að taka þátt í Norræna barna- og unglingamótinu. Mótið fer fram í Pajulahti sem er í rétt rúmlega 100 km. fjarlægð frá höfuðborginni Helsinki.

Gærdagurinn fór mestmegnis í ferðalagið sjálft og hópurinn fékk sér gönguferð um svæðið þar sem hann dvelur næstu vikuna en í dag hefjast æfingar og von á fleiri tíðindum af hópnum á næstu dögum.

Mynd/ Keppendahópurinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærmorgun.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 22. júlí 2011 14:53
Skrifstofa ÍF lokuð í næstu viku vegna sumarleyfa

Skrifstofur Íþróttasambands fatlaðra verða lokaðar í næstu viku frá og með mánudeginum 25. júlí fram til þriðjudagsins 2. ágúst.

Sé erindið brýnt er hægt að hafa samband við ÍF á tölvupósti, if@isisport.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 20. júlí 2011 00:31
Jóhanna varði titilinn á minningarmóti Harðar Barðdal

Minningarmót Harðar Barðdal í pútti fór fram í Hraunkoti í Hafnarfirði þriðjudaginn 19. júlí síðastliðinn. Jóhanna Ásgeirsdóttir kom sá og sigraði í flokki fatlaðra og varði þar með titilinn frá árinu 2010 þegar hún varð fyrst til að hafa sigur á mótinu en þetta var í annað sinn sem minningarmótið fer fram. Sveinbjörn Guðmundsson fékk svo sérstök hvatningarverðlaun á mótinu.

Úrslit:

Ófatlaðir:

Fyrsta sæti: Sveinbjörn Guðmundsson 28 högg
Annað sæti:  Mark Rossi 29 högg
Þriðja sæti: Sindri Þ. 30 högg

Fatlaðir:

Fyrsta sæti: Jóhanna Ásgeirsdóttir, 33 högg (varði titilinn frá árinu áður og hélt bikarnum)
Annað sæti: Hildur Jónsdóttir, 33 högg (verri seinni níu en hjá Jóhönnu)
Þriðja: Jakob Ingimundarson, 34 högg

Hvatningarbikar GSFÍ sem er farandbikar gefinn af dætrum Harðar Barðdal í minningu hans og var veittur nú í fyrsta skipti. Hann hlaut Sveinbjörn Guðmundsson að þessu sinni fyrir góða ástundun æfinga, vera duglegur að æfa milli æfinga og fyrir góða framkomu utan vallar sem innann.

Myndir/ Á efri myndinni eru sigurvegararnir í flokki fatlaðra en á þeirri neðri er Sveinbjörn Guðmundsson sem hlaut hvatningarbikar GSFÍ.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 13. júlí 2011 21:40
Að loknu EM og verkefnin framundan

Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi lauk í Berlín um síðustu helgi. Jón Margeir Sverrisson, S14, og Eyþór Þrastarson, S11, kepptu fyrir Íslands hönd á mótinu. Árangur þeirra var í samræmi við væntingar, Jón Margeir rétt missti af verðlaunum í 100 m. bringusundi og Eyþór stóð sig með prýði en hann er nýkominn af stað á nýjan leik eftir veikindi.

Árangur Jóns og Eyþórs í Þýskalandi.
Eyþór              7. sæti  100 m bak      
Eyþór              9. sæti 50 m skrið       
Eyþór              5. sæti 400 m skrið     
Eyþór              8. sæti  100 m skrið    
Eyþór              8.sæti 200 m fjór

Jón Margeir     5. sæti  200 m skrið    
Jón Margeir     dæmdur úr leik 100 m bak     
Jón Margeir     4. sæti 100 m bringa   

Næst á dagskrá hjá ÍF:

Púttmót til minningar um Hörð Barðdal, mótið fer fram þann 19. júlí við Hraunkot í Hafnarfirði. Skráning á if@isisport.is          

Dagana 23.-24. júlí munu nokkrir frjálsíþróttamenn úr röðum fatlaðra keppa á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum á Selfossi.

1. – 8. ágúst taka 14 krakkar þátt í Norræna barna- og unglingamótinu sem fram fer í Finnlandi.

Mynd/ Eyþór Þrastarson er óðum að ná sínu fyrra formi eftir veikindi.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 10. júlí 2011 10:04
EM að ljúka í Berlín

Þátttöku Íslands á EM fatlaðra í sundi lauk í gær þegar Eyþór Þrastarson keppti í 200m. fjórsundi. Eyþór hafnaði í 8. sæti í úrslitum á tímanum 2.55,85mín. Með þessum tíma bætti Eyþór sinn persónulega árangur um tvær sekúndur en Íslandsmetið á Birkir Rúnar Gunnarsson sem er 2:39,00mín. og hefur metið staðið síðan 1996. EM lýkur svo í dag en eins og fyrr greinir hafa íslensku sundmennirnir klárað sínar greinar.

Jón Margeir Sverrisson og Eyþór Þrastarson voru fulltrúar Íslands á mótinu en okkur tókst ekki að vinna til verðlauna að þessu sinni. Jón Margeir var hársbreidd frá því í 100m. bringusundi þegar hann hafnaði í 4. sæti með risavaxinni bætingu á Íslandsmetinu og aðeins þremur hundraðshlutum frá bronsinu.

Það eru svo Úkraínumenn sem fara með breiðasta brosið frá Berlín en þeir hafa unnið til flestra verðlauna, alls 105 medalíur í það heila og af þeim 41 gullverðlaun. Úkraínumenn hafa sprungið út á síðustu tveimur árum en þeir voru byrjaðir að láta á sér kræla hér á Íslandi árið 2009 þegar EM í sundi fatlaðra var haldið í fyrsta sinn eftir nokkurra ára hlé.

Mynd/ Sverrir Gíslason: Eyþór Þrastarson bætti sinn persónulega árangur um tvær heilar sekúndur í gær í 200m. fjórsundi.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 8. júlí 2011 18:04
Bronsið rétt rann úr greipum Jóns Margeirs

Félagarnir Eyþór Þrastarson og Jón Margeir Sverrisson eru báðir staddir á EM fatlaðra í sundi í Berlín og voru rétt í þessu að ljúka næstsíðasta keppnisdegi mótsins. Jón Margeir sem keppir í flokki S14, þroskahamlaðra, rétt missti af bronsinu í 100m. bringusundi er hann kom í bakkann á nýju og glæsilegu Íslandsmeti, 1.13,92mín. Hann setti einnig Íslandsmet í greininni í morgun í undanrásum þegar hann synti á 1.16,06mín. en núna í úrslitum pakkaði hann metinu saman frá því í morgun. Gamla metið átti kempan Gunnar Örn Ólafsson en það var 1.17,72mín.

Jón Margeir setti einnig Íslandsmet í 50m. bringusundi þar sem millitími hans áðan var 34,70sek. en gamla metið átti hann sjálfur sem var 35,48 sek. sem hann setti á Íslandsmóti ÍF í Ásvallalaug í mars á þessu ári.

Eyþór keppti í 100m. skriðsundi og hafnaði í 8. sæti á tímanum 1.08,97mín. en Íslandsmetið í greininni á Birkir Rúnar Gunnarsson 1.05,65mín. en metið setti hann í Frakklandi árið 1995.

Eyþór á eitt sund eftir og fer það fram á morgun þegar hann keppir í 200m. fjórsundi.

Mynd/ Sverrir Gíslason: Jón Margeir var hársbreidd frá því að landa bronsverðlaunum í 100m. bringusundi á EM í dag, hér er hann í 200m. skriðsundi.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 7. júlí 2011 14:33
Minningarmót um Hörð Barðdal þriðjudaginn 19. júlí

Golfsamtök fatlaðra á Íslandi munu standa að púttmóti í minningu Harðar Barðdal þriðjudaginn 19. júlí næstkomandi. Hörður var ötull forvígismaður golfíþróttar fatlaðra á Íslandi og gengdi formennsku hjá GSFÍ til dauðadags. Þá var Hörður á meðal fyrstu afreksíþróttamanna landsins í röðum fatlaðra og fyrrum stjórnarmaður hjá Íþróttasambandi fatlaðra.

Mótið fer fram á púttvellinum við Hraunkot (GK) í Hafnarfirði og hefst stundvíslega kl. 18.00 Skráning fer fram á if@isisport.is en einnig er hægt að skrá sig á staðnum við komu.

Keppt verður í tveimur flokkum, flokkum ófatlaðra og fatlaðra og veitt verðlaun í báðum flokkum. Sigurvegari í flokki fatlaðra fer svo heim með veglegan farandbikar en stefnt er að því að gera mótið að árlegum viðburði. Mótið var haldið í fyrsta sinn í fyrra þar sem Jóhanna Ásgeirsdóttir sigraði í flokki fatlaðra á 37 höggum.

Allar nánari upplýsingar má fá á skrifstofu Íþróttasambands fatlaðra í síma 514 4080 eða með töluvpósti á if@isisport.is

Ljósmynd/ Hörður Barðdal heitinn við púttvöllinn í Hraunkoti í Hafnarfirði.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 6. júlí 2011 17:22
Jón Margeir dæmdur úr leik

Jón Margeir Sverrisson var í morgun dæmdur úr leik í 100m. baksundi í flokki S14 á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi í Berlín. Heimur íþróttanna getur verið harður í horn að taka og því fékk Jón að kynnast í morgun og nú á hann eina grein eftir, 100m. bringusund sem hann keppir í á föstudag.

Eyþór Þrastarson keppir einnig á föstudag og þá í 100m. skriðsundi og síðasti keppnisdagurinn er næstkomandi laugardag þegar Eyþór keppir í 200m. fjórsundi.

Á mótinu hefur fjöldinn allur af metum þegar verið settur en sigursælasta þjóðin til þessa er Úkraína. Allar upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu þess www.ecswimming2011.com

Mynd/ Sverrir Gíslason: Jón Margeir, lengst til vinstri, gerir sig klára fyrir 200m. skriðsund síðastliðinn mánudag.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 5. júlí 2011 23:16
Myndasafn: Frá úrslitaleiknum gegn Svartfellingum

Við höfum nú sett inn veglegt myndasafn frá úrslitaleik Íslands og Svartfjallalands í knattspyrnu á Alþjóðaleikum Special Olympics sem lauk í gær í Aþenu í Grikklandi.

Íslenska knattspyrnuliðið keppti í 7 manna fótbolta og náði þar í silfurverðlaun, vel gert hjá strákunum sem léku vel á mótinu sem ein liðsheild og báru landsliðstreyjurnar frá KSÍ með sóma. Svartfellingar unnu úrslitaleikinn gegn okkur í B-riðli 2-1 eftir að hafa komist í 2-0.

Sjá myndirnar úr leiknum gegn Svartfellingum

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 5. júlí 2011 22:48
Þriðja keppnisdegi á EM fatlaðra í sundi lokið

Á þriðja keppnisdegi Evrópumeistaramóts fatlaðra í sundi sem nú stendur yfir í Berlin keppti Eyþór Þrastarson í 400 m skriðsundi í flokki blindra (S11)

Hafnaði Eyþór í fimmta sæti á tímanum 5:15.85 mín. sem er hans besti tími í ár.  Eyþór sem vann til verðlauna í þessu sundi á Evrópumeistaramótinu sem haldið var á Íslandi 2009 var nokkuð frá þeim tíma er hann á best en hann er nýstiginn upp úr erfiðum veikindum sem hrjáð hafa hann undanfarna mánuði.

Á morgun, miðvikudaginn 6. júlí keppir Jón Margeir Sverrisson í 100 m baksundi, flokki þroskahamlaðra (S14). Jón Margeir synti í gær, 4. júlí, í 200 skriðsundi og hafnaði í fimmta sæti á tímanum 2.06.10mín. og var við sinn besta tíma sem er 2:05.92 mín.

Allar upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu þess www.ecswimming2011.com 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 5. júlí 2011 07:31
Alþjóðaleikunum lokið í Aþenu

Í gærkvöldi fór fram lokahátíð Alþjóðaleika Special Olympics og var venju samkvæmt mikið um dýrðir. Suður-Kórea tók t.d. við fána Special Olympics á hátíðinni þar sem Vetrarleikar SO fara fram í Kóreu í janúar á næsta ári.

Íslenski hópurinn hefur verið hér í Grikklandi síðan 20. júní síðastliðinn og má með sanni segja að allir hafi gert sitt besta á leikunum. Ísland keppti í fótbolta, bocce, fimleikum, frjálsum, sundi, keilu, lyftingum og golfi og voru landi sínu og þjóð til sóma hér í vöggu íþróttanna.

Vissulega gengur ekki allt snuðrulaust fyrir sig þegar stærsta íþróttamót í heiminum fer fram en Grikkir komust engu að síður vel frá verkefninu. Alþjóðapressan hafði svo meiri áhuga á mótmælunum í Grikklandi heldur en nokkurn tíman Alþjóðaleikunum sjálfum og fannst skipuleggjendum það miður sem og fleirum.

Mynd/ Sæþór og Róbert voru kampakátir á lokahátíðinni í gær.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 4. júlí 2011 13:41
Myndunum rignir inn á www.123.is/if

Látunum linnir ekkert í myndaflóðinu hjá okkur á Special Olympics í Aþenu. Nú þegar lokahátíð leikanna er framundan í kvöld halda myndirnar áfram að streyma. Nú er komið inn nýtt myndasafn, það fimmta í röðinni, á myndasíðu ÍF www.123.is

Þetta safn kemur við í bocce, keilu og lyftingum

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 4. júlí 2011 12:56
Síðasta verk sundhópsins að landa bronsi

Mikill erill var hjá íslenska sundhópnum á Alþjóðaleikum Special Olympics í Aþenu og í gær lauk þátttöku Íslands á leikunum þegar sundhópurinn tók þátt í 4x50m. boðsundi karla. Ísland vann til bronsverðlauna í greininni, flottur árangur hjá hópnum sem hafði í mörg horn að líta alla sjö keppnisdagana.

Tómas Hajek annar tveggja sundþjálfara í ferðinni var svo valinn til að taka þátt í skemmtisundi þar sem fatlaðir og ófatlaðir kepptu saman. Tómas fór á kostum eins og honum einum er lagið líkt og allur sundhópurinn hér ytra.

Öll úrslit í sundi frá mótinu má finna hér

Mynd/ Michel Thor Malleiter kemur hér í bakkann.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 3. júlí 2011 21:28
Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi hafið: Eyþór sjöundi í úrslitum

Keppni er hafin á Evrópumeistaramóti fatlaðra sem fram fer í Berlín 3. – 10. júlí.  Óhætt er að segja að keppni á mótinu hafi hafist með látum þar sem eitt heimsmet leit dagsins ljós strax í undanrásum.  Metið setti hinn breski Jonathan Fox í 400 m skriðsundi, flokki S7.

Á alþjóðlegum mótum fatlaðra í sundi er keppt í flokkum S1 til S14.  Flokkar S1 – S10 eru flokkar hreyfihamlaðra þar sem lægsta talan gefur til kynna mestu fötlun og sú hæsta minnstu fötlun. Flokkar S11 – S13 eru flokkar blindra og sjónskertra þar sem flokkur S11 eru alblindir og S14 er flokkur þroskahamlaðra.

Í morgun synti annar tveggja íslensku þátttakendana, Eyþór Þrastarson (S11) í  undanrásum í 100 m baksundi. Komst hann nokkuð örugglega inn í úrslitin og lauk svo keppni í 7. sæti.

Eyþór hafnaði í sjöunda sæti eins og áður segir og synti á tímanum 1:19,59 mín en sigurvegarinn Viktor Smyrnov frá Úkraníu synti á 1:09.24 mín.

Á morgun, mánudaginn 4. júlí ,keppir Eyþór í 50 m skriðsundi flokki S11 og Jón Margeir í 200 m skriðsundi flokki S14 (flokki þroskahamlaðra).  Fróðlegt verður að fylgjast með gengi Jóns Margeirs á mótinu sem hefur verið á mikilli siglingu undanfarið.

Allar upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu þess www.ecswimming2011.com auk þess sem beinar útsendingar frá mótinu má sjá á www.youtube.com/paralympcisporttv

Mynd/ Eyþór Þrastarson varð sjöundi í 100m. baksundi í dag.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 3. júlí 2011 21:16
Meira af Hollywood stemmningunni í Grikklandi

Við höldum áfram í ,,sýnishorna-forminu“ frá Hollywood með myndbrotum á Youtube-síðu ÍF. Nú er komið inn annað eldsnöggt myndbrot frá hópnum og von á meiru svo fylgist grannt með hér á ÍF-síðunni.

Smellið hér til að sjá nýja myndbandið

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 3. júlí 2011 21:02
Myndasafn: Fjórða safnið frá Grikklandi

Fjórða myndasafnið frá Alþjóðaleikum Special Olympics í Grikklandi er nú dottið inn á myndasíðu ÍF á www.123.is/if

Að þessu sinni eru það frjálsar íþróttir og sund sem fá að njóta sín en í dag lauk keppni á leikunum og á morgun fer lokahátíðin fram. Að henni lokinni heldur hópurinn heim til Íslands og verður þangað kominn á þriðjudag.

Mynd/ Elsa Sigvaldadóttir kemur hér í bakkann í 200m. skriðsundi.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 3. júlí 2011 11:36
Daníel með tvö gull í Aþenu

Daníel Vignir Unnarsson vann í dag til tveggja gullverðlauna í lyftingum á Alþjóðaleikum Special Olympics í Aþenu. Daníel hafði sigur í sínum flokki, 125kg. flokki í samanlögðu og vann því til tvennra gullverðlauna og tvennra silfurverðlauna.

Daníel tók gull í samanlögðu eins og áður segir og réttstöðulyftu þar sem hann hífði upp 230 kg. Þá tók hann 115 kg. í bekkpressu og 190 kg. í hnébeygju.

Flottur árangur hjá lyftingastrákunum hér í Aþenu sem hafa skemmt sér konunglega á erfiðu móti undir stjórn þjálfara síns Arnars Más Jónssonar.

Mynd/ Daníel Unnar var að vonum kátur með árangurinn í Grikklandi.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 3. júlí 2011 06:37
Bocce-hópurinn hefur lokið keppni: Upp og niður í tvíliðaleiknum

Guðmundur Örn Björnsson og Emelía Arnþórsdóttir hafa lokið keppni í Bocce á Alþjóðaleikum Special Olympics. Í gær kepptu Guðmundur og Emelía í tvíliðaleik í bocce og dagurinn hófst brösuglega með 11-6 tapi gegn Bangladesh en næsti leikur parsins fór 12-0!

Þriðja viðureignin tapaðist og Ísland því úr leik í Bocce og í dag verður verðlaunaafhendingin. Í einstaklingskeppninni hafnaði Emelía í 4. sæti sem og Guðmundur en eins og áður hefur komið fram er bocce nokkuð frábrugðið íslensku boccia en okkar fólk stóð sig engu að síður með miklum sóma.

Mynd/ Menn klóruðu sér í hausnum í gær yfir misjöfnu gengi í bocce.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 2. júlí 2011 18:36
Gott silfur... gulli betra: Svartfellingar byrjuðu betur

Ísland vann í dag til silfurverðlauna í 7 manna fótbolta á Alþjóðaleikum Special Olympics í Aþenu í Grikklandi. Ísland og Svartfjallaland mættust í úrslitaleik B-riðils þar sem Svartfellingar fóru með 2-1 sigur af hólmi. Lárus Örn Sigurbjörnsson skoraði mark Íslands í leiknum með glæsilegu skoti og minnkaði muninn í 2-1 og þar við sat.

Íslenska liðið byrjaði varfærnislega og nokkuð lá á okkar mönnum á fyrstu mínútunum. Stíflan brast að lokum og Svartfellingar skoruðu nokkrum sekúndum fyrir hálfleik og leiddu 1-0 í leikhléi. Í síðari hálfleik var allt annað að sjá til okkar manna sem sóttu án afláts. Ólmir í að jafna metin gleymdi íslenska vörnin sér eitt augnablik og Svartfellingar komu inn öðru marki. Skömmu síðar brunaði Lárus Örn upp völlinn og skoraði með glæsilegu skoti. Það sem eftir lifði leiks sóttu Íslendingar stíft en höfðu ekki erindi sem erfiði og Svartfellingar höfðu því sigur, 2-1.

Íslenska liðið lék stórvel á mótinu og tekur á morgun á móti silfurverðlaununum. Ísland lék í B-riðli eins og áður segir en riðillinn var sá næststerkasti á mótinu en á Special Olympics er leikið í forkeppni þar sem styrkleiki liðanna er metin og þeim svo skipað í styrkleikariðla. Óhætt er að segja að Ísland hafi því verið á meðal sterkustu liðanna í 7manna boltanum þar sem 4-5 lið voru í hverjum riðli og hátt í 1500 keppendur í knattspyrnu á mótinu.

Mynd/ Íslenska knattspyrnuliðið á Special Olympics 2011. Þjálfarar liðsins eru Darri McMahon og honum til aðstoðar var Dagur Sveinn Dagbjartsson. Með liðinu á myndinni er Adrian Kriton Giannopoulos sem var sérlegur aðstoðarmaður liðsins á keppnisstað.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 2. júlí 2011 09:47
Stór dagur í Aþenu: Úrslitastund í fótboltanum

Ísland og Svartfjallaland mætast í dag kl. 13:00 (10:00 Ísl. tími) í úrslitaleik B-riðils í knattspyrnu á Alþjóðaleikum Special Olympics. B-riðill er næststerkasti riðill mótsins en leikið er í 7 manna bolta.

Ísland og Svartfjallaland mættust í riðilinum þar sem Svartfellingar höfðu 6-4 sigur í leik þar sem niðurstaðan skipti ekki máli, fyrir þann leik var ljóst að Ísland og Svartfjallaland myndu mætast í úrslitum. Okkar menn eru í góðum gír og ætla sér sigur í dag enda hafa þeir leikið vel á mótinu og gefið sig alla í verkefnið.

Í dag verður einnig verðlaunaafhending í golfi, Guðmundur og Emelía keppa í tvíliðaleik í bocce, Ísland stingur m.a. til sunds í boðsundi og þær María og Sigríður taka þátt í úrslitum í langstökki og keiluhópurinn heldur inn í liðakeppni.

Íslenski hópurinn hefur því nóg fyrir stafni í Aþenu í dag á degi sem virðist ætla að vera einn af þeim heitari en þegar þetta er ritað laust fyrir hádegi er 35 stiga hiti í Aþenu.

Mynd/ Sigurður Guðmundsson verður í eldlínunni í dag með knattspyrnuliði Íslands sem leikur til úrslita gegn Svartfellingum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 1. júlí 2011 21:34
Hollywood-stemmning í Aþenu

Íslenski hópurinn hefur staðið sig með mikilli prýði á Alþjóðaleikum Special Olympics í Aþenu síðustu daga. Veðrið hefur verið frábært og keppnisstaðirnir margir hverjir stórir og íburðamiklir og við þannig aðstæður er ekki úr vegi að setja saman smá ,,Hollywood-skotið“ myndband af tilþrifum hópsins hér ytra.

Sjá myndbandið

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 1. júlí 2011 20:52
Sveinbjörn setti þrjú ný Íslandsmet í dag

Lyftingakappinn Sveinbjörn Sveinbjörnsson fór á kostum á Alþjóðaleikum Special Olympics þegar jaxlinn rakaði inn fjórum silfurverðlaunum og þremur nýjum Íslandsmetum. Sveinbjörn er í fantaformi um þessar mundir og brosti sínu breiðasta í dag við verðlaunaafhendinguna.

Sveinbjörn setti nýtt Íslandsmet í hnébeygju þegar hann henti upp 140 kg. Næst kom Íslandsmet í réttstöðulyftu þar sem 175 kg. fóru upp og þá lyfti hann 100 kg. í bekkpressu. Samtals voru þetta 415 kg. sem Sveinbjörn lyfti í dag og er samtalan einnig nýtt Íslandsmet í 82,5kg. flokki.

Arnar Már Jónsson lyftingaþjálfari í ferðinni var að vonum ánægður með skjólstæðing sinn en Daníel Unnar Vignisson keppir svo þann 3. júlí en hann er í öðrum þyngdarflokki en Sveinbjörn.

Mynd/ Sveinbjörn Sveinbjörnsson var kampakátur með árangur sinn í dag.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 1. júlí 2011 10:38
Dagskrá Íslands á Special Olympics í dag

Nóg verður um að vera hjá íslenska hópnum á Special Olympics í Aþenu í dag, 1. júlí. Guðmundur Björnsson reið á vaðið í morgun í bocce þar sem hann hafði öruggan sigur í fyrsta leik. Elín og Sigurður eru einnig lögð af stað inn í síðasta golfhringinn á Glyfada-golfvellinum rétt utan við Aþenu.

Lyftingarnar hefja leik í dag og þar fer Sveinbjörn Sveinbjörnsson af stað kl. 13.30 að grískum tíma eða kl. 10.30 að íslenskum tíma. Fimleikar hafa lokið keppni á mótinu og fótboltastrákarnir hvíla sig vel í dag fyrir úrslitaleikinn gegn Svartfellingum á morgun.

Jón Gunnar syndir í undanrásum í 100m bringusundi kl. 12:10. Andri Hilmarsson syndir í 50m skriðsundi kl. 14:48 og Jón Gunnar syndir í 100m fjórsundi kl. 15:45. Þá verða þær María og Sigríður Erna á ferðinni í frjálsum, báðar keppa þær í 100m. hlaupi í dag.

Nú stendur yfir keilukeppnin og þegar þetta er ritað eru Gauti og Áslaug að spila.

Mynd/ Áslaug var í stuði þegar við litum inn í keilusalinn.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 30. júní 2011 20:10
Andlát: Arnór Pétursson

Enn er höggvið skarð í hóp frumkvöðla íþrótta fatlaðra hér á landi en fallinn er frá Arnór Pétursson á 62 aldursári. Arnór, sem lamaðist í bílslysi rúmlega tvítugur að aldri, lét fötlun sína aldrei hamla sér í neinu sem hann hafði áhuga á og vildi taka sér fyrir hendur.  Hann var einn af þeim sem tóku þátt í undirbúningi að stofnun Íþróttasambands fatlaðra auk þess að vera fyrsti formaður Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík, sem stofnað var 30. maí 1974, þá aðeins 25 ára gamall. 

Arnór einbeitti sér þó ekki einungis að félagslegum þáttum íþróttastarfs fatlaðra heldur var sjálfur mikill íþróttamaður.  Þannig vann hann til verðlauna í lyftingum á ýmsum alþjóðlegum mótum auk þess að vera meðal keppenda á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fór í Arnheim í Hollandi 1980, því fyrsta sem fatlaðir íslenskir íþróttamenn tóku þátt í.

Arnór gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Íþróttasamband fatlaðra og var meðal annars fyrsti formaður Ólympíumótsnefndar ÍF 1984 og sat í nefndinni allt til dauðadags.

Arnórs Péturssonar verður, líkt og annarra frumkvöðla íþróttastarfs fatlaðra, minnst fyrir að vera drengur góður og maður með stórt hjarta sem sló fyrir íþróttir fatlaðra.  Hann var hreinn og beinn í öllum samskiptum, vinur vina sinna, harður í horn að taka og stóð fast á sínu ef svo bar undir.  Drenglyndi hans var mikið og ávallt hægt að treysta á ráðleggingar hans varðandi allt er viðkom íþróttum fatlaðra.

Að leiðarlokum eru þakkir og söknuður efst í huga þegar þessi góði félagi og vinur er fallinn frá.  Blessuð sé minning Arnórs Pétursonar.

Íþróttasamband fatlaðra sendir aðstandendum Arnórs innilegustu samúðarkveðjur.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 30. júní 2011 19:42
Brons hjá Haraldi og Sigurjón í fjórða

Kapparnir Sigurjón Sigtryggsson og Haraldur Þórarinsson kepptu í 400m. hlaupi á Alþjóðaleikum Special Olympics í dag. Sigurjón keppti í flokki M04 og hafnaði í 4. sæti og Haraldur í flokki M13 og landaði þar bronsverðlaunum.

Sigurjón hljóp á tímanum 1.02,10mín. og bætti sig um eina sekúndu frá undanrásunum og Haraldur kom í mark á tímanum 1.07,35mín. og bætti sig um tæpar 4,3 sekúndur. Flottur dagur hjá frjálsíþróttaköppunum Haraldi og Sigurjóni. Á morgun keppa svo þær María og Sigríður í 100m. hlaupi.

Frjálsíþróttaþjálfarar í ferðinni eru þau Ásta Katrín Helgadóttir og Þórarinn Hannesson.

Mynd/ Haraldur Þórarinsson landaði bronsi í 400m. hlaupi í dag.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 30. júní 2011 10:33
Úrslitakeppnin hafin í golfi hjá Elínu og Sigurði

Sigurður Ármannsson og Elín Fanney Ólafsdóttir hófu áðan leik á þriðja hring í golfi á Alþjóðaleikum Special Olympics í Aþenu. Bæði keppa þau í níu holu keppni á mótinu undir stjórn Heiðrúnar Jóhannsdóttur, eins af sigursælustu kylfusveinum Íslands en Heiðrún er eiginkona Björgvins Sigurbergssonar, margfalds Íslandsmeistara í golfi.

Elín stendur vel að vígi í sínum flokki og eftir 18 holur hefur hún leikið á 136 höggum. Elín tók einnig þátt í sérstöku ,,VIP“ boðsmóti þar sem ófatlaðir kylfingar léku með keppendum í stuttri og skemmtilegri keppni undir fyrirkomulaginu Foursome. Elín lék við hvurn sinn fingur og var leyst út með verðlaunum og gjöfum eftir framlag sitt.

Sigurður hefur á brattann að sækja í sinni keppni en eftir 18 holur hefur hann leikið á 158 höggum en kappinn hefur verið að sækja í sig veðrið, lék fyrst á 81 höggi og svo 77.

Mynd/ Elín á Glyfada golfvellinum ásamt Ólafi föður sínum sem reynst hefur sleipur kylfusveinn.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 30. júní 2011 10:01
Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi

Dagana 3. – 10. júlí n.k. fer Evrópumeistaramót fatlaðra fram í Berlín. Til gamans má geta að mótið fór fram hér á landi árið 2009. Um 450 keppendur frá 37 löndum taka þátt í mótinu sem er eitt stærsta sundmót fatlaðra fyrir Ólympíumót fatlaðra sem fram fer í London 2012.  Á mótinu keppa allir bestu sundmenn Evrópu og mótið því gríðarlega sterkt og þar keppa menn ekki aðeins að því að vinna til verðlauna heldur líka að því að ná tilskyldum lágmörkum fyrir London 2012.

Tveir Íslendingar verða meðal þátttakenda, þeir Jón Margeir Sverrisson, Fjölni/Ösp sem keppir í flokki þroskahamlaðra S14 og Eyþór Þrastarson, KR/ÍFR sem keppir í flokki blindra S11.  Jón Margeir hefur átt góðu gengi að fagna á mótum hér innanlands sem og erlendis og sællar minningar vann Eyþór til silfurverðlauna i 400 m skriðsundi á mótinu árið 2009. 

Vonandi eiga þeir félagar góðu gengi að fagna á mótinu en þjálfarar og fararstjórar eru þau Kristín Guðmundsdóttir, landsliðsþjálfari ÍF í sundi og Vadim Froafonov.

Hér neðanmáls má sjá keppnisdagskrá íslensku keppendanna en allar upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu þess www.ecswimming2011.com

Sunnudagur 3. júlí  
Eyþór  100 m bak 1:18,94  1:17,53

Mánudagur  4. júlí  
Jón Margeir 200 m skrið 
Eyþór  50 m skrið 

Þriðjudagur  5. júlí  
Eyþór  400 m skrið 

Miðvikudagur  6. júlí 
Jón Margeir 100 m bak 

Föstudagur  8. júlí  
Eyþór    100 m skrið 
Jón Margeir 100 m bringa 

Laugardagur  9. júlí  
Eyþór    200 m fjór 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 29. júní 2011 22:48
Æfingabúðir í Englandi
Æfingarbúðir sundmanna í Englandi - Stoke MandvilleÞessa vikuna eru fjórir íslenskir íþróttamenn staddir við æfingar í Englandi á hinum fornfræga stað Stoke Mandeville, staðnum þar sem rekja má upphaf íþrótta fatlaðra til.  Það var á þessum stað sem faðir íþrótta fatlaðra, Sir. Ludwig Guttmann yfirlæknir á Mandeville sjúkrahúsinu, lét byggja leikvöll fyrir fatlaða íþróttamenn við sjúkrahúsið og hóf að þjálfa þá á skipulagðan hátt.  Jafnframt stóð hann fyrir landskeppni fatlaðra í Englandi á leikvanginum.
Þess má til gamans geta að fatlaðir íslenskir íþróttamenn tóku á árum áður þátt í fjölmörgum alþjóðaleikum sem þar voru haldnir.  Þá var hluti Ólympíumóts fatlaðra 1984 haldnir í Stoke Mandeville og sýnir meðfylgjandi mynd hluta íslenska hópsins við setningu þess.

Íslendingarnir sem eru við æfingar í Stoke Mandeville er frjálsíþróttafólkið Baldur Ævar Baldursson og Ingeborg Eide Garðarsdóttir og sundmennirnir Eyþór Þrastarson og Jón Margeir Sverrisson.  Frá Englandi fara Eyþór og Jón Margeir til Þýskalands þar sem þeir verða meðal keppenda á Evrópumeistaramótinu í sundi sem fram fer í Berlín 3. – 10. júlí n.k.  Ingeborg og Baldur Ævar verða síðan meðal keppenda á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fer á Selfossi 22. - 24. júlí n.k. þar sem þau munu reyna við tilskylin lágmörk vegna Ólympíumóts fatlaðra 2012.  Til stóð að borðtennismaðurinn Jóhann R. Kristjánsson yrði þar líka við æfingar en meiðsli hömluðu för hans til Englands.

Vonandi blæs andi þessa sögufræga staðar okkar ágæta íþróttafólki baráttuanda í brjóst og hvetur það til frekari afreka í framtíðinni.
 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 29. júní 2011 22:05
Þvælingur á Emilíu í dag

Emelía Arnþórsdóttir hóf keppni í Bocce í dag á Alþjóðaleikum Special Olympics í Aþenu. Í bocce eru fjórar trékúlur og ein hvít kúla. Trékúlurnar eru umtalsvert þyngri en þær sem notaðar eru í boccia á Íslandi og hver spilari fær fjórar kúlur. Íþróttin Bocce á Alþjóðaleikum Special Olympics er því nokkuð frábrugðin því sem við þekkjum heima. Leikið er t.d. frá báðum endum vallarins, leiktími hámark 25 mínútur eða upp í 12 stig í útsláttarkeppni. Emelía byrjaði vel í dag og lagði fyrsta andstæðing sinn 8-4 en þá tók að halla undan fæti og uppi varð smá fótur og fit.

Mistök í skráningum úrslita urðu til þess mikil töf varð á keppnisdeginum í Bocce og svo þegar Emelía komst loks í annan leik dagsins tapaði hún naumlega. Ævintýrið hélt áfram þar sem andstæðingur Emelíu í þriðju umferð mætti ekki til leiks en hún á að mæta í fyrramálið og leika þennan þriðja leik og mun vafalítið sýna þar allar sínar bestu hliðar.

Jónas Sigursteinsson er þjálfari Bocce hópsins í Aþenu og þar fer reyndur kappi sem mun vafalaust sjá til þess að andinn í hópnum verði góður enda ekki hætta á öðru þar sem hinn Bocce-spilarinn frá Íslandi er enginn annar en Guðmundur Örn Björnsson sem trúlofaði sig á Opnunarhátíð leikanna á dögunum.

Mynd/ Emelía lék fantavel í fyrsta leiknum í morgun.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 29. júní 2011 21:31
Óeirðirnar fjarri keppendum og keppnisstöðum

Grikkir mótmæla nú hástöfum í höfuðborginni Aþenu. Í gær og í dag hafa almenningssamgöngur legið niðri í höfuðborginni en mótmælin og pústrarnir millum lögreglu og mótmælenda eru víðsfjarri bæði keppendum og keppnisstöðum á Alþjóðaleikum Special Olympics sem standa nú yfir í Aþenu. Mótmælin beinast að yfirvöldum í Grikklandi en staðan í landinu er afar slæm og almenningur gríðarlega ósáttur við þær skattahækkanir sem boðaðar hafa verið.

Mótmælin eiga sér stað í miðborg Aþenu en gististaðir keppenda sem og sjálfir leikvangarnir eru í töluverðri fjarlægð. Boðuðu verkfalli í almenningssamgöngum hér í borginni lýkur í kvöld og þá ætti að liðkast aðeins til í umferðinni sem hefur verið fremur þung í vöfstrum síðustu tvo sólarhringa.

Í tilkynningu frá Special Olympics segir að venju samkvæmt hafi alþjóðapressan ákveðið að blása vel upp þau átök sem átt hafa sér stað í Aþenu. SO segja ennfremur að unnið sé náið með undirbúningsnefnd leikanna sem og lögregluyfirvöldum við að tryggja öryggi keppenda og gesta á leikunum.

Mynd/ María Dröfn Einarsdóttir frá Eik á Akureyri stekkur hér í langstökki, hún og aðrir keppendur Íslands og annarra eru töluvert frá miðbæ Aþenu og verða því ekki vör við mótmælin.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 29. júní 2011 18:04
Ísland leikur til úrslita gegn Svartfellingum: Fyrirliðinn blóðgaður

Íslensku strákarnir hafa tryggt sér sæti í úrslitaleik 7 manna fótboltans í B-riðli á Alþjóðaleikum Special Olympics sem nú fara fram í Aþenu í Grikklandi. Ísland mætti Austurríkismönnum í dag og hafði betur 4-1. Íslenska liðið hefur því unnið alla leiki sína á mótinu til þessa.

Á morgun mætast Ísland og Svartfjallaland í riðlakeppninni en úrslitin í þeim leik skipta ekki máli upp á framhaldið. Liðin mætast svo aftur á laugardag í hreinum úrslitaleik um gullið í B-riðli. Leikurinn á morgun er kl. 12:00 að staðartíma eða kl. 09:00 að íslenskum tíma.

B-riðill er næststerkasti riðill mótsins en Ísland lék fjóra leiki í flokkun þar sem verið var að meta styrkleika liðsins og þeir unnust allir. 1-0 sigur gegn Hollendingum, 3-1 sigur gegn Þjóðverjum, 3-0 sigur gegn Sviss og loks 1-0 sigur gegn Lúxemborg.

Eftir að knattspyrnuliðið hafði lokið leik sínum þriðjudaginn 28. júní var fyrirhugað að strákarnir tækju lífinu með ró inni á hótelherbergi fram að kvöldmat. Það fór hins vegar ekki betur en svo að fyrirlið liðsins, Sæþór Jensson, endaði inni í sjúkraherbergi með skurð á höfði.

Þannig var að Sæþór, fyrirliði íslenska liðsins, og herbergisfélagi hans Jakob Alexander voru að horfa á stráka spila fótbolta í garðinum fyrir utan hótelherbergið þegar allt í einu kemur bolti svífandi í áttina að þeim. Boltinn endaði í rúðunni sem mölbrotnaði og fékk Sæþór glerbrot í höfuðið. Strákarnir fengu í kjölfarið að skipta um herbergi enda glerbrot í hverjum krók og kima, upp í rúmi o.s.frv.

Búið var um sár Sæþórs og náði hann að spila leikinn í dag með veglegar umbúðir á höfði.

Myndir/ Á efri myndinni sést hvernig búið var um höfuð fyrirliðans í leiknum gegn Austurríki í dag og á þeirri neðri fagna piltarnir með áhorfendum sínum eftir öruggan 3-0 sigur gegn Sviss á dögunum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 27. júní 2011 21:42
Myndasafn frá Opnunarhátíðinni

Opnunarhátíð Alþjóðaleika Special Olympics í Aþenu var ekkert slor og íslenski hópurinn skemmti sér konunglega. Fjölda mynda frá hátíðinni má nú finna inni á myndasafni ÍF á www.123.is/if eða með því að smella hér.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 26. júní 2011 21:12
Heimsbyggðin viðstödd þegar Guðmundur og Áslaug settu upp hringa

Opnunarhátíð Alþjóðaleika Special Olympics fór fram í Aþenu í gærkvöldi með pompi og prakt en mesta lukku í íslenska hópnum vakti þó uppátæki þeirra Guðmundar Arnar Björnssonar og Áslaugar Þorsteinsdóttur en þau eru keppendur á vegum Íslands á leikunum. Guðmundur og Áslaug trúlofuðu sig í gær á meðan þúsundir íþróttamanna streymdu inn á Kallimarmaro Panathinaiko Stadium. Óhætt er að fullyrða að þessi trúlofun sé með eitthvert mesta áhorf sem um getur í Íslandssögunni og parið átti með íslenska hópnum eftirminnilega kvöldstund.

Bæði koma þau Guðmundur og Áslaug frá Þjóti á Akranesi, Guðmundur keppir í boccia og Áslaug í keilu. Venju samkvæmt marsera íþróttamenn leikanna inn á leikvanginn við opnunarhátíðina og þegar Ísland, sem var nr. 52 í röðinni, hafði lokið sinni marseringu stigu þau Áslaug og Guðmundur fram og skiptust á hringum við mikið lófatak viðstaddra.

Þó mikið hafi verið um dýrðir á opnunarhátíðinni þá voru það Áslaug og Guðmundur sem áttu sviðið í gær, í það minnsta í hugum þeirra Íslendinga sem viðstaddir voru þetta skemmtilega uppátæki turtildúfnanna.

Til hamingju Áslaug og Guðmundur!

Af opnunarhátíðinni er það að segja að um tæplega fjögurra tíma veislu var að ræða þar sem enginn annar en Stevie Wonder tók lagið við miklar og góðar undirtektir viðstaddra og leikkonan Vanessa Williams hóf upp raust sína og splæsti í dúett með hr. Wonder í laginu ,,That´s what friends ar for.“ Wonder er jafn harður af sér og hinn aldni marmari þessa elsta íþróttaleikvangs í heiminum þar sem hátíðin fór fram. Wonder hefur engu gleymt og ekki fallið skuggi á nokkurn einasta tón hjá tónlistarmanninum síðustu áratugi.

Þá var sundgarpurinn Andri Hilmarsson úr Ösp í Reykjavík valinn til þess að vera merkisberi Íslands og hélt hann á merki hópsins á meðan marserað var inn á leikvanginn.

Í dag og á morgun eru íþróttamenn svo við skoðanir og prufur en þær eru ávallt gerðar áður en keppni hefst á Special Olympics til að meta í hvaða styrkleikaflokki hver íþróttamaður á heima. Þannig er tryggt að hver og einn keppandi geti gert sitt besta á jafnréttisgrundvelli.

Við munum svo birta keppnisdagskrá íslenska hópsins eins fljótt og auðið er en endanleg dagskrá fæst ekki fyrr en skoðunum og prufum er lokið.

Myndir/ Á efri myndinni er fólk Opnunarhátíðarinnar, þau Áslaug og Guðmundur, hið nýtrúlofaða par að sýna okkur hringana sína. Á neðri myndinni er allur íslenski hópurinn í Henson-göllunum góðu á meðan beðið var eftir því að marsera inn á leikvanginn.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 25. júní 2011 07:49
Vinabæjarheimsókn lokið: Opnunarhátíðin í kvöld

Special Olympics hópur Íslands er nú kominn til Aþenu þar sem hann dvelur til 5. júlí næstkomandi eftir rólega daga í vinabæjarheimsókninni. Þegar íslenski hópurinn kom inn til Aþenu var honum skipt upp í þrjár einingar eftir íþrótt, hver hópur dvelur eins nálægt sínum keppnisstað og mögulegt er.

Saman í norðurhluta borgarinnar eru keppendur í frjálsum, sundi og lyftingum. Þá sunnar í borginni eru saman fimleikar, boccia og golf og syðsti hópurinni hér í Aþenu er knattspyrnuhópur Íslands.

Þó íslenska hópnum hafi verið skipt upp í gærkvöldi verður hann sameinaður að nýju í kvöld þegar opnunarhátíð Alþjóðaleika Special Olympics fer fram. Marsering þjóðanna inn á hinn margfræga Kallimarmaro Panathinaiko Stadium hefst kl. 20:45 að staðartíma eða kl. 17:45 að íslenskum tíma. Farið verður að venju eftir stafrófsröð en kl. 17:00 (ísl. tími) hefjast sýningar og viðburðir á leikvanginum. Kl. 17:30 hefst svo bein útsending frá hátíðinni.

Fyrir íslenska hópnum liggur því viðburðaríkur dagur enda um 7500 íþróttamenn frá 185 löndum sem munu sjá til þess að gera daginn eftirminnilegan.

Mynd/ SO hópur Íslands fyrir utan Hotel Port Marina þar sem hann dvaldi í vinabæjarheimsókn dagana 20.-24. júní.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 23. júní 2011 19:02
Einn sigur í liðakeppni á opna þýska

Jóhann R. Kristjánsson tók á dögunum þátt í opna þýska meistaramótinu í borðtennis sem fram for í Bayreut í Þýskalandi. Jóhann, sem keppir í sitjandi flokki C2, tapaði báðum leikjunum í sínum flokki en í liðakeppni vannst einn leikur.

Jóhann, sem glímir við meiðsli í olnboga, hefur átt erfitt uppdráttar í undanförnum mótum og fá styrkleikastig komið í hús. Vonandi breytist það eftir að aðgerð hefur verið gerð á olnboganum og Jóhann nái sér á strik í þeim mótum sem hann hyggur á þátttöku í á næstunni.

 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 22. júní 2011 16:00
Myndasafn: Fyrstu dagarnir í Grikklandi

Fyrsta myndasafnið frá íslenska hópnum er nú komið á netið en hópurinn unir hag sínum vel í vinarbæjaráætlun Special Olympics. Hópurinn er í Halkidiki-svæðinu í Grikklandi og hefur náð bæði nokkrum æfingum og að slaka á og sleikja sólina.

Hægt er að nálgast þessar fyrstu myndir hér – eða með því að fara beint inn á www.123.is/if

Mynd/ Helgi Magnússon fimleikamaður hnykklaði vöðvana á ströndinni í dag.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 21. júní 2011 11:27
Langt og strangt ferðalag að baki

Íslenski Special Olympics hópurinn er kominn til Grikklands og þegar farinn að sleikja upp sólina eftir langt og strangt ferðalag. Hópurinn lagði árla morguns 20. júní af stað frá Leifsstöð til London og þaðan lá leið til Grikklands. Þegar komið var til Grikklands tók við tíu klukkustunda rútuferð í vinabæinn þar sem dvalið verður næstu þrjá daga áður en opnunarhátíð Alþjóðaleika SO hefst í Aþenu þann 25. júní næstkomandi.

Hópurinn er smátt og smátt að ná áttum en ferðalagið tók vel á hópinn sem þó sýndi aldrei neitt annað en hörku og dugnað. Þegar komið var á Hotel Port Marina voru ferðalangarnir ekki lengi í baðfötin og beint út í laug en þegar þetta er ritað er 30 stiga hiti og léttskýjað hér í Grikklandi og von á áframhaldandi veðurblíðu.

Hópurinn mun í dag taka því rólega við hótelið en strax á morgun hefst dagskrá vinarbæjarheimsóknarinnar og margt að sjá og því spennandi að vita hvað heimamenn hafa undirbúið fyrir hópinn.

Myndir/ Efri mynd: Lyftingakappar Íslands voru fljótir að snara sér í baðfötin og sleikja upp sólina. Á neðri myndinni eru vaskir fótboltakappar við upphaf ferðarinnar í Leifsstöð.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 16. júní 2011 14:54
Pokasjóður styrkir Sumarbúðir ÍF

Pokasjóður úthlutar árlega styrkjum til hinna ýmsu verkefna á sviði umhverfis- og mannúðarmála. Sjóðurinn veitti nú í 16. sinn styrki sína sem í ár námu 60 milljónum króna en alls hefur Pokasjóður úthlutað um 1.100 milljónum á þessum árum.
Pokasjóður hefur frá árinu 2004 styrkt Sumarbúðir Íþróttasambands með  myndarlegu fjárframlagi og veitti Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF, sem veitti styrknum viðtöku að þessu sinni.

Íþróttasamband fatlaðra færir stjórn Pokasjóðs sínar bestu þakkir fyrir velvilja og veittan stuðning nú sem áður. Stuðningur Pokasjóðs er Íþróttasambandi fatlaðra, sumarbúðunum og þeim sem þær sækja mikils virði og gerir sambandinu kleift að standa jafn myndarlega að starfseminni og raun ber vitni.

Mynd/ Sveinn Áki formaður ÍF tekur við styrknum frá Pokasjóði frá fulltrúa sjóðsins.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 14. júní 2011 13:05
Tilkynning: Leið mistök við útsendingu valgreiðsluseðla

Liður í undirbúningi og fjármögnun þátttöku Íslands á Alþjóðaleikum Special Olympics var að senda út valgreiðsluseðla ásamt ítarlegri kynningu á þátttöku Íslands í leikunum. Um var að ræða greiðsluseðil sem sendur var til valinna fyrirtækja. Á kynningarblaðinu kemur fram að um valgreiðsluseðil sé að ræða, þ.e. að viðkomandi ráði því hvort hann greiði seðilinn eður ei.

Því miður gerðust þau leiðu mistök að fram kemur í seðlinum að dráttarvextir reiknist frá gjalddaga sé greitt eftir eindaga. Þetta er að sjálfsögðu ekki tilfellið, engir dráttarvextir reiknast á þennan valfrjálsa greiðsluseðil, fólki er í sjálfvald sett hvort það styrki við verkefnið.

Íþróttasamband fatlaðra og Special Olympics á Íslandi biðjast velverðingar á þessum leiðu mistökum.

Kynningarblaðið sem fylgir seðlinum:

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 12. júní 2011 16:05
Tímamót á Íslandsmóti ÍF í frjálsum

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra fór fram á Laugardalsvelli laugardaginn 11. júní síðastliðinn. Mótið markaði tímamót í íþróttasögu fatlaðra hérlendis þar sem í fyrsta sinn tóku þátt íslenskir keppendur í flokkum 40-44 sem eru flokkar hreyfihamlaðra er notast við stoðtæki eins og gervifætur.

Davíð Jónsson ruddi brautina í flokki fullorðinna þegar hann varð fyrstur til þess að keppa í flokki 44. Davíð keppti í kúluvarpi og 100m. hlaupi og setti, eins og gefur að skilja, Íslandsmet í báðum greinum. Í 100m. hlaupi kom hann í mark á 22,04 sek. og í kúluvarpinu kastaði hann lengst 8,22m. Sjá svipmyndir frá mótinu og viðtal við Davíð á RÚV.

Þá vöktu ungir iðkendur verðskuldaða athygli á mótinu en vaskur hópur krakka úr Æskubúðum ÍF og Össurar var skráð á mótið sem og krakkar af barnanámskeiði blindra og sjónskertra á vegum Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Allur þessi hópur keppti í svokallaðri þríþraut, 60m. hlaupi, langstökki og boltakasti og fengu allir þátttökuviðurkenningu fyrir sín afrek á mótinu. Spennandi hópur frjálsíþróttakrakka hér á ferðinni sem vert verður að fylgjast með í náinni framtíð.

Einnig féllu nokkur Íslandsmet og þar lét Norðanmaðurinn Kristófer Sigmarsson frá Eik ekki sitt eftir liggja en kappinn setti nýtt og glæsilegt met í langstökki þroskahamlaðra. Kristófer stökk 5,51m. í flokki ungkarla (þroskahamlaðir) og var stökkið hans met einnig í flokki fullorðinna.

Veglegt myndasafn frá mótinu

Úrslit mótsins

Nánar verður greint frá mótinu í máli og myndum í Hvata, tímariti ÍF, sem kemur út síðar í þessum mánuði.

Mynd/ Tomasz Kolodziejski: Davíð Jónsson er hér í kúluvarpi í flokki 44.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 10. júní 2011 13:40
Alþjóðaleikar Special Olympics í Grikklandi 25. júní – 4. júlí 2011

Alþjóðaleikar fyrir fólk með þroskahömlun  - þar sem allir eru sigurvegarar

www.specialolympics.org
www.athens2011.org

Alþjóðaleikar Special Olympics eru haldnir fjórða hvert ár. Árið 2003 fóru leikarnir í fyrsta skipti fram utan Bandaríkjanna en þá fóru þeir fram í Írlandi og árið 2007 í Kína. Næstu alþjóðaleikar verða í Aþenu í Grikklandi 25. júní til 4. júlí 2011. Alþjóðasamtök Special Olympics hafa náð gífurlegri útbreiðslu og nú eru um 3.5 milljón iðkenda um heim allan. Á leikunum í Aþenu verða 7000 keppendur frá 180 þjóðum, 3.500 starfsmenn íþróttagreina auk 25.000 sjálfboðaliða, aðstandenda, gesta, fjölmiðlafulltrúa og áhorfenda. Keppnisgreinar eru Badminton, boccia, blak, borðtennis, fimleikar, frjálsar, körfubolti, handbolti, hestaíþróttir, golf, judo, keila, kajakróður, knattspyrna, lyftingar, siglingar, sund, skautahlaup, softball, tennis, hjólreiðar, MATP. 

Kjörorð leikanna er; I´m in eða ég er með og  tákn leikanna er sólarguðinn Appollo
Lógó leikanna á að endurspegla gríska landslagið og litirnir tákna lífsgleði, bjartsýni, staðfestu, frelsi og von

Íþróttasamband fatlaðra sendir 36 keppendur til Grikklands sem keppa í boccia, fimleikum, frjálsum íþróttum, golfi, keilu,  knattspyrnu, lyftingum og sundi.  Keppendur eru frá Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Garði, Selfossi, Akranesi, Siglufirði, Akureyri, Ísafirði og Bolungarvík.  Frá 20. – 24. júní verður hópurinn í vinabæ á svæðinu Halkidiki sem er skagi suðaustur af Thessaloniki.  Vinabæjardagskrá er sett upp í þeim tilgangi að þátttakendur kynnist lífi heimafólks og myndi tengsl við íbúa.  Þrír  tangar einkenna landslagið en þetta svæði er eitt það fallegasta í Grikklandi.  Þegar keppni hefst verður íslenski hópurinn á þremur gististöðum  í Aþenu en gististaðir taka mið af  fjarlægð til keppnisstaða.  Stór hópur aðstandenda fer frá Íslandi og 2 íslenskir handboltadómarar  taka þátt í dómgæslu  á leikunum.

Opnunarhátíð verður  25. júní og lokahátíð 4. júlí. Umfang og glæsileiki  alþjóðaleika Special Olympics líkist helst ólympíumótum en keppnisform er gjörólíkt. Engin lágmörk þarf á leikana en fyrstu dagana fer fram skipting í jafna getuflokka.  Þá hefst úrslitakeppni þar sem hámark 8 lið eða einstaklingar keppa sín á milli.   Gull, silfur og brons eru veitt fyrir fyrstu þrjú sætin og verðlaunaborðar fyrir fjórða til áttunda sæti. Þátttakendur á leikum Special Olympics eru einstaklingar með þroskahömlun en einnig er  keppt í samsettum liðum fatlaðra og ófatlaðra.  Heimsfrægt íþróttafólk verður viðstatt leikana s.s. Nadia Comaneci,fimleikastjarna, Vanessa Williams tenniskona og Yao Ming, leikmaður NBA auk fjölda annarra. 

Special Olympics samtökin gefa fólki með þroskahömlun tækifæri til að sýna hvað í þeim býr á jafnræðisgrundvelli.  Í  gegnum íþróttastarfið hafa þjóðir heims sameinast á glæsilegum leikum þar sem byggt er á samvinnu, samkennd, umburðarlyndi og virðingu fyrir margbreytileika mannlífsins Þátttakan er aðalatriðið, allir keppa við sína jafningja og allir eiga sömu möguleika á verðlaunum. 

Hugmyndafræði Special Olympics byggir á gildi umburðarlyndis og jafnræðis. Lögð er megináhersla á þátttöku, ánægju, einstaklingsmiðaða færni og vináttu.

Nánar um Special Olympics samtökin
Íþróttasamband fatlaðra er umsjónaraðili starfsemi samtakanna á Íslandi og Ísland hefur tekið virkan þátt í alþjóðaverkefnum.  Forseti Íslands,  Ólafur Ragnar Grímsson, hefur verið í alþjóðastjórn samtakanna og stutt dyggilega við starfið á Íslandi.  Special Olympics samtökin voru stofnuð árið 1968. Eunice Kennedy Shriver var forsvarsmaður frá upphafi en sonur hennar Timothy P. Shriver hefur nú tekið við keflinu.  Systkini hans, Maria Owings Shriver, Robert Shargent Shriver lll, Mark Kennedy Shriver og Anthony Paul Kennedy Shriver verða einnig viðstödd leikana en þeirra bíður erfitt hlutverk, að fylgja eftir árangursríku ævistarfi foreldranna í þágu Special Olympics samtakanna.  

Mynd;   Jóhann Fannar Kristjánsson, keppandi í fimleikum en hann æfir með fimleikadeild Gerplu

Nánari upplýsingar um ferðina má fá á skrifstofu ÍF
Sími: 514 4083  /   Anna K Vilhjálmsdóttir 897 5523

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 8. júní 2011 10:51
Fjörður bikarmeistari í sundi fjórða árið í röð: Heimsmet í Vatnaveröld
Bikarkeppni ÍF 2011 var haldin að þessu sinni í Vatnaveröld Reykjanesbæ þann 4. júní og þar voru mætt til leiks Óðinn, ÍFR, Öspin og Fjörður, ríkjandi bikarmeistarar síðustu þriggja ára. Bikarkeppnin fór sem fyrr fram í 25m. laug. Jón Margeir Sverrisson tók sig til og setti annað heimsmet en það gerði kappinn í 200m. skriðsundi og því tvö heimsmet sem kappinn hefur sett á skömmum tíma en hans fyrsta kom í Þýskalandi á dögunum í 800m. skriðsundi í 50m. laug.

Þetta mót markar þau tímamót að aldrei hefur verið svo jafnt allt mótið eins og þetta árið og lengi vel voru þrjú lið að að berjast um þrjú efstu sætin fram á síðustu stundu og á endanum voru aðeins 60 stig sem skildu að fyrsta og annað sætið og stóð Fjörður uppi sem sigurvegari í fjórða sinn á jafnmörgum árum.

Öspin hafnaði í öðru sæti, ÍFR í þriðja sæti og Óðinn í fjórða sæti. Mikil nýliðun hefur orðið á milli ára og voru mörg ný andlit í bikarkeppninni þetta árið.  Það er ljóst bikarkeppnin 2012 verður mjög spenandi því liðin munu leggja allt í sölurnar til þess að komast á toppinn enda ekki voru mörg stig sem skildu að liðin en lokatölur voru eftirfarandi:

Fjörður 11.773 stig
Ösp 11.713 stig
Ífr 10.842 stig
Óðinn 7.898 stig.

Nokkur Íslandsmet féllu á Bikarkeppninni og eitt heimsmet.

Jón Margeir Sverrisson S14 200 frjáls aðferð 2:00,74 (Heimsmet)
Thelma B. Björnsdóttir S6 200 frjáls aðferð 3:27,30 
Marinó Adolfsson  S8 50 bak   0:46,51 
Vaka Þórsdóttir  S11 50 bak   1:05,75 
Marinó Adolfsson  S8 50 flug   0:52,91 
Jón Margeir Sverrisson S14 100 frjáls aðferð 0:55,96 
Vaka Þórsdóttir  S11 100 bak  2:25,51
Jón Margeir Sverrisson S14 50 frjáls aðferð 0:25,60

Mynd/ Sigurlið Fjarðar 2011.

Björn Valdimarsson Sundnefnd ÍF
 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 6. júní 2011 16:55
Snilldartaktar á Íslandsleikum SO í knattspyrnu

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu fóru fram á gervigrasi Víkings á dögunum þar sem snilldartaktar litu dagsins ljós. Fjöldi marka var skoraður og liðin sýndu góða knattspyrnu á löngum köflum og ljóst að knattspyrna fatlaðra er í mikilli sókn hérnlendis.

Keppt var í tveimur styrkleikaflokkum, getumeiri og getuminni. Lið Aspar bar sigur úr býtum í báðum flokkum og þá var sérstakt SO lið á mótinu en það knattspyrnulið keppti í flokki getumeiri og hafnaði í 2. sæti en liðið samanstendur af keppendum sem munu taka þátt í Sumarleikum Special Olympics í Aþenu síðar í þessum mánuði.

Knattspyrnudeild Víkings stóð að framkvæmdinni ásamt ÍF og er Víkingum þakkaður stuðningurinn en mótið tókst með eindæmum vel og vitaskuld voru grillaðar pylsur sem skolað var niður með Svala að móti loknu.

Úrslit mótsins:

Getumeiri:
1. Ösp
2. SO Ísland
3. Nes

Getuminni:
1. Ösp
2. Nes

Hér má nálgast myndasafn frá mótinu

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 6. júní 2011 16:35
Íslandmótið í frjálsum á laugardag

Laugardaginn 11. júní næstkomandi fer fram Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum á Laugardalsvelli í Reykjavík. Mótið hefst kl. 12:00 og stendur til kl. 15:00 svo upphitun hefst kl. 11:30.

Skráningum ber að skila í mótið í dag, mánudaginn 6. júní á astakata@fss.is með cc á if@isisport.is

ATH:  Aðildarfélög ÍF eru hvött til að koma með 1-2 aðstoðarmenn á mótið sem gætu aðstoðað við að raka, mæla og annað slíkt á meðan móti stendur.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 31. maí 2011 16:55
Silfur og brons hjá Baldri í Hollandi

Baldur Ævar Baldursson tók þátt á opna hollenska mótinu í frjálsum íþróttum um síðastliðna helgi og var markmiðið að ná lágmarki í langstökki fyrir Ólympíumót fatlaðra í London á næsta ári. Lágmarkið er 5.10m í langstökkinu í flokki T37, flokki Baldurs, en ekki gekk það að þessu sinni þar sem Baldur stökk lengst 4.77m. á mótinu ytra og hafnaði í 5. sæti.

Nokkur vonbrigði að hann skyldi ekki stökkva lengra í Hollandi en Baldur mun reyna við lágmarkið á nýjan leik á MÍ á Selfossi síðla júlímánaðar.

Baldur vann til silfurverðlauna í spjótkasti í Hollandi þegar hann kastaði 28,25m. og þá landaði Baldur bronsverðlaunum í kúluvarpi er hann kastaði kúlunni 10,95m. og er þetta með hans bestu köstum síðastliðin tvö ár en Íslandsmet Baldurs í flokki 37 er 11,16m.

Mynd/ Baldur Ævar á Ólympíumóti fatlaðra í Peking 2008.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 24. maí 2011 15:07
Bikarkeppni ÍF í sundi í Reykjanesbæ

Nú er komið að bikarkeppni ÍF í sundi. Mótið verður í Sundlauginni Reykjanesbæ laugardaginn 4. júní.  Upphitun hefst kl. 12:00 og mótið 13:00.  Mótið ætti ekki að taka nema um tvo tíma.  Reglurnar í ár eru þær sömu og fyrri ár.  Hver keppandi má mest keppa í þremur greinum og hvert félag má mest senda tvo keppendur í hverja grein.  Stigin eru svo reiknuð út frá heimsmeti í flokki viðkomandi sundmanns.

Keppt verður í eftirfarandi greinum.

1. Grein 200 m skrið karla  2. Grein 200 m skrið kvenna
3. Grein 50 m bak karla      4. Grein 50 m bak kvenna
5. Grein 100 bringa karla   6. Grein 100 bringa kvenna
7. Grein 50 flug karla           8. Grein 50 flug kvenna
9. Grein 100 m skrið karla 10. Grein 100 m skrið kvenna
11. Grein 100 m bak karla 12. Grein 100 m bak kvenna
13. Grein 50 bringa karla   14. Grein 50 bringa kvenna
15. Grein 100 fjór karla       16. Grein 100 fjór kvenna
17. Grein 50 skrið karla     18. Grein 50 skrið kvenna

Mikilvægt er að það komi skýrt fram í hvaða flokkum sundmennirnir eru.  Ef sundmennirnir hafa ekki verið flokkaðaðir formlega verður einnig að geta þess í skráningu.
Skráningum skal skilað til ÍF á  if@isisport.is í síðasta lagi mánudaginn 30. maí.

Mynd/ Fjörður er ríkjandi bikarmeistari.

Sundnefnd ÍF

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 23. maí 2011 12:18
Minning: Júlíus Arnarsson

Júlíus Arnarsson formaður
Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík

Stórt skarð er enn á ný höggvið innan Íþróttafélags  fatlaðra í Reykjavík og íþróttahreyfingu fatlaðra. Formaður Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík Júlíus Arnarsson lést laugardaginn 21. maí síðastliðinn. Hann hafði allt frá fyrsta starfsári ÍFR og fram til síðasta dags verið þjálfari hjá félaginu jafnframt því að gegna ýmsum ábyrgðarstörfum fyrir ÍFR og íþróttahreyfingu fatlaðra.  Sem stjórnarmaður ÍFR og formaður frá árinu 1997 vann hann ötullega að því að efla fjölbreytta starfsemi félagsins og hann átti einnig stóran þátt í að byggja upp öflugt getraunastarf ÍFR.

Sem þjálfari í mörgum greinum innan ÍFR lagði hann grunn að afrekum félagsmanna ÍFR sem náð hafa árangri á alþjóðavettvangi en ekki síst var það hans áhugamál að þjálfa ung fötluð börn. Síðustu árin hefur hann verið í forsvari fyrir æfingar hjá ungum börnum sem eru að hefja íþróttaiðkun í íþrótta- og sundskóla ÍFR. Hans lífsstarf sem þjálfari og kennari var sérlega farsælt og þetta starf átti hug hans allan. Júlíus var einstakt ljúfmenni og góður vinur sem verður sárt saknað.

Íþróttasamband fatlaðra kveður góðan vin og félaga með þökk fyrir einstakt lífsstarf í þágu fatlaðs íþróttafólks og sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu hans.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 23. maí 2011 11:28
11 fatlaðir sundmenn á Landsbankamóti ÍRB í Reykjanesbæ

Landsbankamót ÍRB fór fram helgina 13-15 maí í Vatnaveröld Reykjanesbæ.  Mótið fór fram í 50 metra laug og kepptu fatlaðir og ófatlaðir saman á mótinu. Frá ÍFR komu 7 sundmenn, 2 frá Firði og 2 frá Fjölni.

Fjögur  Íslandsmet voru sett á mótinu af þremur einstkalingum og fyrstur til þess að setja Íslandsmet var Marinó Ingi Adolfsson S8 í 100 metra baksundi á tímanum 1.41.23mín. og bætti 18 ára gamalt Íslandsmet í sundinu. Næsta Íslandsmet kom hjá Kolbrúnu Öldu Stefánsdóttur S14 í 200 metra baksundi á tímanum 3.11.97mín. og bætti hún 19 ára gamalt Íslandsmet í sundinu og var þetta fyrsta Íslandsmet Kolbrúnar.

Þriðja Íslandsmetið kom hjá Thelmu Björg Björnsdóttur S6 í 400 metra skriðsundi á tímanum 7.09.37mín. Fjórða Íslandsmetið kom hjá Marinó Inga Adólfsyni S8 í 50 metra baksundi á tímanum 48.25 sek.  Við óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn. 

Öll aðstaða var til fyrirmyndar á staðnum og fötluðum gert aðgengið mjög þægilegt til og frá sundlaug og mótshaldarar eiga þökk fyrir góða umgjörð. Bikarkeppni ÍF fer fram í sundlauginni þann 4. júní næstkomandi og var gott fyrir sundmennina að kynnast keppnislauginni fyrir það mót.

Mynd/Úr safni: Marinó Ingi átti gott mót í Reykjanesbæ.

Björn Valdimarsson sundnefnd ÍF

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 18. maí 2011 12:04
Lyfja hf. og Íþróttasamband fatlaðra í samstarf

Lyfja hf og Íþróttasamband fatlaðra hafa gert með sér samning um samstarf og stuðning fyrirtækisins við starfsemi sambandsins. Þannig bætist Lyfja hf. nú í hóp þekktra fyrirtækja sem stutt hafa dyggilega við íþróttir fatlaðra hér á landi. 

Jákvæð ímynd Lyfju hf. fellur vel að ímynd Íþróttasambands fatlaðra en báðir aðilar stuðla að betri heilsu fólks. Lyfja hf. mun með samningi þessum renna styrkari stoðum undir starfssemi Íþróttasambands fatlaðra, þjóðfélaginu og fötluðu íþróttafólki til hagsbóta.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 17. maí 2011 15:23
Afmæli: ÍF 32 ára í dag

Íþróttasamband fatlaðra fagnar 32 ára afmæli sínu í dag, 17. maí, en sambandið var stofnað þennan dag árið 1979.  Fyrsti formaður þess var Sigurður Magnússon en árið 1984 tók Ólafur Jensson við formennsku sem hann gegndi til ársins 1996 er núverandi formaður, Sveinn Áki Lúðvíksson, tók við. 

Aðildarfélög sambandsins voru fimm þegar það var stofnað, Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík, Akur og Eik á Akureyri, Björk og Íþróttafélag heyrnarlausra.  Félögunum fjölgaði síðan ört á næstu árum og eru nú 21 talsins auk þess fatlaðir íþróttamenn í dag æfa og keppa í hinum ýmsu félögum ófatlaðra.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 17. maí 2011 12:08
Knattspyrnunámskeið Aspar og Víkings

Íþróttafélagið Ösp og Knattspyrnufélagið Víkingur munu standa að knattspyrnunámskeiðum fyrir fatlaða og þroskahamlaða krakka/unglinga í sumar.

• Um er að ræða tvö tveggja vikna námskeið í senn og hefst fyrsta námskeið 11. júlí og er til 22. júlí og hið seinna byrjar 25. júlí og er til 5. ágúst.
• Hvert námskeið er frá mánudegi til föstudags , helgar eru ekki með taldar.
• Hvert násmkeið byrjar kl.08.30 á hverjum degi og stendur til kl.12
• Krakkar eiga að koma með nesti  með sér sem verður snætt í kaffitímanum/pásunni sem tekin er í kringum kl.10

Markmið námskeiðsins eru:

• Bæta grunntækni í knattspyrnu
• Stuðla að heilsusamlegri hreyfingu
• Stuðla að góðum félagsskap
• Auka áhuga á knattspynu og hreyfingu almennt
• Stuðla að jákvæðri upplifun af  knattspyrnu  og  hreyfingu
• Að allir skemmti sér og læri eitthvað
Kostnaður er  kr 8.000,- fyrir námskeið

Nánari upplýsingar veitir Darri McMahon í síma 8678049 eða Ólafur Ólafsson formaður. Sími 8998164. Netfang: ospin@ospin.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 9. maí 2011 17:39
Jóhann og Reup duttu út í 8-liða úrslitum

Borðtennismaðurinn Jóhann Rúnar Kristjánsson lauk um helgina þátttöku sinni í opna slóvenska borðtennismótinu en hann komst í 8-liða úrslit með Austurríkismanninum Hans Reup í liðakeppninni. Í 8-liða úrslitum mættu strákarnir franskri sveit sem reyndist of sterk.

Leikurinn fór 3-0 Frökkunum í vil og Jóhann og Reup þar með úr leik. Jóhann kvaðst í snörpu samtali við heimasíðu ÍF ánægður með árangurinn ytra en hann komst ekki upp úr sínum riðli í einstaklingskeppninni en fór í 8-liða úrslit með Reup í liðakeppninni.

Ferðin hjá Jóhanni gekk ekki slysalaus fyrir sig þar sem dekk sprakk á hjólastóli Jóhanns og þá greindist hann með tennisolnboga ytra og kenndi sér eymsla vegna hans.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 9. maí 2011 17:18
Átta Íslandsmet féllu á Vormóti Aspar í Laugardalslaug

Vormót Aspar í sundi í 25m. laug fór fram um síðastliðna helgi í Laugardalslaug. Um 120 keppendur úr 7 félögum skráðu iðkendur til keppni þar sem átta Íslandsmet féllu.

Eftirtaldir settu Íslandsmet á mótinu:

Jón Margeir Sverrisson Ösp,S14
50m skrið synti á 25.76 s
100m skrið 56.79 
Stigahæsti sundmaður mótssins með 870 fyrir 50 metra skriðsund 

Thelma B. Björnsdóttir ÍFR, S6
50m skrið synti á 45.27 s
100m skrið 1:38.40 s 

Hjörtur  Ingvarsson  ÍFR, S5
100m  fjórsund  synti á 2:10.14

Marinó Adolfsson ÍFR, S8
100m fjórsund 1:51.15   
 
Vaka Þósdóttir Firði, s11
100m skrið 2:46.00
100m bak 2:26.66

Mynd/ Hér fremst á myndinni til vinstri er Vaka Þórsdóttir úr Firði sem setti tvö ný Íslandsmet um helgina. Mynd þessi er tekin á Nýárssundmóti barna og unglinga í janúar á þessu ári.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 6. maí 2011 16:21
Jóhann og Reup komnir í 8-liða úrslit í Slóveníu

Borðtennismaðurinn Jóhann Rúnar Kristjánsson og Austurríkismaðurinn Hans Reup eru komnir í 8-liða úrslit í liðakeppninni á opna Slóvenska meistaramótinu. Riðlakeppni liðakeppninnar lauk í gær þar sem Jóhann og Reup unnu tvo sigra og töpuðu naumlega einum leik og komust fyrir vikið upp úr riðlinum og inn í 8-liða úrslit.

Jóhann og Reup lögðu bandaríska sveit í fyrsta leik, 3-0 og lentu svo í maraþon-bardaga gegn sveit frá Suður-Kóreu sem lyktaði með 3-2 sigri þeirra kóresku þar sem leikurinn var næstum þriggja stunda langur! Í þriðja og síðasta leiknum í riðlinum, sem fram fór í dag, mættu Jóhann og Reup liði frá Ítalíu sem þeir skelltu 3-0.

8-liða úrslitin voru að hefjast í þessum rituðu orðum og þegar heimasíða ÍF náði tali af Jóhanni var ekki vitað hverjir andstæðingar þeirra yrðu. Við fáum frekari fréttir með kvöldinu.

Mynd/ Jóhann var um áramótin kjörinn Íþróttamaður Reykjanesbæjar.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 6. maí 2011 16:16
Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu 2011

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu 2011 verða haldnir laugardaginn 28. maí. Leikarnir fara fram á gervigrasvelli Víkings í Reykjavík en Víkingur er umsjónaraðili leikanna í samstarfi við ÍF og KSÍ.

Upphitun hefst 11.45.  Kl. 12.00 verður mótssetning og reiknað er með að leikunum ljúki kl. 14.00. Á þessum leikum eru keppendur á öllum aldri, blönduð lið karla og kvenna og skipt er í flokka getumeiri og getuminni.

Skila þarf skráningum fyrir 17. maí á netfang: gulli@ksi.is með cc á if@isisport.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 5. maí 2011 10:47
Jóhann hafnaði í 3. sæti í sínum riðli

Borðtennismaðurinn Jóhann Rúnar Kristjánsson er staddur í Slóveníu þar sem hann tekur þátt í opna meistaramótinu þar í landi. Í gærdag lauk Jóhann keppni í sínum riðli í flokki C2. Jóhann hafnaði í 3. sæti í fjögurra manna riðli og er því úr leik.

Jóhann tapaði fyrsta leik 3-2 gegn sterkum frönskum spilara að nafni Menella. Í öðrum leiknum vann Jóhann Jung Ji Won frá Kóreu 3-2. Þriðji og síðasti leikurinn var gegn sterkum spilara að nafni Radislaw frá Slóvakíu og tapaði Jóhann þeirri viðureign 3-0.

Í dag hefst svo liðakeppnin hjá Jóhanni þar sem hann spilar með sterkum leikmanni frá Austurríki að nafni Hans Reup. Heimasíða ÍF náði snörpu tali af Jóhanni í gær og sagði hann: ,,Mér líst vel á liðakeppnina með Reup og tel að við eigum eftir að ná vel saman.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 3. maí 2011 16:14
Jóni Margeiri fagnað í Leifsstöð

Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson kom sigursæll heim af opna þýska meistaramótinu sem fram fór um síðastliðna helgi í Þýskalandi. Jón Margeir setti m.a. nýtt heimsmet á mótinu í 800m. skriðsundi í flokki S14, flokki þroskahamlaðra.

Þeir Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF og Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri fjármála- og afrekssviðs ÍF tóku á móti Jóni við komuna til landsins en með Jóni í för ytra voru faðir hans Sverrir Gíslason og sundþjálfari Jóns hjá Fjölni, Vadim Forafonov.

Mynd/ Frá vinstri Sveinn Áki Lúðviksson formaður ÍF, Jón Margeir Sverrisson og Vadim Forafonov.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 3. maí 2011 12:34
Jóhann kominn til Slóveníu

Borðtennismaðurinn Jóhann Rúnar Kristjánsson er kominn til Slóveníu þar sem hann mun taka þátt í Opna slóvenska mótinu. Á mótinu mun Jóhann keppa í liða- og einstaklingskeppni en hann keppir í flokki C2. Flokkar C1-C5 eru fyrir sitjandi leikmenn en flokkar C6-C10 eru fyrir standandi leikmenn.

Í liðakeppninni mun Jóhann spila með Austurríkismanni sem skipar 4. sæti styrkleikalistans í flokki C2 en þetta verkefni er liður í viðleitni Jóhanns til þess að tryggja sér sæti á Ólympíumóti fatlaðra í London 2012. Árið 2008 rétt missti Jóhann af Ólympíumótinu í Peking en stefnir ótrauður að því að vinna sér inn sæti í London.

 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 2. maí 2011 15:47
Kátur keiluhópur við Gróttuvita

Undirbúningur fyrir þátttöku Íslands í alþjóðaleikum Special Olympics er nú í fullum gangi og keppendur í 8 íþróttagreinum mæta á leikana frá Íslandi. Þau Gauti Árnason Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Jón Þórarinsson slá ekki slöku við en þau mættu út við Gróttuvita á laugardagsmorgni 30. apríl og tóku þar góðan göngutúr í rigningu og slagveðri ásamt Guðrúnu Hallgrímsdóttur sem verður þjálfari þeirra á leikunum.

Einn vantaði í keiluhópinn, Áslaugu Þorsteinsdóttir sem býr á Akranesi. Mikil tilhlökkun er komin í hópinn enda styttist í brottför til Aþenu.

Mynd: Gauti Sigrún Huld og Jón eldhress eftir gönguna

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 2. maí 2011 15:04
Jón setti alls sex Íslandsmet og eitt heimsmet í Þýskalandi

Á nýafstaðinni helgi setti Jón Margeir Sverrisson sundmaður úr Ösp/Fjölni sex Íslandsmet og eitt heimsmet á Opna þýska meistaramótinu. Jón er í fantaformi um þessar mundir en er væntanlegur til landsins í kvöld kringum miðnætti.

Yfirlit yfir árangur Jóns um helgina:

Fimmtudagur 28. apríl:

Nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 200m. skriðsundi í undanrásum. Jón synti á 2.05,98mín. sem er fjórði besti tíminn í heiminum í flokki S14, flokki þroskahamlaðra. Í úrslitum bætti Jón Íslandsmetið á nýjan leik er hann synti á tímanum 2.05,92mín.

Föstudagur 29. apríl:

Heimsmet! Jón setti nýtt heimsmet í flokknum sínum í 800m. skriðsundi á tímanum 9.07,25mín. Ekki var um undanrásir að ræða heldur var aðeins synt í úrslitum í 800m. skriðsundi en þessi grein er ekki ein þeirra sem flokki S14 verður boðið upp á í London á Ólympíumóti fatlaðra 2012. Þá var millitími Jóns í þessu sundi í 400m. skriðsundi nýtt Íslandsmet en sá tími var 4.32,38mín.

Laugardagur 30. apríl:

Jón bætti sinn persónulega árangur í 100m. bringusundi og synti á tímanum 1.18,47mín. en Íslandsmetið á Gunnar Örn Ólafsson sem er 1.17,72mín.

Sunnudagur 1. maí:

Jón setti nýtt Íslandsmet í 100m. skriðsundi í undanrásum og í úrslitum bætti hann tímann sinn að nýju og því féllu alls tvö Íslandsmet þennan daginn. Tími hans í úrslitum var 57,75 sek. Þá var Jón við sinn besta tíma í baksundi er hann synti á 1.12,52mín. en Íslandsmetið er í eigu Gunnars Arnar Ólafssonar og er 1.08,14mín.

Jón setti því alls sex ný Íslandsmet í Þýskalandi og eitt heimsmet. Heimasíða ÍF náði stuttu tali af Sverri Gíslasyni föður Jóns Margeirs en þeir feðgar voru saman á mótinu. Sverrir sagði að mjög góð helgi væri að baki og var eins og gefur að skilja allur hinn kátasti. Þeir eru væntanlegir til landsins á miðnætti í kvöld.

Til hamingju Jón Margeir!

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 29. apríl 2011 12:45
Jón setti heimsmet í Þýskalandi

Jón Margeir Sverrisson setti í morgun heimsmet í 800m. skriðsundi í flokki S14 þegar hann synti á tímanum 9.07,25mín. Gamla heimsmetið var 9.07,55mín en í þessu sama sundi á millitíma í 400m. skriðsundi setti hann nýtt Íslandsmest á 4.32,38mín.

Jón Margeir syndir fyrir Ösp/Fjölni og er nú staddur á opna þýska meistaramótinu og kann greinilega svona fantavel við sig í Þýskalandi. Þess má þó geta að 800m. skriðsund er ekki í boði á Ólympíumóti fatlaðra 2012 heldur mun þroskahömluðum aðeins gefast kostur á þremur keppnisgreinum í sundi í London, 800m. skriðsund er ekki á meðal þeirra greina.

Til hamingju Jón Margeir!

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 28. apríl 2011 17:27
Jón tók silfrið og bætti Íslandsmetið aftur

Jón Margeir Sverrisson sundmaður úr Ösp/Fjölni var áðan að synda í úrslitum í 200m. skriðsundi á Opna þýska meistaramótinu þar sem hann bætti ennfrekar Íslandsmet sitt sem hann setti í greininni í morgun. Jón keppir í flokki S14, flokki þroskahamlaðra.

Í úrslitum synti Jón á 2.05,92 mín. í 200m. skriðsundi og hafnaði í 2. sæti á eftir Bretanum og heimsmethafanum Ben Procter. Í undanrásum í morgun synti Jón á 2.05,98 mín. og þátttaka hans á Opna þýska hefst því með glæsibrag.

Á morgun keppir Jón í 800m. skriðsundi og 100m. skriðsundi en á laugardag keppir hann í 100m. baksundi og 100m. bringusundi.

Mynd/ Jón Margeir Sverrisson er að finna sig vel í Þýskalandi.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 28. apríl 2011 13:00
Jón með Íslandsmet í 200m. skriðsundi á Opna þýska

Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson frá Ösp/Fjölni er nú staddur á Opna þýska meistaramótinu í sundi og kappinn byrjaði vel enda setti hann nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 200m. skriðsundi í undanrásum í morgun. Jón synti á 2.05,98mín. sem er fjórði besti tíminn í heiminum í flokki S14, flokki þroskahamlaðra.

Gamla Íslandsmet Jóns í greininni hafði aðeins staðið síðan á opna breska meistaramótinu þegar hann synti á 2.08,90mín. svo um glæsilega bætingu á metinu er að ræða.

Á dögunum kepptu Jón Margeir og Eyþór Þrarstarson (S11) á Opna breska meistaramótinu í sundi. Því miður greindist Eyþór með einkirnissótt í upphafi móts og gat hann því ekki tekið neinn þátt í mótinu nema með því að stiðja félaga sinn.

Jón Margeir synti hinsvegar mjög vel á opna breska á dögunum:
100 m baksund undanrásir 1:12, 47 Bæting
200 m fjórsund undanrásir 2:28,73 Bæting
200 m fjórsund úrslit  2:27,78 Bæting
100 m bringusund undanrásir 1:19,04 Bæting

100 m skriðsund undanrásir 58,19 Bæting Íslandsmet
100 m skriðsund Úrslit 58,24
200 m skriðsund undanrásir 2:08,37
200 m skriðsund úrslit   2:08,90

Mynd/ Jón Margeir er í fantaformi um þessar mundir.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 28. apríl 2011 12:13
Dagskrá Hængsmótsins um helgina

Föstudagur 29. apríl

Hefst:           

Kl. 1100 Mótssetning í KA heimilinu     
Kl. 1130 Fararstjórafundur í KA heimilinu  
Kl. 1200 Einstaklingsk. í Boccía þroskaheftir riðill  1 – 9   í Síðuskóla 
Kl. 1200 Einstaklingskeppni í Boccía þroskaheftir riðill 10 – 21 í KA  
Kl. 1400 Einstaklingsk. í Boccía þroskaheftir riðill 22 – 29 í Síðuskóla 
Kl. 1400 Einstaklingskeppni í Boccía þroskaheftir riðill 30 – 41 í KA  
Kl. 1400 Einstaklingskeppni í rennuflokki í Síðuskóla    
Kl. 1620 Einstaklingsk. í Boccía þroskaheftir 2. & 3. umferð í KA   
Kl. 1600 Einstaklingskeppni í Boccía Hreyfihamlaðir í Síðuskóla  
Kl. 1700 Einstaklingskeppni í Boccía Opinn flokkur í Síðuskóla  
Kl. 1920 Einstaklingskeppni í Boccía þroskaheftir úrslit í KA   
Kl. 1900 Sveitakeppni í Boccía Opinn flokkur í Síðuskóla    

Laugardagur 30. apríl

Kl.   900 Sveitakeppni í Boccía Þroskaheftir í Íþróttahöllinni   
Kl.   900 Sveitakeppni í Boccía hreyfihamlaðir í Síðuskóla  
Kl. 1000 Einstaklingsk. í Boccía BC1 – 4 í Íþróttahöllinni  
Kl. 1200 Lyftingar í Íþróttahöllinni     
Kl. 1200 Borðtennis í Íþróttahöllinni     

Kl. 1930 Lokahóf í Íþróttahöllinni. Miðaverð kr. 4.500,-  Kl.   200

Mótsstjóri: Jón Heiðar Árnason
Yfirdómari:  Þröstur Guðjónsson

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 27. apríl 2011 12:31
Hængsmótið um helgina

Hið árlega Hængsmót fer fram um helgina á Akureyri en keppnisdagar mótsins eru 29. apríl og 30. apríl. Þetta er í tuttugasta og níunda sinn sem mótið fer fram en keppnisgreinar verða, boccia: einstaklings- og sveitakeppni, borðtennis: karlar og konur, sem og lyftingar, ef næg þátttaka fæst.

Stefnt er að því að mótið verði sett kl.13.00 og keppni ljúki seinnipart á laugardeginum. Um kvöldið, væntanlega um kl. 19.00 verður síðan mjög veglegt lokahóf að vanda með veislumat, lifandi tónlist og ýmsum glæsilegum uppákomum. Miðaverð er áætlað um 4.500,- á mann.

Nánari upplýsingar um mótið á jha@raftakn.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 23. apríl 2011 18:05
Styrktartónleikar Hjálma og Valdimars fram úr björtustu vonum

Föstudaginn 15. apríl stóðu Hjálmar fyrir fyrir styrktartónleikum vegna ferðar íslenskra keppenda á aþjóðaleika Special Olympics í Aþenu í júní. Sérstakur gestur var hljómsveitin Valdimar.  Helgi Magnússon, keppandi í fimleikum var hvatamaður að tónleikunum en hann hringdi í frænda sinn, Helga í Hjálmum og óskaði eftir því að Hjálmar myndu halda tónleika vegna Aþenuferðarinnar.   Helgi frændi brást snarlega við og hóaði saman hljómsveitarmeðlimum sem ákváðu að halda glæsilega tónleika á NASA föstudagskvöldið 15. apríl.   

Félagar þeirra í hljómsveitinni Valdimar slógust í hópinn og þessar tvær frábæru hljómsveitir náðu að troðfylla húsið og skapa rífandi stemmingu á NASA. Kynnar á tónleikunum voru Helgi Magnússon og Elfa Björg Gunnarsdóttir og þau slógu í gegn með góðum töktum á sviðinu.  Í lok tónleikanna sögðu Helgi og Elfa að safnast hefði rúmlega 900.000 kr og allt ætlaði vitlaust að verða í húsinu.

Markmið Hjálma var að styrkja  bæði fimleikahópinn sem átti hugmyndina að tónleikunum og ferðina í heild og það markmið hefur náðst.

Íþróttasamband fatlaðra og Special Olympics á Íslandi vilja koma á framfæri innilegu þakklæti til hljómsveitarinnar Hjálma fyrir þeirra ómetanlega framlag til starfsemi Special Olympics á Íslandi.

Um þátttöku Íslands í Special Olympics:

Stærsta verkefni Íþróttasambands fatlaðra árið 2011 er þátttaka Íslands á alþjóðaleikum Special Olympics í Grikklandi 25. júní – 4. júlí. Fjármögnun verkefna hefur verið erfið undanfarið en ÍF hefur ávallt notið mikils stuðning og velvilja, fyrirtækja sem almennings. Þrátt fyrir tímabundna erfiðleika var ákveðið að nýta kvóta Íslands og senda 38 íslenska keppendur á alþjóðaleikana til keppni í 8 íþróttagreinum. Umfang og glæsileiki alþjóðaleika Special Olympics líkist helst ólympíumótum en keppnisform er gjörólíkt. Einstaklingar með þroskahömlun keppa á þessum leikum þar sem þátttakan er aðalatriðið, allir keppa við sína jafningja og eiga sömu möguleika á verðlaunum. Hugmyndafræði Special Olympics byggir á gildi jafnræðis og umburðarlyndis, virkri þátttöku, einstaklingsmiðaðri færni og ekki síst gildi vináttunnar.

Mynd/ Sigurður Guðmundsson liðsmaður Hjálma var reffilegur á tónleikunum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 16. apríl 2011 16:18
Um tuttugu ungmenni skemmtu sér við Æskubúðir ÍF og Össurar

Tæplega tuttugu ungmenni mættu við Æskubúðir ÍF og Össurar í dag en verkefnið fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Foreldrar og systkini fjölmenntu einnig við búðirnar þar sem Kári Jónsson landsliðsþjálfari Íþróttasambands fatlaðra leiddi hópinn í gegnum helstu greinar frjálsíþróttanna.

Æskubúðirnar eru samstarfsverkefni Íþróttasambands fatlaðra og Össurar þar sem ungmennum sem notast við stoð- eða stuðningstæki var boðið upp á veglega íþróttakynningu. Fyrirhugað er að í kringum páska verði nokkrar frjálsíþróttaæfingar undir stjórn Kára sem er íþróttafulltrúi Garðabæjar og lektor í íþróttafræðum frá Íþróttabraut Háskóla Íslands á Laugarvatni.

Verkefninu sjálfu er ekki ætlað að starfa eins og íþróttafélagi heldur miklu frekar að skapa hóp fatlaðra ungmenna sem geta hist reglulega við æfingar og fræðslu, borið saman bækur sínar og kynnst fjölbreyttum íþróttagreinum innan aðildarfélaga fatlaðra sem og ófatlaðra.

Á búðunum fékk hópurinn að spreyta sig í spretthlaupi, kúluvarpi, skutlukasti sem er innanhúsútgáfa af spjótkasti og langstökki. Allir fundu eitthvað við sitt hæfi og var gerður góður rómur að verkefninu.

Tilurð verkefnisins er sú að í almennu mótahaldi fatlaðra hafa hreyfihömluð ungmenni verið afar fámennur hópur en þrátt fyrir skamman fyrirvara voru hátt í tuttugu einstaklingar sem mættu með foreldrum sínum og syskinum og áttu saman góða stund í Laugardalnum. Góðir gestir komu einnig í heimsókn en það voru þeir Geir Sverrisson og Ólafur Eiríksson en báðir eru þeir fyrrum afreksmenn úr röðum fatlaðra sem sköruðu fram úr á heimsmælikvarða og unnu til fjölda verðlauna á sterkustu mótum heims. Geir í frjálsum íþróttum og sundi og Ólafur í sundi.

Myndir/ Á efri myndinni fær hópurinn leiðsögn í skutlukasti og á þeirri neðri sést einn ungur og efnilegur máta sig á verðlaunapallinum.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 14. apríl 2011 12:25
Íslandsbanki aðal styrktaraðili Special Olympics á Íslandi

Í vikunni undirrituðu Íslandsbanki og Íþróttasamband fatlaðra samstarfssamning þess efnis að Íslandsbanki verði einn af aðal styrktaraðilum samtakanna vegna Special Olympics á Íslandi. Undirritunin fór fram í útibúi Íslandsbanka við Gullinbrú, sem er aðal viðskiptaútibú Special Olympics á Íslandi.  Íslandsbanki og forverar hans hafa stutt ÍF og Special Olympics allt frá árinu 2000. 

Special Olympics samtökin voru stofnuð af Kennedy fjölskyldunni í Bandaríkjunum árið 1968. Markmið þeirra er að bjóða upp á íþróttatilboð fyrir fólk með þroskahömlun og aðra þá sem eiga við námserfiðleika að stríða. Íþróttasamband fatlaðra gerðist aðili að Special Olympics samtökunum árið 1989 og hefur síðan þá verið umsjónaraðili samtakanna á Íslandi.

Farsælt samstarf Íslandsbanka og ÍF
Samstarf Íslandsbanka og Íþróttasambands fatlaðra vegna starfsemi i Special Olympics á Ísland i hófst árið 2000 þegar Íslandsbanki gerðist aðalsamstarfsaðili samtakanna hér á landi.  Allar götur síðan þá hafa ÍF og Íslandsbanki átt með sér farsælt og gefandi samstarf vegna íþróttatilboða  fyrir fólk með þroskahömlun. Þannig hefur stuðningur bankans gert sambandinu kleift að senda stóran hóp íþróttafólks til sumar- og vetrarleika Special Olympics, en Íslendingar hafa tekið þátt í alþjóðasumar- og vetrarleikum Special Olympics frá árinu 1991. Þannig sendi Ísland þátttakendur til keppni í listhlaupi á skautum á vetrarleika Special Olympics í Nagano í Japan 2005 og  Boise í Idaho 2009 auk þess sem Ísland hefur sent keppendur á Evrópuleika Special Olympics en þeir voru síðast haldnir í Póllandi árið 2010. Á síðustu alþjóðasumarleikana sem haldnir voru í Shanghai í Kína árið 2007 sendi Ísland, með myndarlegum stuðningi Íslandsbanka, 32  keppendur sem allir stóðu sig með miklum ágætum undir kjörorði leikanna “I know I can“ eða „ég veit að ég get”.

Næstu alþjóðaleikar Special Olympics verða í Grikklandi árið 2011. Íþróttasamband fatlaðra sendir 38 þátttakendur á alþjóðasumarleika Special Olympics sem haldnir verða í Aþenu í Grikklandi í 25. Júní – 4. Júlí 2011.  Íslendingar keppa í 8 íþróttagreinum; boccia, fimleikum, frjálsum íþróttum,  golfi, keilu, knattspyrnu, lyftingum og sundi en kjörorð leikana í ár er “I´m in“ eða „ég er með”.

Á leikum Special Olympics keppir fólk með þroskahömlun. Þátttakan er aðalatriðið, allir keppa aðeins við sína jafningja og allir eiga sömu möguleika á verðlaunum. Hugmyndafræði Special Olympics byggir á gildi umburðarlyndis og jafnræðis. Lögð er megináhersla á þátttöku, ánægju, einstaklingsmiðaða færni og vináttu. 

Mynd/ Ólafur Ólafsson útibússtjóri Íslandsbanka við Gullinbrú t.v. og Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF t.h. handsala samninginn. Með þeim á myndinni eru þeir Helgi Magnússon og Jóhann Fannar Kristjánsson en þeir verða á meðal þátttakenda á Sumarleikum Special Olympics í Grikklandi.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 13. apríl 2011 10:33
Krakkafjör í höllinni

Laugardaginn þann 16. apríl næstkomandi munu Íþróttasamband fatlaðra og Össur standa að Æskubúðum Össurar í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal milli kl. 09.00-11.00. Búðirnar eru ætlaðar ungmennum sem notast við stoð- og stuðningstæki og er ætlunin að kynna frjálsar íþróttir fyrir krökkunum og vekja áhuga þeirra á að stunda íþróttir.

Æfingarnar munu fara fram undir handleiðslu Kára Jónssonar, landsliðsþjálfara ÍF í frjálsum og lektor í íþróttafræðum frá Íþróttabraut Háskóla Íslands á Laugarvatni.

Í lok æfingarinnar  verður fyrirlestur í Íþróttamiðstöðinni við hlið Laugardalshallar frá kl. 11:15-12:00. Boðið verður upp á Pizzu og ís í hádeginu.

Hlökkum til að sjá ykkur og eiga saman skemmtilegan morgun.

Vinsamlegast sendið staðfestingu um mætingu á aeskubudir@ossur.is 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 12. apríl 2011 17:16
Hjálmar á Nasa til styrktar Special Olympics

Föstudaginn 15. apríl næstkomandi munu Hjálpar standa fyrir styrktartónleikum vegna ferðar íslenskra keppenda á aþjóðaleika Special Olympics í Aþenu í júní. Sérstakur gestur er hljómsveitin Valdimar. Húsið opnar kl 21.00 og tónleikarnir hefjast kl 22.00. Miðaverð er krónur 1.500 og rennur óskipt til ferðarinnar. Miðasala fer fram við hurð.

Um þátttöku Íslands í Special Olympics:

Stærsta verkefni Íþróttasambands fatlaðra árið 2011 er þátttaka Íslands á alþjóðaleikum Special Olympics í Grikklandi 25. júní – 4. júlí. Fjármögnun verkefna hefur verið erfið undanfarið en ÍF hefur ávallt notið mikils stuðning og velvilja, fyrirtækja sem almennings. Þrátt fyrir tímabundna erfiðleika var ákveðið að nýta kvóta Íslands og senda 38 íslenska keppendur á alþjóðaleikana til keppni í 8 íþróttagreinum. Umfang og glæsileiki alþjóðaleika Special Olympics líkist helst ólympíumótum en keppnisform er gjörólíkt. Einstaklingar með þroskahömlun keppa á þessum leikum þar sem þátttakan er aðalatriðið, allir keppa við sína jafningja og eiga sömu möguleika á verðlaunum. Hugmyndafræði Special Olympics byggir á gildi jafnræðis og umburðarlyndis, virkri þátttöku, einstaklingsmiðaðri færni og ekki síst gildi vináttunnar.

Íþróttasamband fatlaðra sem er umsjónaraðili Special Olympics á Íslandi, fagnar þeirri ákvörðun hljómsveitarinnar Hjálma, að halda tónleika til styrktar þessu mikilvæga verkefni. Slíkt framlag er metið að verðleikum, aðstoð við fjármögnun er gífurlega mikilvæg en ekki síður sá hugur sem að baki býr slíku framtaki. Íþróttasamband fatlaðra og Special Olympics á Íslandi vilja koma á framfæri innilegu þakklæti til hljómsveitarmeðlima Hjálma fyrir að standa að þessum tónleikum.

Þeir sem ekki komast á tónleikana geta stutt verkefnið með því að leggja inn á reikning:
313-26-4396
Kt: 620579-0259

Special Olympics:
http://www.athens2011.org/en/index.asp

Hjálmar:
http://www.hjalmarband.com/

Valdimar:
http://www.facebook.com/valdimarband

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 6. apríl 2011 12:48
Ályktun frá 15. Sambandsþingi Íþróttasambands fatlaðra

Fimmtánda Sambandsþing Íþróttasambands fatlaðra fór fram á Hótel Selfossi laugardaginn 2. apríl síðastliðinn. Þingfulltrúar samþykktu samhljóða og sendu frá sér eftirfarandi ályktun: 

Ályktun þingsins:

15. Sambandsþing Íþróttasambands fatlaðra haldið á Hótel Selfossi 2. apríl 2011 lýsir áhyggjum sínum vegna hugmynda um að taka upp og breyta lögum og reglum varðandi lottó (Íslensk Getspá). 

Íþróttahreyfingin má ekki við frekari skerðingu á tekjum til starfseminnar og fer þingið fram á að ríkisvaldið tryggi óbreytt eignarhald að Íslenskri Getspá. Jafnframt hvetur þingið ríkisvaldið til að auka fjárveitingar til þess mikla sjálfboðaliðastarfs sem íþróttahreyfingin vinnur í þágu þjóðarinnar.

Mynd/ Frá Sambandsþingi ÍF á Selfossi.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 2. apríl 2011 17:30
Sveinn Áki endurkjörinn: Þórður Árni nýr varaformaður ÍF

Sambandsþingi Íþróttasambands fatlaðra var að ljúka rétt í þessu á Hótel Selfossi þar sem Þórður Árni Hjaltested var kjörinn varaformaður ÍF kjörtímabilið 2011-2013. Fráfarandi varaformaður Camilla Th. Hallgrímsson gaf ekki kost á sér í endurkjöri. Mótframbjóðandi Þórðar í varaformannsembættið var Arnór Pétursson frá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík en Þórður hafði betur eftir atkvæðagreiðslu.

Sveinn Áki Lúðvíksson var réttkjörinn áframhaldandi formaður Íþróttasambands fatlaðra en Svava Árnadóttir gaf ekki kost á sér að nýju í varastjórn ÍF og var gengið til kosninga millum fjögurra einstaklinga í varastjórn þar sem þrjú sæti voru í boði.

Réttkjörin varastjórn ÍF skipuðu þau Guðlaugur Ágústsson, Margrét Kristjánsdóttir og Gunnar Einar Steingrímsson en Matthildur Kristjánsdóttir gaf einnig kost á sér í varastjórnina en náði ekki kjöri en mjótt var á munum og atkvæðagreiðslan spennandi. Stjórn Íþróttasambands fatlaðra kjörtímabilið 2011-2013 verður því skipuð tveimur nýjum fulltrúum sem ekki hafa áður setið í stjórn hjá sambandinu, þeim Guðlaugi og Margréti.

Nýja Stjórn ÍF kjörtímabilið 2011-2013 skipa eftirtaldir:

Aðalstjórn
Formaður:
Sveinn Áki Lúðvíksson
Varaformaður: Þórður Árni Hjaltested
Jóhann Arnarson
Jón Heiðar Jónsson
Ólafur Þór Jónsson

Varastjórn
Guðlaugur Ágústsson
Margrét Kristjánsdóttir
Gunnar Einar Steingrímsson

Myndir/ Fráfarandi stjórn Íþróttasambands fatlaðra, á neðri myndinni er nýr varaformaður ÍF, Þórður Árni Hjaltested en hann gengdi stöðu gjaldkera á síðasta kjörtímabili.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 2. apríl 2011 11:57
15. Sambandsþing ÍF sett á Hótel Selfossi

Í morgun hófst 15. Sambandsþing Íþróttasambands fatlaðra á Hótel Selfossi í sveitarfélaginu Árborg. Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF setti þingið og í kjölfarið tóku til máls Hafsteinn Pálsson ÍSÍ, Ásta Stefánsdóttir bæjarstjóri Árborgar, Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ, Hörður Oddfríðarson SSÍ og Kristinn Hannesson kjörumdæmisstjóri Lions.

Áætluð þingslit í dag eru á milli 16 og 17 en nánar verður greint frá þinginu síðar í dag eða á morgun.

Mynd/ Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF við þingsetningu í morgun.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 1. apríl 2011 15:23
Skrifstofa ÍF lokuð vegna jarðarfarar

Skrifstofa ÍF verður lokuð frá kl. 13:00 í dag vegna jarðarfarar Sigurðar Magnússonar fyrrverandi framkvæmdastjóra ÍSÍ og fyrsta formanns ÍF.

Sigurður verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst athöfnin  kl. 15:00 í dag.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 29. mars 2011 17:16
Andlát: Sigurður Magnússon

Sigurður Magnússon, fyrsti formaður Íþróttasambands fatlaðra, er látinn 82 ára að aldri.
Sigurður var einn af frumkvöðlum íþrótta fatlaðra hér á landi og á engan hallað að kalla hann guðföður íþrótta fatlaðra á Íslandi. Í sögu hreyfingarinnar á Íslandi leikur Sigurður svipað hlutverk og Sir Ludvig Guttmann á heimsvísu en hið eiginleg upphaf íþrótta fatlaðra má rekja til Sir Guttmanns. 

Næsta víst má telja að staða íþrótta fatlaðra væri önnur ef áhuga og elju Sigurðar hefði ekki notið við að ýta starfinu úr vör og stýra því fyrstu tólf árin.  Þannig átti hann 1974 þátt í stofnun fyrsta íþróttafélags fatlaðra á Íslandi, Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík og 1979 að stofnun Íþróttasambands fatlaðra þar sem hann gengdi formennsku fyrstu sex árin og beitti sér mjög í starfi samtakanna. Þá átti hann hvað stærstan þátt í stofnun Nord-HIF (Íþróttasamband fatlaðra á Norðurlöndum) en samtökin voru stofnuð hér á landi árið 1976.
Sigurðar verður þó ekki eingöngu minnst fyrir þátt sinn og stuðning við íþróttir fatlaðra því spor hans innan íþróttahreyfingarinnar liggja víða. Hann var formaður handknattleiksráðs Reykjavíkur og framkvæmdastjóri ÍR, fyrsti framkvæmdastjóri ÍBR, skrifstofu- og útbreiðslustjóri ÍSÍ og síðar framkvæmdastjóri sambandsins en því starfi gengdi hann til starfsloka.

Sigurður hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín innan íþróttahreyfingarinnar.  Hjá Íþróttasambandi fatlaðra var hann, auk þess að vera sæmdur gullmerki ÍF, kjörin fyrsti heiðursfélagi sambandsins, verðskulduð viðurkenning til þessa mikla eldhuga og ötula baráttumanns um íþróttir fatlaðra.

Á kveðjustund er íþróttahreyfingu fatlaðra þakklæti efst í huga, þakklæti fyrir hið mikla og fórnfúsa starf er hann innti af hendi í þágu íþrótta fatlaðra og er grunninn að því góða starfi sem við nú byggjum á.

Eiginkonu hans Sigrúnu Sigurðardóttur, sonum þeirra sem og öðrum ástvinum sendum við hugheilar samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Sigurðar Magnússonar.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 29. mars 2011 14:53
Vignir jafnaði Íslandsmetið í samanlögðu og setti nýtt í bekkpressu

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í lyftingum fór fram í Hafnarfirði um síðustu helgi þar sem Vignir Þ. Unnsteinsson lyftingamaður hjá ÍFR fór mikinn. Vignir jafnaði met Daníels Unnars Vignissonar í samanlögðu og setti svo nýtt Íslandsmet í -125 kg. flokki.

Vignir lyfti 140 kílóum í bekkpressu og í réttstöðulyftu, hnébeygju og bekkpressu lyfti hann samtals 590 kílóum og jafnaði þar með met Daníels Unnars Vignissonar sem hafnaði í 2. sæti á mótinu í flokki þroskahamlaðra á eftir Vigni.

Þorsteinn Magnús Sölvason var eini keppandinn í flokki hreyfhamlaðra að þessu sinni en hann náði ekki að slá sitt eigið met að þessu sinni og lauk keppni með 140 kíló í bekkpressu en aðeins er keppt í þeirri grein í lyftingum hreyfihamlaðra.

Heildarúrslit mótsins má sjá hér

Ljósmynd/ Vignir Unnsteinsson í hrikalegum átökum í Hafnarfirði.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 27. mars 2011 17:53
ÍFR Íslandsmeistari í 1. deild þriðja árið í röð

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðar í boccia fór fram að Ásvöllum í Hafnarfirði um helgina. Sveit ÍFR C hafði sigur í 1. deild og er þetta þriðja árið í röð sem ÍFR vinnur 1. deildina. Sveitina skipuðu þeir Hjalti Bergmann Eiðsson, Haukur Gunnarsson og Jakob B. Ingmundarson.

Sigurvegarar í hverri deild:

1. Deild
1. sæti: 1.D-ÍFR C, Haukur Gunnarsson, Jakob B. Ingimundarson og Hjalti Bergmann Eiðsson

2. Deild
1. sæti:Þjótur – A, Sigurður A. Sigurðsson, Ásgeir Sigurðsson og Anton Kristjánsson.

3. Deild
1. sæti: Eik – K, Hörður Þorsteinsson, Kristófer Fannar Sigmarsson og Baldvinn Steinn Torfason.

Rennuflokkur
1. sæti:  Ösp – A: Árni Sævar Gylfason og Kristján Vignir Hjálmarsson.

Fötlunarflokkur BC1 til 4
1. sæti:  Blönduð sveit Þjótur: Sigurður S. Kristinsson og ÍFR: Valgeir Árni Ómarsson.

Ljósmynd/ Liðsmenn ÍFR C þeir Hjalti Bergmann Eiðsson, Haukur Gunnarsson og Jakob B. Ingimundarson, Íslandsmeistarar í 1. deild í boccia.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 27. mars 2011 15:45
Þrettán Íslandsmet í Ásvallalaug um helgina

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sundi fór fram í Ásvallalaug í Hafnafirði um helgina. Alls félltu 13 Íslandsmet að þessu sinni þar sem þau Ragney Líf Stefánsdóttir frá Ívari og Jón Margeir Sverrisson frá Ösp/Fjölni settu samtals átta Íslandsmet.

Laugardagur 26. mars:

Pálmi Guðlaugsson, S7 100 bak 1:42,59
Thelma B. Björnsdóttir, S6 100 frjáls aðferð 1:37,57
Ragney Líf Stefánsdóttir, SB9 50 bringa 0:47,66
Ragney Líf Stefánsdóttir, S10 200 skrið 2:57,67
Jón Margeir Sverrisson, S14 100 skrið 57,82
Jón Mareir Sverrisson, S14 50 bringa 35,48
Jón Margeir Sverrisson, S14 200 skrið 2:08,29

Sunnudagur 27. mars

Vaka Þórsdóttir, S11 50 skrið 1:16,13
Ragney Líf Stefánsdóttir, S10 50 skrið 0:34,67
Ragney Líf Stefánsdóttir, S10 50 bak 0:45,15
Jón Margeir Sverrisson, S14 50 skrið 0:26,37
Karen Axelsdóttir, S2 50 bak 2:00,08
Vignir Gunnar Hauksson, SB5 100 bringa 2:38,57

Heildarúrslit mótsins koma inn á heimasíðu ÍF síðar í vikunni.

Ljósmynd/ Vignir G. Hauksson sundmaður hjá ÍFR lét að sér kveða í Ásvallalaug.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 27. mars 2011 14:15
Hákon Atli þrefaldur Íslandsmeistari um helgina

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í borðtennis fór fram í Kaplakrika um helgina. Aðeins var keppt á laugardeginum þar sem Hákon Atli Bjarkason fór mikinn og varð þrefaldur Íslandsmeistari.

Sigurvegarar á mótinu:

Tvíliðaleikur
1. Hákon Atli Bjarkason/Tómas Björnsson, ÍFR/ÍFR

Kvennaflokkur
1. Sigurrós Karlsdóttir , Akur

Standandi flokkur karla
1. Tómas Björnsson, ÍFR

Þroskahamlaðir – karlar
1. Stefán Thorarensen, Akur

U Flokkur
1. Markús Lubker, ÍFR

Sitjandi flokkur karla
1. Hákon Atli Bjarkason, ÍFR

Opinn flokkur
1. Hákon Atli Bjarkason, ÍFR

Jóhann Rúnar Kristjánsson var ekki með á Íslandsmóti ÍF í borðtennis að þessu sinni þar sem hann var staddur í Lignano á Ítalíu að keppa á opna ítalska meistaramótinu.

Heildarúrslit mótsins

Ljósmynd/ Hákon Atli Bjarkason, þrefaldur Íslandsmeistari í borðtennis.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 26. mars 2011 11:54
Íslandsmót ÍF hafið í Hafnarfirði

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra er hafið í Hafnarfirði en keppt verður í fimm greinum þessa helgina. Keppnisgreinarnar eru boccia, sund, lyftingar, borðtennis og bogfimi en mótið var sett að Ásvöllum nú fyrir stundu þar sem Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri Hafnarfjarðar bauð mótsgesti velkomna.

Camilla Th. Hallgrímsson varaformaður Íþróttasambands fatlaðra setti mótið að viðstöddum rúmlega 300 keppendum frá 19 íþróttafélögum.

Við minnum á að í dag og á morgun verða Haukar TV með beina netútsendingu frá keppni í boccia. Í dag verður sent út frá kl. 12-13 og á morgun frá kl. 11.30 til keppnisloka. Smellið á tengilinn til að fylgjast með útsendingunni: http://tv.haukar.is/

Keppnisdagskrá helgarinnar:

Boccia – Ásvellir
Laugardagur 26. mars: 11:00 – 20:00 (fararstjórafundur kl. 10:00 og mótssetning 10:30)
Sunnudagur 27. mars: 09:00 – 13:00

Sund – Ásvallalaug
Laugardagur 26. mars: Upphitun 14:00 og keppni 15:00
Sunnudagur 27. mars: Upphitun 09:00 og keppni 10:00

Lyftingar – Ásvallalaug, 2. hæð
Laugardagur 26. mars: 14:00-16:00 (vigtun kl. 11:00)

Borðtennis – Kaplakriki, aðalsalur
Laugardagur 26. mars: 13:00-18:00

Bogfimi – Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Laugardagur 26. mars: 10:00-15:00 – fyrri hluti
Sunnudagur 27. mars: 09:00-13:00 – seinni hluti

Mynd/ Frá setningu Íslandsmóts ÍF í morgun.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 24. mars 2011 15:21
Haukar TV sýna beint frá Íslandsmóti ÍF í boccia

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra fara fram um helgina í Hafnarfirði. Keppt er í boccia, sundi, borðtennis, bogfimi og lyftingum en keppni í frjálsum íþróttum fer fram sunnudaginn 10. apríl næstkomandi.

Keppni í boccia um helgina fer fram að Ásvöllum í Hafnarfirði og munu kapparnir á Haukar TV sýna beint frá keppninni bæði laugardaginn 26. mars og sunnudaginn 27. mars. Á laugardeginum verður sýnt frá kl. 12:00-13:00 og á sunnudeginum frá kl. 11:30 til keppnisloka.

Reynt verður að sýna einnig frá keppni í lyftingum ef tækniskilyrði leyfa.

Hægt verður að fylgjast með útsendingunni hér: http://tv.haukar.is/

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 24. mars 2011 14:49
Jóhann mættur á Opna ítalska í Lignano

Jóhann Rúnar Kristjánsson er kominn út til Lignano á Ítalíu til þess að taka þátt í Opna ítalska meistaramótinu. Mótið er liður í undirbúningi Jóhanns hvar hann freistar þess að vinna sér sæti á Ólympíumóti fatlaðra í London á næsta ári.

Af þessum sökum verður Jóhann ekki með á Íslandsmóti fatlaðra í borðtennis um helgina þar sem samfelld sigurganga hans spannar rúman áratug. Jóhann hefur í rúman áratug verið fremsti borðtennismaður landsins úr röðum fatlaðra og hefur einnig unnið stóra sigra á mótum ófatlaðra hérlendis. Næsta rúma árið eða svo mun svo skera úr um hvort Jóhanni takist að vinna sér sæti í London.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 14. mars 2011 11:57
Lokahóf Íslandsmótsins 2011
 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 8. mars 2011 17:18
Sumarbúðir ÍF 2011: Skráning hafin

Skráning er hafin í Sumarbúðir ÍF 2011 á Laugarvatni. Hér vinstra megin á forsíðunni má nálgast ítarupplýsingar um búðirnar sem og skráningarform sem skila ber á skrifstofu ÍF fyrir 15. apríl næstkomandi. Munið að vera tímanlega.

Tvær vikur eru í boði sem fyrr:
18.-25. júní
25. júní – 2. júlí

Vefsíða Sumarbúða ÍF: http://web.mac.com/sumarbudir
Netfang Sumarbúðanna: sumarbudir@gmail.com

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 2. mars 2011 12:38
Dagskrá Íslandsmóts ÍF 25.-27. mars 2011 í Hafnarfirði

Keppnisgreinar:
Boccia, sund, lyftingar, borðtennis og bogfimi

Boccia:  Ásvellir
Sund:   Ásvallalaug
Lyftingar:  Ásvallalaug
Borðtennis:  Kaplakriki - aðalsalur
Bogfimi:  Íþróttahúsið við Strandgötu

Haukar TV munu sýna beint á netinu frá keppni í boccia á Íslandsmótinu en nánari upplýsingar um netútsendinguna koma síðar.

Tímaskrá:

Boccia – Ásvellir
Laugardagur 26. mars: 11:00 – 20:00 (fararstjórafundur kl. 10:00 og mótssetning 10:30)
Sunnudagur 27. mars: 09:00 – 13:00

Sund – Ásvallalaug
Laugardagur 26. mars: Upphitun 14:00 og keppni 15:00
Sunnudagur 27. mars: Upphitun 09:00 og keppni 10:00

Lyftingar – Ásvallalaug, 2. hæð
Laugardagur 26. mars: 14:00-16:00 (vigtun kl. 11:00)

Borðtennis – Kaplakriki, aðalsalur
Laugardagur 26. mars: 13:00-18:00

Bogfimi – Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Laugardagur 26. mars: 10:00-15:00 – fyrri hluti
Sunnudagur 27. mars: 09:00-13:00 – seinni hluti

- Athugið að keppni í frjálsum íþróttum fer fram sunnudaginn 10. apríl.
- Skráningargjald á hvern keppanda á Íslandsmótið er kr. 500.
- Lokahófið fer fram í Flensborgarskólanum sunnudaginn 27. mars. Verð og nánari upplýsingar koma síðar.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 26. febrúar 2011 17:12
Andlát: Einar Trausti Sveinsson

Frjálsíþróttamaðurinn Einar Trausti Sveinsson er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri. Einar Trausti skipaði hóp vaskra ungra frjálsíþróttamanna sem gerðu garðinn frægan í kringum aldamótin síðustu. Sín fyrstu spor í þátttöku á alþjóðavettvangi steig Einar Trausti, líkt og allir fremstu íþróttamenn úr röðum fatlaðra, á Norrænum barna og unglingamótum. Árið 1998, þá aðeins 16 ára gamall vann hann til bronsverðlauna á Heimsmeistaramóti fatlaðra sem fram fór í Englandi og ári síðar til silfurverðlaun á Evrópumeistaramóti spastískra sem einnig fór fram í Englandi.

Árið 2000 var Einar Trausti meðal sex keppenda frá Íslandi sem náðu tilskyldum lágmörkum fyrir Ólympíumót fatlaðra sem fram fór í Syndney.  Meiðsli höfðu þá um skeið háð honum sem komu í veg fyrir að hann væri í baráttu um verðlaunasæti.
 
Einar Trausti hætti keppni á alþjóðavettvangi eftir Ólympíumótið og tók síðast þátt í mótum á vegum ÍF árið 2003.  Einar Trausti, sem keppti í fötlunarflokki F35, setti Íslandsmet í spjótkasti, kringlukasti og kúluvarpi sem enn standa.

Margs er að minnast frá því miður allt of stuttum íþróttaferli Einars Trausta þar sem ávallt var stutt í brosið þó á móti blési.  Þannig var hann hvers manns hugljúfi, glaðlyndur og góður drengur.

Íþróttasamband fatlaðra færir aðstandendum Einars Trausta sínar innilegustu  samúðarkveðjur.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 25. febrúar 2011 15:10
Skíðanámskeið í Hlíðarfjalli: Gleði og ánægja á Akureyri

Helgina 18. – 20. febrúar var haldið skíðanámskeið fyrir fötluð börn og ungmenni í Hlíðarfjalli. Námskeiðið var samstarfsverkefni Íþróttasambands fatlaðra, Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, Hlíðarfjalls og NSCD, (National Sport Center for disabled) Winter Park Colorado.  

Þátttakendur  voru einhverf börn, börn með sjónskerðingu og hreyfihömluð börn. Markmið námskeiðsins var að kynna skíðaíþróttina fyrir fötluðum börnum og aðstandendum þeirra en þetta námskeið var fyrir þá  sem geta notað hefðbundinn skíðaútbúnað. Mjög góður árangur náðist hjá þátttakendum og mikil gleði og ánægja ríkti meðal þeirra og ekki síst aðstandenda.
Aðalleiðbeinandi var  Beth Fox forsvarsmaður NSCD,  Winter Park, Colorado en hún býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði. NCSD Winter Park er í markvissu samstarf við barnaspítala í Denver  og börn af spítalanum eru þátttakendur í útivistarstarfi NSCD. Kennarar og aðstoðarfólk lögðu fram sína vinnu í sjálfboðavinnu og námskeiðin hafa frá upphafi verð byggð upp af sjálfboðaliðum.

Í hópi þátttakenda var lítill drengur sem í fyrsta skipti á ævinni gat staðið einn og óstuddur en hann notar göngugrind. Hann hafði sérstaka skíðagrind en í lok námskeiðs skíðaði hann með aðstoð þjálfara án þess að nota skíðagrindina. Þessi upplifun hafði mikil áhrif á hann og aðra sem fylgdust með.    

Skíðaiðkun fatlaðra barna hefur verið  mjög takmörkuð en þessi íþróttagrein hentar þeim ekki síður en öðrum börnum.  Aðalatriðið er að aðlaga búnað og aðstæður að hverju barni og markmið er að gera þeim kleift að taka þátt í almennum tilboðum.  Í Hlíðarfjalli þessa helgi var drengur sem hefur nú hafið æfingar með skíðadeild Víkings en hann skíðar á einu skíði.  Hann mætti á námskeið ÍF, VMÍ og NSCD árið 2010 þar sem hann fékk sérhannaða skíðastafi og hefur nú pantað eigin stafi.  Hann hefur sýnt ótrúlegar framfarir og hefur lagt mikið á sig til að geta æft með sínum jafnöldrum.

Þróun er að eiga sér stað á þessu sviði þó hægt gangi en aðalatriði er að fólk nýti þau tækfæri sem til staðar eru og prófi sig áfram. Í Hlíðarfjalli er til staðar sérbúnaður og kostur er á því að fá sérþjónustu ákveðna daga í viku.

Helgina 4. – 6. mars verður námskeið fyrir þá sem þurfa að nota Bi ski eða Monoski og  það námskeið er fullbókað. Þar verða íslenskir leiðbeinendur og aðstoðarfólk.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 24. febrúar 2011 16:56
Íslandsmót ÍF: Keppni í frjálsum fer fram 10. apríl

Helgina 25.-27. mars n.k. fer Íslandsmót ÍF fram í Hafnarfirði. Af óviðráðanlegum orsökum fellur keppni niður í frjálsum íþróttum og hefur keppni í frjálsum fengið nýja dagsetningu, sunnudaginn 10. aprí.

Keppni í frjálsum fer þá fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal þann 10. apríl og hefst mótið kl. 12:00. Þá er ráðgert að á morgun eða mánudaginn 28. febrúar að send verði út skráningarblöð í sundi, boccia, bogfimi, lyftingum og borðtennis fyrir Íslandsmótið 25.-27. mars.

Nánar verður greint frá Íslandsmótinu síðar en beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem frestun á keppni í frjálsum kann að valda.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 14. febrúar 2011 11:54
Fatlaðir sundmenn settu 12 Íslandsmet á Gullmóti KR

Fatlaðir sundmenn tóku þátt í Gullmóti KR um síðastliðna helgi og lönduðu 12 Íslandsmeistaratitlum.

Gullmót KR var haldið helgina 11.-13.febrúar og var eitt af skráðum lágmarkamótum IPC. Umgjörðinn var frábær og öll sundlaugaumgjörðin var til fyrirmyndar.

Fyrst til þess að setja Íslandsmet á föstudeginum var Thelma Björg Björnsdóttir, S 6 í 50 metra skriðsundi á tímanum 44.80 sekúndum. Næstur var Pálmi Guðlaugsson S 7 í 50 metra baksundi á tímanum 48.43 sekúndum. Næstur var Jón Margeir Sverrisson S 14 sem setti Íslandsmet í 800.metra skriðsundi 9.43.18 og 1500 metra skriðsundi á tímanum 18.22.09. Föstudeginum lauk svo með öðru Íslandsmeti hjá Pálma Guðlaugsyni ,S 7 í 1500 metra skriðsundi á tímanum 25.13.25 mín.

Laugardagurinn fyrri hluti byrjaði vel og fyrst til þess að setja Íslandsmet var Thelma Björg Björnsdóttir S 6 í 200 metra skriðsundi á tímanum 3.35,85mín og 400 metra skriðsundi á tímanum 7.17.30mín. 

Seinni hluti Laugardagsins kom fyrsta Íslandsmetið hjá Guðmundi Hákoni Hermannssyni S 9 í 200 metra baksundi á tímanum 2.59,76mín. Næst kom Thelma Björg Björnsdóttir S 6 í 100 metra skriðsundi á tímanum 1.37,75.  Næstur var Pálmi Guðlaugsson S 7 í 200 metra flugsundi á tímanum 3.28,36mín.

Sunnudagurin byrjaði vel og fyrsta Íslandsmetið kom hjá Pálma Guðlaugsyni S 7 í 100 metra baksundi á tímanum 1.43,37. Síðasta Íslandsmetið kom í 200 metra skriðsundi hjá Thelmu Björg Björnsdóttur á tímanum 3.29,72mín. 

Til hamingju með þennan árangur og greinilegt að æfingar vetrarins eru að skila sér vel hjá hópnum. 

Mynd/ Thelma B. Björnsdóttir setti 5 Íslandsmet um helgina í flokki S6, flokki hreyfihamlaðra en þeir keppa í 10 flokkum, S1-S10.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 8. febrúar 2011 15:48
Opinn fyrirlestur: Að læra og þjálfa í sýndarveruleika

Félag CP á Íslandi og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins bjóða til fyrirlestrar miðvikudaginn 9. febrúar, kl. 16:30 á Grand hótel Reykjavík. Fyrirlesturinn er öllum opinn og heitir:

„FROM NEUROPLASTICITY TO PRACTICE APPLICATION
- Introducing a web based individualized training and learning system”

„Að læra og þjálfa í sýndarveruleika”

Kynnt verður hugmyndafræði að baki nýrrar aðferðar við þjálfun einstaklinga með CP. Fyrirlesari er Peder Esben Bilde,  framkvæmdastjóri Helene Elsass Center í Kaupmannahöfn. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

Allir áhugasamir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Fundarstjóri: Solveig Sigurðardóttir, barnalæknir

www.cp.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 1. febrúar 2011 17:16
ÍF og 66° Norður saman til 2012

Íþróttasamband fatlaðra og 66° Norður endurnýjuðu á dögunum samstarfs- og styrktarsamning sín á milli sem gildir til ársins 2012. Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF sagði við tækifærið að ánægja væri á meðal íþróttahreyfingar fatlaðra að hafa 66° Norður sem einn af styrktar- og samstarfsaðilum félagsins enda starfaði fyrirtækið faglega og markaðsetti vandaðan varning.

Samningurinn kveður á um styrki vegna ýmissa verkefna ÍF á samningstímabilinu en 66° Norður voru t.d. áberandi á Vetrarólympíuleikum fatlaðra í Kanada árið 2010 þar sem skíðakonan Erna Friðriksdóttir varð fyrsti íslenski keppandinn í alpagreinum.

Halldór G. Eyjólfsson forstjóri 66°Norður sagði við undirskrift samningsins að spennandi væri að taka þátt í starfinu með Íþróttasambandi fatlaðra. Ærin og fjölbreytt verkefni væru á dagskránni næstu tvö árin og 66° Norður ætluðu sér að standa þétt við bakið á ÍF næstu tvö árin.

Mynd: Á myndinni eru f.v. Halldór Gunnar Eyjólfsson forstjóri 66 ° Norður og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF við undirritun samningsins.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 1. febrúar 2011 17:09
12 Íslandsmet á Reykjavíkurmeistaramótinu um síðustu helgi

Reykjavíkurmeistaramótið í sundi fór fram í innilauginni í Laugardal um síðustu helgi. Keppt var í 25m. laug þar sem alls 12 Íslandsmet úr röðum fatlaðra féllu en bæði fatlaðir sem og ófatlaðir kepptu á mótinu.

Hjörtur Már Ingvarsson sundmaður hjá ÍFR var í fantaformi um helgina og bætti fjögur Íslandsmet í sínum flokki en Hjörtur syndir í flokki S5.

Íslandsmetin:

Thelma B. Björnsdóttir, S6 200 frjáls aðferð 3:38,90
Thelma B. Björnsdóttir, S6 400 frjáls aðferð 7:25,00
Thelma B. Björnsdóttir, S6 100 frjáls aðferð 1:42,20
Hjörtur Már Ingvarsson, S5 100 frjáls aðferð 1:37,68
Hjörtur Már Ingvarsson, S5 200 frjáls aðferð 3:26,70
Hjörtur Már Ingvarsson, S5 100 ...frjáls aðferð 7:09,13
Hjörtur Már Ingvarsson, S5 100 bak 2:13,17
Pálmi Guðlaugsson, S7 200 bak 3:29,59
Pálmi Guðlaugsson, S7 200 flug 3:20,11
Guðmundur H. Hermanns, S9 200 bak 2:50,68
Marinó Adolfsson, S8 200 frjáls aðferð 3:33,32
Vignir Gunnar Hauksson, SB5 100 bringa 2:43,40

Mynd/ Hjörtur Már Ingvarsson gerði gott mót í Laugardal um helgina.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 28. janúar 2011 14:34
AIPS heiðrar Erling Jóhannsson

Alþjóðasamtök íþróttafréttamanna, AIPS, heiðruðu í gær á hátíðarsamkomu í Lausanne í Sviss Erling Jóhannsson, sundþjálfara fatlaðra, sem lést í nóvember síðastliðnum. Hann var einn þriggja sem hlutu Power of Sport Award sem veitt voru í fyrsta sinn um leið og hin árlegu World Fair Play Awards voru veitt. Hugmyndin að Power of Sport Award verðlaununum eru komin frá orðum Nelsons Mandela þegar hann afhenti fyrstu Laureusverðlaunin árið 2000 þegar hann sagði íþróttir geta breytt heiminum, að þær hefðu kraft og vald til þess að sameina heiminn betur en nokkurt annað afl. Að  þær tali tungumáli sem ungt fólk skilur og þær geti skapað von þar sem áður var aðeins örvænting. Með þessi orð í huga var ákveðið að heiðra fólk sem hefur lagt sitt að mörkum til að bæta umhverfi sitt og þjóðfélag í gegnum íþróttir.

Ásamt Erlingi voru May El Khalil frá Líbanon og Nawal El Moutawakel frá Marokkó heiðraðar.  El Khalil er upphafskona Beirút maraþonhlaupsins sem hefur orðið einstakt saminingarafl í stríðshrjáðu Líbanon þar sem svarnir óvinir koma saman einu sinni á ári, gleyma erjum sínum og hlaupa hlið við hlið. Í fyrra tóku ríflega 28 þúsund hlauparar þátt í maraþonhlaupinu sem er orðinn einn stærsti árlegi viðburðurinn í landinu.

Nawal El Moutawakel varð fyrst afrískra og arabískra kvenna til að vinn gullverðlaun á Ólympíuleikum, í 400 metra grindahlaupi í Los Angeles 1984. Eftir að keppnisferli hennar lauk hefur hún barist ötullega fyrir þátttöku kvenna í íþróttum og heilsu kvenna í Afríku og arabalöndum. Árið 1997 varð hún fyrst múslímskra kvenna kosin í alþjóða ólympíunefndina, IOC.

Erlingur þjálfaði fatlað sundfólk í rúm 30 ár og á stóran þátt í þeim frábæra árangri sem það hefur náð á liðnum árum. Jafnframt sundþjálfuninni lagði hann mikla áherslu á að íþróttamenn hans yrðu eins sjálfbjarga í daglegu lífi og mögulegt var. Erlingur greindist með banvænt krabbamein fyrir rúmum tveimur árum, en hélt áfram að þjálfa fram á síðasta dag. Hann stjórnaði síðustu æfingu sinni tveimur dögum áður en hann var lagður inn á líknardeild og lést tíu dögum síðar. Halldór Guðbergsson, keppandi á Ólympíumótum fatlaðra 1988 og 1992, og fyrrverandi formaður Öryrkjabandalagsins, tók við viðurkenningunni fyrir hönd Erlings.

Á meðal þeirra sem voru heiðraðir með World Fair Play viðurkenningunni var Edwin Moses, tvöfaldur Ólympíumeistari í 400 metra grindahlaupi karla og forseti Laureussamtakanna sem vinna ómetanlegt starf fyrir ungmenni út um allan heim í gegnum íþróttir.

Meðfylgjandi mynd:
Halldór Guðbergsson ásamt Nawal El Moutawakel (tv.) og May El Khalil.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 27. janúar 2011 16:19
Hörður býður upp á reiðnámskeið fyrir fatlaða
Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ býður upp á reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun. Reiðnámskeiðið er í samstarfi við Hestamennt ehf. og er 5 vikna námskeið í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.

Eftirfarandi námskeið eru í boði:

Námskeið 1 : 14. febrúar – 14. mars
Mánudagar kl. 14:30 - 15:30. 5 skipti í senn
14. feb, 21. feb, 28.feb, 7. mars og 14.mars.

Námskeið 2 : 18. febrúar – 18. mars
Föstudagar kl. 14:30 15:30. 5 skipti í senn
18. feb, 25. feb, 4. mars, 11. mars og 18.mars.

Námskeið 3 : 21. mars – 18. apríl
Mánudagar kl. 14:30 - 15:30 . 5 skipti í senn
21. mars, 28.mars, 4.apríl, 11.apríl og 18. apríl.

Námskeið 4 : 25. mars – 29. apríl
Föstudagar kl. 14:30 - 15:30. 5 skipti í senn
25.mars, 1. apríl, 8.apríl, 15. apríl og 29.apríl.

Fyrir hverja er námskeiðið:
Öll börn og ungmenni sem við einhvers konar fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða af öðrum ástæðum og sem hafa áhuga á að umgangast hesta eða vilja kynnast hestamennsku. Lagt er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.

Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í reiðkennslu fatlaðra, sjúkraþjálfari verður til taks sem og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.

Hvað er innifalið í námskeiðsgjaldi:
Öll kennsla og kennslugögn
Lagðir eru til hestar fyrir hvern og einn sem og allur útbúnaður til reiðar þar á meðal sérsmíðaðir hnakkar og annar útbúnaður eftir þörfum.
Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.

Námskeiðsgjald er 15.000 kr.
Síðasti skráningardagur er 10. febrúar 2011.

Frekari upplýsingar og skráning er hjá Auði G. Sigurðardóttur s: 8997299
Umsjónarmaður námskeiðsins er Súsanna Ólafsdóttir, reiðkennari.
 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 24. janúar 2011 15:44
Pistorius byrjar með látum í Christchurch

Andlit Össurar, hlaupagarpurinn Oscar Pistorius, byrjar með látum á Heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum sem nú fer fram í Christchurch á Nýja-Sjálandi. Um helgina keppti Oscar í 200m hlaupi í flokki T44 og vann þar örugglega til gullverðlauna.

Oscar hljóp á tímanum 21,80 sek. en Jerome Singleton frá Bandaríkjunum tók silfrið á tímanum 22,77 sek. Oscar sem er frá Suður-Afríku átti samlanda á palli því Arnu Fourie hafnaði í 3. sæti á tímanum 22,82 sek.

Glæsileg byrjun á mótinu hjá Oscari Pistorius og ljóst að hann á eftir að láta meira að sér kveða á mótinu og virðist í fantaformi.

Hægt er að fylgjast vel með framvindu mála á HM fatlaðra í frjálsum á www.paralympic.org

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 24. janúar 2011 15:00
Skíðanámskeið ÍF, VMÍ og Hlíðarfjalls í samstarfi við Winter Park, Colorado

Hlíðarfjalli, Akureyri 18. - 20. febrúar  og 4. – 6. mars 2011
 
Dagskrá föstudag
Kl. 12:30: Mæting í Hlíðarfjall, kynning og farið yfir helstu atriði með einstaklingum

Dagskrá laugardag og sunnudag
Verklegar æfingar, ráðgjöf og fræðsla.  Fundur í lok námskeiða  kl. 15.30 – 1600 á sunnudag.

Markhópur á námskeiði  18. – 20. febrúar 2011

Fötluð börn og unglingar sem  geta notað hefðbundin skíði en þurfa séraðstoð.
Markmið er að þau geti í kjölfarið sótt almenn skíðanámskeið
Skíðaþjálfarar, leiðbeinendur sem vilja fá ráðgjöf á þessu sviði

Aðalleiðbeinandi verður Beth Fox frá Winter Park, Colorado.
Hámarksfjöldi;  15 þátttakendur  -  Námskeiðsgjald kr; 12.500

Nánari upplýsingar veita;
Elsa Skúladóttir 8642062 elsa@saltvik.is og Þröstur Guðjónssona 896 1147 sporri@internet.is

Staðfesta þarf skráningu fyrir  10. febrúar á netfangið;  annak@isisport.is

Markhópur á námskeiði 4. – 6. mars 2011

Notendur skíðasleða Bi ski og monoski
Skíðaþjálfarar / leiðbeinendur sem vilja kynna sér þessi tæki
Íslenskir leiðbeinendur aðstoða þá sem vilja prófa Bi ski eða monoski
Hámarksfjöldi;  10 þátttakendur   -    Námskeiðsgjald  kr. 12. 500.-

Nánari upplýsingar veita;
Elsa Skúladóttir 8642062 elsa@saltvik.is og Þröstur Guðjónssona 896 1147 sporri@internet.is

Staðfesta þarf skráningu á námskeiðið í mars fyrir 20. febrúar á annak@isisport.is

Námskeiðsgjöld á bæði námskeiðin innifela lyftukort, súpu í hádegi, kennslu og ráðgjöf.
Skíðasleðar verða til útláns og sérkjör verða á leigu af öðrum skíðabúnaði sé þörf á slíku.
Sérkjör á gistingu;   www.ongulsstadir.is / hrefna@ongulsstadir.is

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 21. janúar 2011 16:38
Dómaranámskeið í sundi

Bóklegt dómaranámskeið í sundi verður haldið þriðjudaginn 25.janúar 2011 kl.18-22 í sal á efri hæð í Laugardalslaug (hægra megin við afgreisluna). Verklegt námskeið verður á Reykjavíkurmeistaramótinu föstudaginn 28. janúar (seinnipart)/laugardagsmorgun 29.janúar.

Námskeiðið er opið öllum sem hafa áhuga. Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi  föstudaginn 21. janúar á netfangið buckley@hive.is  Þar verður að koma fram nafn og netföng þáttekanda.

Kennslugögnin verða síðan send rafrænt á þáttakendur.

Nánari upplýsingar fast á sundsamband@sundsamband.is

Mynd/ Eins og sést hér á Kristínu Guðmundsdóttur landsliðsþjálfara ÍF í sundi þá getur verið hrikalega gaman að vera sunddómari. Á þessari mynd var Kristín starfandi sem mótsstjóri á Nýárssundmóti ÍF.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 19. janúar 2011 16:33
ÍSÍ úthlutaði rúmum 56 milljónum til afreksstarfs

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti í dag tillögur Afrekssjóðs ÍSÍ og Styrktarsjóðs ungra og framúrskarandi íþróttamanna fyrir árið 2011. Fjórir íþróttamenn úr röðum fatlaðra hlutu C-styrk úr Afrekssjóði.

Baldur Ævar Baldursson – frjálsar – C styrkur 480.000
Eyþór Þrastarson – sund – C styrkur 480.000
Jóhann Rúnar Kristjánsson – borðtennis – C styrkur 480.000
Jón Margeir Sverrisson – sund – C styrkur 480.000

Þá fengu sundmaðurinn Pálmi Guðlaugsson og skíðakonan Erna Friðriksdóttir eingreiðslu úr Afrekssjóði upp á 300.000 kr. hvort. Sex ungir og framúrskarandi íþróttamenn hlutu svo eingreiðslu úr Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi íþróttamanna og var hver upphæð kr. 100.000.

Þau sem hlutu styrk frá Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi voru:

Ingeborg Eide Garðarsdóttir – frjálsar
Anna Kristín Jensdóttir – sund
Guðmundur Hákon Hermannsson – sund
Kolbrún Alda Stefánsdóttir – sund
Thelma Björg Björnsdóttir – sund
Hjörtur Már Ingvarsson – sund

Alls var úthlutun ÍSÍ í dag 56.140.000 kr. Rúmlega 45 milljónum var úthlutað úr Afrekssjóði ÍSÍ og um 10 milljónir komu úr Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi.

Mynd/ Borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson hlaut C-styrk fyrir árið 2011.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 16. janúar 2011 00:35
RIG lokið: 19 Íslandsmet lágu í valnum

Reykjavík International Games fóru fram dagana 13.-16. janúar og í sundkeppni fatlaðra féllu alls 19 Íslandsmet og ljóst að fatlaðir íslenskir sundmenn hefja árið með glæsibrag. Í dag, sunnudag, lauk þriðja og síðasta keppnisdegi þar sem féllu sex Íslandsmet.

6 Íslandsmet á RIG í þriðja mótshluta.

Jón Margeir Sverrisson, S14 100 skrið 0:59,05
Hjörtur M. Ingvarsson, S5 100 skrið 1:39,30
Thelma B. Björnsdóttir, S6 50 skrið 0:48,25
Thelma B. Björnsdóttir, S6 100 skrið 1:42,84
Vaka Þórsdóttir, S11 100 bak 2:26,83
Hjörtur M. Ingvarsson, S5 100 skrið 1:04,94

Thelma B. Björnsdóttir heldur áfram að finna taktinn í lauginni en hún setti 8 Íslandsmet um helgina. Jón Margeir Sverrisson setti tvö met, Hjörtur Már Ingvarsson setti fjögur, Pálmi Guðlaugsson setti tvö, Vaka Þórsdóttir tvö og Marinó Ingi Adolfsson setti eitt.

Mynd/ Thelma B. Björnsdóttir fór mikinn um helgina.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 16. janúar 2011 11:57
Sjö Íslandsmet á öðrum keppnisdegi RIG

Í gær fór fram annar keppnisdagur í sundi fatlaðra á Reykjavík International Games. Alls lágu fimm Íslandsmet í valnum að þessu sinni og Thelma B. Björnsdóttir setti tvö þeirra og hefur því á tveimur fyrstu keppnisdögunum sett alls fimm Íslandsmet.

Metin sem sett voru í gær:

Thelma B. Björnsdóttir, S6 50 skrið 0:48,94
Pálmi Guðlaugsson, S7 50 bak 0:49,90
Marinó Adolfsson, S8 50 bak 0:48,95
Hjörtur M. Ingvarsson, S5 200 skrið 3:33,49
Thelma B. Björnsdóttir, S6 200 skrið 3:41,32
Vaka Þórsdóttir, S11 50m skrið, 1:26,24 mín.
Thelma B. Björnsdóttir 100m skrið, 1:47,47

Keppni heldur áfram í dag á þriðja og síðasta keppnisdegi mótsins en upphitun hefst kl. 12:00 og keppni kl. 12:45.

Mynd/ Marinó I. Adolfsson setti nýtt Íslandsmet í gær í 50m. baksundi í flokki S8.

Til fróðleiks:
Flokkur S1-S10 er flokkur hreyfihamlaðra (S1 mesta fötlun/S10 minnsta fötlun)
Flokkur S11-S13 er flokkur blindra/sjónskertra (S11 er flokkur alblindra)
Flokkur S14 er flokkur þroskahamlaðra

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 15. janúar 2011 00:41
Sex Íslandsmet á fyrsta keppnisdegi RIG

Reykjavík International Games hófust á föstudag og í sundhluta fatlaðra féllu sex Íslandsmet á þessum fyrsta keppnisdegi. Pálmi Guðlaugsson var að vonum sáttur eftir þennan fyrsta keppnisdag en hann bætti tíu ára gamalt Íslandsmet Bjarka Birgissonar í 100m. flugsundi í flokki S7.

Pálmi synti á tímanum 1:35.67mín. en gamla metið hans Bjarka var 1:38.12 mín. Þá setti Hjörtur Már Ingvarsson met í flokki S5 þegar hann synti 200m. fjórsund á tímanum 4:33.14 mín. Jón Margeir Sverrisson setti glæsilegt Íslandsmet í flokki S14 (flokkur þroskahamlaðra) þegar hann synti á tímanum 4:36,18 mín.

Þá féllu þrjú Íslandsmet í einu og sama sundinu hjá Thelmu Björg Björnsdóttur en Thelma syndir í flokki S6. Thelma var að synda í 400m. skriðsundi þegar þessi glæsilegu met féllu en fyrsta metið var í 100m. skriðsundi, tími 1:47.62 mín. Næsta met var í 200m. skriðsundi og var tíminn 3:43.71 mín og loks bætti Thelma eigið Íslandsmet í 400m. skriðsundi á tímanum 7:40,42 mín.

Sundkeppni fatlaðra heldur áfram laugardaginn 15. janúar þar sem upphitun hefst kl. 12:00 og keppni kl. 12:45.

Mynd/ Pálmi Guðlaugsson var að vonum kátur með nýja Íslandsmetið sitt í dag en gamla metið hafði staðið óhaggað í áratug. Gamla metið setti Bjarki Birgisson árið 2001 einmitt í Laugardalslaug.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 14. janúar 2011 10:43
Tölvupóstur liggur niðri

Bilun er í tölvukerfi íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Meðal annars er bilun í tölvupóstþjóni og berast tölvupóstar því ekki eins og er.

ÍF fær því ekki tölvupóst.

Biðjumst við velvirðingar á þessu en viðgerð stendur yfir.

ojjon@hotmail.com er varanetfang á meðan bilun stendur yfir. 

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 11. janúar 2011 16:35
Fræðsluerindi um afreksmál

Í tilefni af Reykjavíkurleikum þá bjóða Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur íþróttafólki og öðrum áhugasömum að hlýða á fjölbreytt fræðsluerindi í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardalnum.

Dagskrá:
Miðvikudagurinn 12. janúar

Kl. 17:00 Samskipti íþróttahreyfingarinnar við fjölmiðla
Arnar Björnsson fjölmiðlamaður hjá Stöð 2

Kl. 17:30 Umhverfi keppnisíþrótta
Viðar Halldórsson íþróttafélagsfræðingur

Kl. 18:00 Umgjörð afreksmanna á Íslandi
Andri Stefánsson sviðstjóri afreksmála - ÍSÍ.

Kl. 18:30 Afreksmál fatlaðra
Ingi Þór Einarsson íþróttafræðingur og landsliðsþjálfari í sundi fatlaðra.

Fimmtudagurinn 13. janúar
Kl. 18:00 Afreksþjálfun þríþrautarmanna
Kathleen Smet þjálfunarlífeðlisfræðingur, afrekskona í þríþraut frá Belgíu og stjórnarmaður í evrópska þríþrautarsambandinu.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 10. janúar 2011 15:41
Myndasafn: Fjórði Sjómannabikar Fjarðar

Í gær landaði Kolbrún Alda Stefánsdóttir Sjómannabikarnum í fjórða sinn fyrir hönd Íþróttafélagsins Fjarðar þegar Nýárssundmót barna og unglinga fór fram í innilauginni í Laugardal. Þó Fjörður hafi unnið Sjómannabikarinn alls fjórum sinnum hafa aðeins þrír sundmenn komið nafni sínu á hann en þær eru Hulda H. Agnarsdóttir (2006), Karen B. Gísladóttir (2007 og 2008) og svo Kolbrún Alda.

Veglegt myndasafn frá mótinu í gær má finna hér en mótið er fyrir fötluð börn og ungmenni 17 ára og yngri. Það var því um breiðan hóp að ræða enda slegið þátttökumet þar sem um 100 krakkar tóku þátt. Landsliðskrakkar og byrjendur komu saman og gerðu gott mót og sýndu allar sínar bestu hliðar.

Íþróttasamband fatlaðra vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem tóku þátt í því að skapa sterka og góða umgjörð á mótinu enda heppnaðist það afar vel í alla staði.

Sögulegar staðreyndir um Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga:

-Fyrst haldið árið 1984 þar sem Sigrún Pétursdóttir frá ÍFR var fyrsti sigurvegarinn, fékk þá 482 stig í 50m. baksundi.
-Fyrirkomulag mótsins er stigamót, sá sem nær bestum tíma í sinni grein út frá heimsmeti fatlaðra í greininni hlýtur flest stig og þar af leiðandi Sjómannabikarinn.
-Sigmar Ólason sjómaður á Reyðarfirði gaf ÍF Sjómannabikarinn.
-Þrír sundmenn hafa unnið Sjómannabikarinn til eignar en þeir eru Birkir Rúnar Gunnarsson, Gunnar Örn Ólafsson og Guðrún Sigurðardóttir.
-Fyrsti heiðursgesturinn árið 1984 var frú Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti Íslands.
-Erlingur Þ. Jóhannsson var mótsstjóri Nýárssundmótsins í 27 ár, hann lést seint á síðasta ári eftir langvarandi veikindi og tók Kristín Guðmundsdóttir núverandi landsliðsþjálfari ÍF í sundi við keflinu af Erlingi. Kristín var mótsstjóri í fyrsta sinn á Nýárssundmótinu nú síðastliðinn sunnudag.
-Á Nýárssundmótinu 2011 var minnisvarði afhjúpaður til minningar um Erling Þ. Jóhannsson og mun hann standa við tímatökubúrið í innilauginni í Laugardal um ókomin ár.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 9. janúar 2011 18:57
Kolbrún Alda handhafi Sjómannabikarsins 2011

Sundkonan Kolbrún Alda Stefánsdóttir frá Firði í Hafnarfirði er handhafi Sjómannabikarsins 2011 en Kolbrún vann besta afrekið á Nýárssundmóti Íþróttasambands fatlaðra sem var að ljúka í Laugardal. Mótið var nú haldið í tuttugasta og áttunda sinn og er fyrir fötluð ungmenni 17 ára og yngri. Kolbrún er fjórði sundmaðurinn frá Firði síðan árið 2000 til þess að vinna Sjómannabikarinn.

Sérstakur heiðursgestur á mótinu var herra Guðbjartur Hannesson ráðherra velferðarmála en hann og frú Dorrit Moussaieff forsetafrú Íslands sáu um verðlaunaafhendingu á mótinu. Þá heiðraði herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, einnig mótsgesti með nærveru sinni.

Sjómannabikarinn er afhentur þeim sundmanni ár hvert sem vinnur besta afrekið á mótinu. Reiknuð eru út stig viðkomandi af þeim tíma sem synt er á, heimsmet gildir þá 1000 stig. Í dag fékk Kolbrún 594 stig fyrir 50m. skriðsund er hún kom í bakkann á tímanum 34,44 sek.

Við setningu á mótinu í dag bað Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF viðstadda um að veita einnar mínútu þögn til minningar um Erling Þ. Jóhannsson sem andaðist á dögunum eftir langvarandi veikindi. Sveinn Áki ásamt Hrafnhildi Hámundardóttur, eiginkonu Erlings heitins, afhjúpuðu svo minningarskjöld sem standa mun í Laugardalslaug um ókomin ár. Erlingur var brautryðjandi í sundíþróttinni á Íslandi og þjálfaði helstu afreksmenn þjóðarinnar úr röðum fatlaðra. Erlingur var þjálfari hjá ÍFR og landsliðsþjálfari hjá ÍF um árabil.

Sigurvegarar á Nýárssundmóti ÍF síðan 2000 / handhafar Sjómannabikarsins

2011: Kolbrún Alda Stefánsdóttir - Fjörður
2010: Vilhelm Hafþórsson - Óðinn
2009: Jón Margeir Sverrisson - Ösp
2008: Karen Gísladóttir - Fjörður
2007: Karen Gísladóttir - Fjörður
2006: Hulda H. Agnarsdóttir - Fjörður
2005: Guðrún Lilja Sigurðardóttir - ÍFR
2004: Guðrún Lilja Sigurðardóttir – SH/ÍFR
2003: Guðrún Lilja Sigurðardóttir - SH
2002: Jóna Dagbjört Pétursdóttir – ÍFR
2001: Gunnar Örn Ólafsson – Ösp
2000: Gunnar Örn Ólafsson – Ösp

Heildarúrslit mótsins má finna hér.

Mynd: Kolbrún Alda Stefánsdóttir með Sjómannabikarinn

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 9. janúar 2011 15:30
Nýársmót ÍF við það að hefjast í Laugardal

Nú er um það bil hálftími þangað til Nýárssundmót ÍF hefst í innilauginni í Laugardal. Að þessu sinni er um met þátttöku að ræða þar sem um 100 sundkrakkar 17 ára og yngri eru mætt til leiks.

Heiðursgetur mótsins er herra Guðbjartur Hannesson ráðherra velferðarmála og mun hann veita keppendum þátttökuverðlaun í mótslok.

Mynd/ Keppandi á Nýárssundmótinu hitar upp.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 7. janúar 2011 10:10
Frestur til að sækja um í ferðasjóð rennur út 10. janúar

Næsta mánudag, þann 10. janúar, rennur út frestur til að sækja um í ferðasjóð íþróttafélaga vegna keppnisferða sem farnar voru á árinu 2010.

Ekki verður tekið við umsóknum eftir 10. janúar.

Nánari upplýsingar fast á skrifsftofu ÍSÍ í síma 514 4000

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 2. janúar 2011 14:39
Tvö brons hjá Ernu í desember

Erna Friðriksdóttir sem á dögunum var útnefnd Íþróttakona ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra er nú stödd í Colorado við skíðaæfingar á mono-sleða. Um miðjan desember mánuð tók Erna þátt í nokkrum mótum þar sem hún landaði m.a. tveimur bronsverðlaunum.

Erna keppti á Ski Spectacular Copper Mountain 2010 – NorAm. ,,Við dvöldum á hóteli í litlum sætum bæ sem heitir Frisco. Á svona ferðalögum er ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða! Við komuna til Frisco var dótið tekið úr bílnum og við fengum lyklana af herbergjunum okkar. Síðan fórum við upp á skíðasvæði, skoðuðum okkur aðeins um og fengum lyftukortin okkar. Næstu fjóra daga kepptum við,” sagði Erna í samtali við heimasíðu ÍF.

Árangur Ernu á mótinu:
13.12.2010 - Keppt í stórsvigi. Endaði í 3. sæti.
14.12.2010 - Keppt í stórsvigi. Endaði í 4. sæti.
15.12.2010 - Keppt í svigi. Féll úr keppni eftir fyrri umferð eftir að hafa misst úr hlið.
16.12.2010 - Keppt í svigi. Endaði í 3. sæti.

Erna kvað æfingarnar í Winter Park ganga mjög vel og er núna þegar þetta er ritað að taka þátt í öðru móti sem fer fram á æfingasvæðinu í Winter Park.

Mynd úr einkasafni Ernu/ Meira að segja fuglarnir hafa áhuga á því sem Erna er að gera!

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 1. janúar 2011 19:08
Jóhann Rúnar íþróttamaður ársins í Reykjanesbæ

Jóhann Rúnar Kristjánsson, borðtennismaður, sem leikur fyrir Nes í Reykjanesbæ, er íþróttamaður Reykjanesbæjar 2010. Kjörinu var lýst í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur á gamlársdag. Jóhann Rúnar hlaut mikið lófatak þegar úrslitin voru gerð opinber.

Auk Jóhanns voru bestu íþróttamenn í fimmtán íþróttagreinum í Reykjanesbæ verðlaunaðir, auk þess sem allir Íslandsmeistarar í Reykjanesbæ á árinu 2010 fengu verðlaunapening.

Jóhann var margfaldur Íslandsmeistari á árinu.
Í tvíliðalek karla Ísl. mót ÍF.
Sitjandi flokkur karla Ísl. mót ÍF.
Opinn flokkur karla Ísl. mót ÍF.
Í 1. Flokki karla ófatlaðra.

Þá keppti Jóhann einnig á Heimsmeistaramótinu í borðtennis sem fram fór í Suður-Kóreu síðla nýliðins árs.

Myndin: Jóhann Rúnar Kristjánsson með verðlaunagripina við útnefninguna.
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 30. desember 2010 14:16
Æfingabúðir landsliðs ÍF í sundi og Nýárssundmótið

Áður en kemur að sjálfu Nýárssundmóti ÍF sunnudaginn 9. janúar 2011 mun Sundnefnd ÍF standa að æfingabúðum fyrir landslið ÍF í sundi. Dagskrá æfingabúðanna er sem hér segir:

8. jan: Laugardagsmorgun                        8:15 – 10:15        Bara eldri krakkarnir sem keppa ekki á mótinu

8. jan: Laugardagseftirmiðdagur            16:00 -18:00       Allir krakkarnir, bara létt upphitun og tækni

9. jan: Sunnudagsmorgun                       10:30 – 12:30     Bara eldri krakkarnir sem keppa ekki á mótinu

Fyrirlestur, Klemens Sæmundsson næringarfræðingur
Sunnudagseftirmiðdagur            13:00 – 14:00    
Í veitingasalnum á 2. hæð í Laugardalslaug

Klemens Sæmundsson næringarfræðingar ætlar að vera með fyrirlestur fyrir foreldra.  Fyrirlesturinn er opinn öllum foreldrum en ætlast er til að foreldrar barna í landsliðinu sjái sér fært um að mæta.  Fyrirlesturinn verður uppi í fundaraðstöðunni í lauginni.

Þá minnum við á að síðasti skiladagur fyrir skráningu á Nýárssundmótið í excel skjölum er í dag en síðasti skiladagur skráninga á Hy-Tek formi er 3. janúar. Skráningar sendist á if@isisport.is og við minnum á að mótið er fyrir fötluð börn og ungmenni 17 ára og yngri.

 
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 24. desember 2010 16:05
Gleðileg jól
 
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 22. desember 2010 16:10
Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga 9. janúar 2011

Sunnudaginn 9. janúar 2011 mun Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga fara fram í innilauginni í Laugardal. Upphitun hefst kl. 14:00 og sjálf keppnin kl. 15:00.

Skráningargögn hafa þegar verið send út til aðildarfélaga ÍF og ber að skila þeim 30. desember (excel) og 3. janúar (Hy-Tek).

Mótið er fyrir þá sem eru 17 ára á árinu 2011 og yngri.

Sigurvegarar á Nýárssundmótinu frá árinu 2000:

2010: Vilhelm Hafþórsson - Óðinn
2009: Jón Margeir Sverrisson - Ösp
2008: Karen Gísladóttir - Fjörður
2007: Karen Gísladóttir - Fjörður
2006: Hulda H. Agnarsdóttir - Fjörður
2005: Guðrún Lilja Sigurðardóttir - ÍFR
2004: Guðrún Lilja Sigurðardóttir – SH/ÍFR
2003: Guðrún Lilja Sigurðardóttir - SH
2002: Jóna Dagbjört Pétursdóttir – ÍFR
2001: Gunnar Örn Ólafsson – Ösp
2000: Gunnar Örn Ólafsson – Ösp

Ljósmynd/ Sigurvegarar Nýárssundmótsins árið 2010

 

[Fréttir 2010]  [Fréttir 2009]  [Fréttir 2008]  [Fréttir 2007]  [Fréttir 2006]  [Fréttir 2005]  [Fréttir 2004]  [Fréttir 2003]  [Fréttir 2002]